Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 50
Geislagata 9 Sími 460 1000 www.akureyri.is akureyri@akureyri.is
Hvítt letur
Umhverfis- og mannvirkjasvið:
Forstöðumaður nýframkvæmda
og viðhalds gatna og stíga
Laust er til umsóknar spennandi starf forstöðumanns
nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga á umhverfis- og
mannvirkjasviði Akureyrarbæjar. Um er að ræða 100% stöðu sem
er ótímabundin.
Umhverfis- og mannvirkjasvið hefur umsjón með öllum fasteignum
í eigu bæjarins. Helstu verkefni þess eru nýframkvæmdir, kaup og
sala eigna, viðhald eigna og útleiga þeirra. Einnig dagleg stjórnun
framkvæmda bæjarins. Undir það fellur hönnun og mælingar, gerð
og viðhald gatna og gangstétta, gatnalýsing, sorphirða, garðar og
opin svæði. Þá heyra strætó og ferliþjónusta undir sviðið ásamt
slökkviliði Akureyrar og rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli.
Helstu verkefni eru:
• Stjórnun og samræming verkefna á sviði nýframkvæmda,
endurbóta, viðhalds og reksturs gatna og stíga.
• Stjórnun og samræming á verkefnum umferðar- og gatnalýsingar
ásamt umferðaröryggismálum og umferðamerkingum.
• Stjórnun á framkvæmdum og rekstri bifreiðastæðasjóðs.
• Stýring á skipulagi innkaupa, birgðahaldi og starfsmannahaldi.
• Vinna að gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sína deild.
• Stefnumótun og þróunarvinna á deildinni.
• Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Gerð er krafa um háskólamenntun (Ba., Bs.)
í byggingartæknifræði, byggingarverkfræði eða sambærilega
menntun sem nýtist í starfi. Menntun á framhaldsstigi er krafist,
sérsvið í gatna- og umferðarmálum kostur.
• Reynsla af verklegum framkvæmdum á viðkomandi starfssviði.
• Reynsla af verkefnastjórnun og áætlunargerð.
• Reynsla af stjórnun starfsmanna á sambærilegu verksviði.
• Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg, góð þekking á
teikniforritum s.s. Mainmanager- umsýslukerfi UMSA, OneCRM,
Excel, MicroStation, Notes og SAP bókhaldsforritinu.
• Hæfni til stjórnunar, skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingu
nýrra hugmynda og vinnubragða.
• Starfinu fylgja mikil samskipti við deildir bæjarins, hönnuði,
verktaka og notendur. Það krefst lipurðar í samskiptum,
frumkvæðis og skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og
að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist
starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2022.
Lyf & heilsa er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Fyrirtækið leggur metnað
sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða.
www.lyfogheilsa.is
VI
Ð
H
LU
ST
U
M
LYF OG HEILSA
ÓSKAR EFTIR BÓKARA
VILTU VERA MEÐ?
Umsóknir merktar „Bókari“ ásamt ferilskrá og
kynningarbréfi sendist á starf@lyfogheilsa.is
fyrir 1. mars nk.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Skráning og bókun reikninga
• Samskipti við birgja og viðskiptavini
• Afstemmingar bankareikninga og
lánardrottna
• Bóka inn- og útborganir
• Vsk. uppgjör
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Þekking og hæfni:
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Reynsla og þekking á Navision
bókhaldskerfi
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í
vinnubrögðum
• Góð samskiptafærni og þjónustulund
Leikskólinn Mánahvoll
• Háskólamenntaður starfsmaður
• Leiðbeinandi
• Leikskólakennari
Urriðaholtsskóli – leikskólastig
• Leiðbeinandi
• Leikskólakennari
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
hagvangur.is
16 ATVINNUBLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR