Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 48
Þjónusturáðgjafi
Sparisjóður Suður-Þingeyinga leitar að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í starf þjónusturáðgjafa.
Helstu verkefnin eru samskipti við viðskiptavini ásamt greiningu og faglegri ráðgjöf
um helstu þjónustu sparisjóðsins. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með
menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi.
Hjá sparisjóðnum starfar skemmtilegt og skapandi starfsfólk sem reiðubúið er að
leita lausna fyrir viðskiptavini hans. Viltu starfa í skapandi en jafnframt krefjandi
umhverfi með samfélagsleg gildi að sjónarmiði?
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Greina þarfir viðskiptavina
• Sinna þjónustu við viðskiptavini
• Vinna lánsumsóknir
• Veita viðeigandi upplýsingar og
ráðgjöf um helstu þjónustuþætti
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun er kostur
• Haldbær reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Góð þjónustulund
• Almennt góð tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Upplýsingar um starfið veitir Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, sparisjóðsstjóri, sími 856 6524,
netfang: eyjolfurg@spthin.is
Starfsstöð er að Laugum í Reykjadal, Þingeyjarsveit, umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2022.
Þjónustustjóri
Sparisjóður Suður-Þingeyinga leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf þjónustustjóra, með
þekkingu á starfsumhverfinu og menntun sem nýtist í starfi.
Verkefnin eru margþætt, áhugaverð og spennandi. Hjá sparisjóðnum starfar skemmtilegt
og skapandi starfsfólk sem reiðubúið er að leita lausna fyrir viðskiptavini hans. Viltu starfa í
skapandi en jafnframt krefjandi umhverfi með samfélagsleg gildi að sjónarmiði?
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ábyrgð á þjónustu- og sölustjórnun
• Stuðningur við teymi þjónusturáðgjafa
og gjaldkera
• Veita viðskiptavinum þjónustu og ráðgjöf
• Leggja mat á lánsumsóknir
• Koma að skipulagi að markaðsmálum
• Stuðningur við innheimtu
• Umsjón með vinnu tengdri skjalavinnslu
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s.
viðskiptafræði, viðskiptalögfræði eða lögfræði
• Haldbær reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Góð þjónustulund, samskipta og skipulagshæfni
• Almennt góð tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Upplýsingar um starfið veitir Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, sparisjóðsstjóri, sími 856 6524,
netfang: eyjolfurg@spthin.is
Starfsstöð er að Laugum í Reykjadal, Þingeyjarsveit, umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2022.
Finnur þú lausnir
á flestum hlutum?
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2022. Sótt er um starfið á landsnet.is.
Við hvetjum alla áhugasama, sem uppfylla ofangreindar kröfur, til að sækja um starfið. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Nánari upplýsingar veitir Jason Már Bergsteinsson, sérfræðingur í mannauðsmálum, mannaudur@landsnet.is.
Við leitum að laghentum, útsjónarsömum og skipulögðum aðila með mikla
þjónustulund til að hafa yfirumsjón með skrifstofu- og birgðaaðstöðu okkar á
höfðuborgarsvæðinu.
Starfið snýst um verkstjórn starfsfólks og umsjón með föstum verktökum,
ábyrgð á öryggi á birgðasvæði, að tryggja viðhald og verja eignir ásamt öðrum
daglegum verkum sem falla undir ábyrgðarsvið umsjónarmanns birgða og
eigna.
Starfið er 50% skrifstofustarf og 50% verklegt.
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að miðla orku sem drífur áfram lífsgæði og
sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við leggjum áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Við erum
framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem
umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Marktæk reynsla af sambærilegu starfi
• Menntun sem nýtist í starfi
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Góð tölvufærni og þekking á Excel nauðsynleg
• Þekking á Dynamics AX eða önnur lagerkerfi
mikill kostur
• Lyftarapróf er kostur
• Framúrskarandi samskipta- og skipulagsfærni
• Frumkvæði, driraftur og sjálfstæði í starfi
Umsjón með
birgðum og eignum
14 ATVINNUBLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR