Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 47
Skólastjóri Auðarskóla
Laust er til umsóknar embætti skólastjóra Auðarskóla í Dalabyggð sem er sameinaður leik- grunn- og
tónlistarskóli. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst næstkomandi.
Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Launakjör
eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum áhugasama til að sækja um,
óháð kyni og uppruna. Gert er ráð fyrir að skólastjóri verði búsettur í Dalabyggð.
• Stýrir og ber faglega ábyrgð á daglegri starfsemi skólans í
samræmi við gildandi stefnu
• Ábyrgð á daglegum rekstri og yfirumsjón með fjármálum
og rekstrarlegum skuldbindingum skólans
• Forysta í mótun og eftirfylgni með stefnu skólans í
samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá
grunnskóla og lögum um grunnskóla
• Starfsmannamál, s.s. ráðningar, starfsþróun og
vinnutilhögun
• Stuðlar að góðum skólabrag og samstarfsvettvangi skóla
og samfélags
• Dagleg umsjón og umráð skólamannvirkja
• Leiðir og hvetur starfsfólk með það að markmiði að
tryggja sem best samskipti og gagnkvæmt traust
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara er skilyrði
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og
kennslufræða æskileg
• Farsæl stjórnunar- og kennslureynsla og reynsla af leik-
og/eða grunnskólastarfi
• Þekking á áætlunargerð og fjármálstjórnun
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á þróun og
nýjungum í skólastarfi
• Lipurð í samstarfi, sveiganleiki og framúrskarandi hæfni í
mannlegum samskiptum
• Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og lausnamiðun í
starfi
• Góð íslenskukunnátta og færni til að miðla upplýsingum
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.intellecta.is. Upplýsingar veita Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Auðarskóli er sameinaður leik-,
grunn- og tónlistarskóli með
um 100 nemendur. Við skólann
starfa um 35 manns. Gildi
skólans eru:
Ábyrgð - Ánægja - Árangur
Í Dalabyggð búa um 660 manns,
þar af um 40% í Búðardal.
Sveitarfélagið nær frá Álftafirði
á Snæfellsnesi til Gilsfjarðar á
mörkum Vestfjarða og býr yfir
mikilli náttúrufegurð.
Dalabyggð er friðsælt og
rótgróið samfélag, hlaðið sögu
og menningu.
Nánari upplýsingar um þjónustu
sveitarfélagsins er að finna á:
www.dalir.is
Ertu öflugur leiðtogi?
Leikskólinn Sjáland óskar eftir að ráða stjórnendur í tvö störf. Leitað er
að öflugum leiðtogum til að leiða hóp kennara skólans og hafa áhrif til
breytinga. Leikskólinn er sjálfsætt starfandi skóli sem leggur áherslu á
einstaklingsmiðað nám og starfar eftir fjölvísistefnunni.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
í síma 511 1225.
Nánari upplýsingar um störfin og leikskólann Sjáland má finna á www.intellecta.is. Umsóknarfrestur er til og með
28. febrúar 2022. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni og uppruna, eru hvattir til
að sækja um starfið.
Undir sviðið heyrir allur daglegur rekstur leikskólans. Góð hæfni í mannlegum samskiptum,
skipulögð vinnubrögð og umbótasinnuð hugsun eru meðal eiginleika sem nýtast í starfinu.
Leikskólastjóri er faglegur leiðtogi í leikskólanum, miðlar þekkingu til starfsmanna og stuðlar að
skapandi leikskólastarfi í samvinnu við kennara, foreldra og forráðamenn í leikskólanum. Um
tímabundið starf er að ræða.
Leikskólastjóri
Sérkennslustjóri
Leikskólinn Sjáland auglýsir eftir sérkennslustjóra í 100% starfshlutfall. Skipulags- og
samskiptahæfileikar og sjálfstæði í starfi eru meðal eiginleika sem viðkomandi þarf að búa yfir.
ATVINNUBLAÐIÐ 13LAUGARDAGUR 19. febrúar 2022