Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 46

Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 46
Bókari/launafulltrúi Samtök sunnlenskra sveitarfélaga óska eftir að ráða dugmikinn einstakling í starf bókara/launafulltrúa hjá samtökunum. Viðkomandi mun annast færslu á bókhaldi og launaútreikningum. Bókari/ launafulltrúi ber ábyrgð gagnvart framkvæmdastjóra. Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. • Umsjón með bókhaldi og afstemmingum • Umsjón með launaútreikningum og greiðslu launa • Aðstoð við gerð fjárhagsáætlana • Almenn skrifstofuþjónusta fyrir starfsmenn SASS og samstarfsstofnanir samtakanna • Gerð og útsending reikninga Helstu verkefni og ábyrgð: • Menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af færslu bókhalds og launaútreikninga • Þekking og reynsla á DK hugbúnaði er kostur • Þjónustulund og nákvæmni • Góð almenn tölvukunnátta • Góð íslenskukunnátta Menntunar- og hæfniskröfur: Nánari upplýsingar um starfið veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi. Samtökin hafa verið starfrækt frá árinu 1969. Starfssvæði samtakanna er frá sveitarfélaginu Ölfusi í vestri að sveitarfélaginu Höfn í Hornafirði í austri. Öll 15 sveitarfélögin á Suðurlandi eiga aðild að SASS. Megin starfsemi SASS felst í hagsmunagæslu fyrir íbúa og sveitarfélög á Suðurlandi ásamt því að veita ráðgjöf, styrki og aðra þjónustu til handa atvinnu- og menningarlífi í landshlutanum. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu samtakanna www.sass.is. Olís leitar að verkefnastjóra til að halda utan um stærri umbótaverkefni og greina tækifæri til framþróunar í samstarfi við framkvæmdastjórn félagsins. Um er að ræða fullt starf við greiningar, verkefnaáætlanir, samhæfingu, eftirfylgni og árangursmat lykilverkefna. Umrædd verkefni snúa að breytingum á rekstrarskipulagi, stafrænni framþróun, umbreytingu innviða og öðrum lykilþáttum starfseminnar. Hæfniskröfur: • Reynsla af verkefnastjórnun og/eða viðskiptaþróun. • Geta til að halda utan um mörg verkefni samhliða. • Hæfni til að vinna þvert á svið og með ólíkum hópum. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði og metnaður. • Háskólamenntun í viðskiptafræði, verkefnastjórnun eða öðrum tengdum fögum. • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. Framundan eru ýmis krefjandi og áhugaverð umbreytingarverkefni sem miða að því að efla starfsemi Olís til lengri tíma. Verkefnastjóri umbóta og viðskiptaþróunar mun gegna lykilhlutverki við mótun og eftirfylgni þessara verkefna og vinna náið með framkvæmdastjórn félagsins. VERKEFNASTJÓRI UMBÓTA OG VIÐSKIPTA- ÞRÓUNAR Umsóknir berist til mannauðsstjóra Olís, Ragnheiðar Bjarkar á rbg@olis.is, fyrir 7. mars nk. merktar „verkefnastjóri“ Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, uppbyggileg samskipti og fagleg vinnubrögð. 12 ATVINNUBLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.