Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 52

Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 52
www.ruv.is RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólks RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar. Við leitum að fólki sem vill vera hluti af mikilvægu starfi á skapandi og líflegum vinnustað. Dagskrárgerðarfólk Mannauðsráðgjafi Umsóknum skal skilað á vef RÚV, www.ruv.is/storf, þar er einnig að finna nánari upplýsingar um störfin. Umsóknarfrestur er til og með 5. sept. 2021 Hefur þú brennandi áhuga á fólki og þjóðmálum, þægilega rödd og góða nærveru? Langar þig til að færa þjóðinni nýjustu fréttir á morgnana í bland við skemmtileg viðtöl við áhugavert fólk? Við leitum að dagskrárgerðarfólki í Morgunútvarp Rásar 2 með breiða þekkingu, góða reynslu af fréttatengdri dagskrárgerð eða blaðamennsku og mjög gott vald á íslensku máli. Við leitum að metnaðarfullum mannauðsráðgjafa til að starfa við fjölbreytt verkefni í mannauðsteymi. Ef þú hefur góða faglega þekkingu og reynslu, mikinn áhuga á þróun ásamt því að nálgast samskipti með jákvæðni, fagmennsku og hvatningu að leiðarljósi gæti þetta verið rétta starfið. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um störfin, óháð kyni, uppruna, fötlun eða skertri starfsgetu. www.ruv.is Sérfræðingur í fjármáladeild Starfsfólk fjármáladeildar veitir mikilvæga þjónustu og er í samvinnu við öll svið innan RÚV. Við leitum að jákvæðum og talnaglöggum sérfræðingi, með góðan skilning og áhuga á reikningshaldi, sem liðsauka í góðan hóp. STARFSSVIÐ • Mánaðarleg uppgjör og greiningar • Undirbúningur við gerð ársreikninga og milliuppgjöra • Umsjón með millideildasölu • Upplýsingagjöf til framkvæmdastjórnar • Þátttaka í daglegum verkefnum fjármáladeildar HÆFNISKRÖFUR • Menntun á viðskiptasviði eða viðskiptafræðimenntun • Reynsla af bókhaldi og uppgjörum • Mjög góð excel kunnátta • Góð sam kipta- og samstarfsfærni • Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð • Rík þjónustulund RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar. Umsókn skal skilað á www.ruv.is/storf Nánari upplýsingar veitir Bryndís Dagsdóttir, forstöðumaður fjármáladeildar; bryndis.dagsdottir@ruv.is Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2022 Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð kyni, uppruna, fötlun eða skertri starfsgetu. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Ungbarnaleikskólinn við Bríetartún óskar eftir deildarstjóra Deildarstjórar óskast til starfa í nýjum ungbarnaleikskóla staðsettur við Bríetartún 11. Um er að ræða 4 deilda leikskóla með 60 börnum á aldrinum 12 mánaða til þriggja ára. Þetta er spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt og skapandi fólk sem hefur áhuga og löngun til að koma að og þróa nýjan ungbarnaleikskóla í nýju húsnæði. Saman munum við vinna að því að skapa börnunum námsum- hverfi þar sem hverjum og einum gefst tækifæri til að leika og njóta, en um leið leggja áherslu á umönnun, góð samskipti og málþroska. Fríðindi í starfi: • Forgangur í leikskóla • Afsláttur á dvalargjaldi • Vinnustytting • Heilsustyrkur • Sundkort • Menningarkort • Samgöngustyrkur Verkefni og ábyrgð: • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.: • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu Hæfniskröfur í starfið: • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem kennari. • Reynsla af starfi í leikskóla. • Reynsla af stjórnun er æskileg. • Góð íslenskukunnátta æskileg. • Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða. • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. • Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf. • Góð tölvukunnátta. Starfið er laust frá 15. mars n.k., eða eftir samkomulagi. Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarféla- ga og KÍ vegna Félags leikskólakennara. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, Deildarstjóri - Bríetartún | (reykjavik.is) Nánari upplýsingar um starfið veitir: Anna Ben. Blöndal, leikskólastjóri í síma 7734454 og tölvupóstur anna.blondal@rvkskolar.is Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is 18 ATVINNUBLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.