Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 45
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM VINNUFÉLÖGUM
Malbikstöðin er leiðandi í framleiðslu malbiks á Íslandi og framleiðir hráefni til malbiksframkvæmda með áherslu á gæði, þjónustu og umhverfissjónarmið. Umhverfissjónarmið fyrirtækisins miðast
að því að draga enn frekar úr kolefnislosun en tækjabúnaður gerir fyrirtækinu kleift að framleiða malbik með endurunnu malbiki. Malbikstöðin leggur metnað í að skapa faglegt og hvetjandi
vinnuumhverfi fyrir starfsfólk sitt sem byggist á virðingu, metnaði og liðsheild. Reynslumikið starfsfólk leggur mikla áherslu á að öllum gæðastuðlum sé fylgt og að umhverfissjónarmið séu höfð að
leiðarljósi við starfsemi félagsins.
Fyrirspurnir sendist á info@malbikstodin.is Sótt er um störfin á www.alfred.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsókn skal skila fyrir 28.2.2022
BÍLSTJÓRAR
MEÐ MEIRAPRÓF
Óskað er eftir bílstjóra í 100% starf fyrir akstur vörubíla
félagsins. Bílstjóri verður hluti af teymi sem tekur að sér
stórar sem smáar framkvæmdir, hvort sem um ræðir
jarðvinnu og/eða malbikun fyrir bílastæði, stíga, götur
og/eða vegi.
HÆFNISKRÖFUR
Meiraprófsréttindi.
Góð samskiptafærni.
Þjónustulund og jákvætt viðhorf.
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
FLOTASTJÓRI
Óskað er eftir flotastjóra sem sér um að skipuleggja og stýra
akstri félagsins með hámarksnýtingu flotans að leiðarljósi.
Flotastjóri sinnir stöðugu mati á flutningsgetu og bestun
ferla. Hann fylgist með hæfni og venjum bílstjóra. Flotastjóri
annast einnig samskipti innan félagsins um viðhald
flotans. Umsjón og utanumhald með reikningum tengdum
verkefnum flotans. Að mestu er um að ræða aðsetur í
stjórnstöð félagsins fyrir utan reglulegar heimsóknir á
verkstæðið og þátttöku í blöndun.
HÆFNISKRÖFUR
Reynsla í flotastýringu æskileg. Háskólamenntun
er kostur. Þekking á vörubifreiðum er kostur.
Framúrskarandi samskiptahæfni. Íslenska í rituðu og
töluðu máli. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
VÉLSTJÓRI
MALBIKSBLANDARI
Óskað er eftir starfsmanni í 100% starf við framleiðslu á
malbiki. Starfsmaður verður hluti af teymi sem framleiðir
hráefni til malbiksframkvæmda með áherslu á gæði,
þjónustu og umhverfissjónarmið. Starfsmaður þarf að
hafa þekkingu á raf- og vélbúnaði.
HÆFNISKRÖFUR
Vélstjóramenntun kostur. Þekking á vinnuvélum
kostur. Búa yfir góðum samskiptahæfileikum.
Íslenska í töluðu máli æskileg.
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
STARFSMAÐUR Á
RANNSÓKNARSTOFU
Óskað er eftir starfsmanni á rannsóknastofu við
gæðaeftirlit. Fjölbreytt greiningavinna og eftirlit
með framleiðslu félagsins. Starfsmaður þarf að vera
lausnamiðaður og hafa getu til að leysa úr frávikum
sem upp koma við dagleg störf. Starfsmaður tekur þátt
í reglulegu framleiðslueftirliti og gæðamælingum til að
tryggja að framleiðsla á malbiki uppfylli íslenska og
evrópska staðla.
HÆFNISKRÖFUR
Nákvæm vinnubrögð. Framúrskarandi
greiningarhæfni.
Þekking á gæðamálum er kostur. Hæfni til að vinna í
teymi. Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
STARFSFÓLK
VIÐ MALBIKUN
Óskað er eftir starfsfólki í 100% starf við malbikun hjá
félaginu. Starfsfólk verður hluti af teymi sem tekur að sér
stórar sem smáar framkvæmdir. Frábær og nútímalegur
tækjakostur fyrir starfsfólk sem fær þá þjálfun sem til
þarf til að sinna starfinu.
HÆFNISKRÖFUR
Vinnuvélaréttindi æskileg en ekki krafa.
Hæfni til að vinna í teymi.
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
HJÓLASKÓFLA/VÉLAMAÐUR
Á HJÓLASKÓFLU
Óskað er eftir starfsfólki á hjólaskóflu sem verður hluti
af teymi við framleiðslu Malbikstöðina að Esjumelum.
HÆFNISKRÖFUR
Vinnuvélaréttindi. Þekking á vinnuvélum er kostur.
Búa yfir góðum samskiptahæfileikum.
Íslenska í töluðu máli æskileg.
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.