Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 52
www.ruv.is
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla.
Öflugt og samhent starfsfólks RÚV skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti,
segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar. Við leitum að fólki
sem vill vera hluti af mikilvægu starfi á skapandi og líflegum vinnustað.
Dagskrárgerðarfólk
Mannauðsráðgjafi
Umsóknum skal skilað á vef RÚV,
www.ruv.is/storf, þar er einnig að finna
nánari upplýsingar um störfin.
Umsóknarfrestur er til og með 5. sept. 2021
Hefur þú brennandi áhuga á fólki og þjóðmálum, þægilega rödd og góða nærveru?
Langar þig til að færa þjóðinni nýjustu fréttir á morgnana í bland við skemmtileg viðtöl
við áhugavert fólk?
Við leitum að dagskrárgerðarfólki í Morgunútvarp Rásar 2 með breiða þekkingu, góða
reynslu af fréttatengdri dagskrárgerð eða blaðamennsku og mjög gott vald á íslensku máli.
Við leitum að metnaðarfullum mannauðsráðgjafa til að starfa við fjölbreytt verkefni í
mannauðsteymi. Ef þú hefur góða faglega þekkingu og reynslu, mikinn áhuga á þróun
ásamt því að nálgast samskipti með jákvæðni, fagmennsku og hvatningu að leiðarljósi
gæti þetta verið rétta starfið.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um
störfin, óháð kyni, uppruna, fötlun eða
skertri starfsgetu.
www.ruv.is
Sérfræðingur í
fjármáladeild
Starfsfólk fjármáladeildar veitir mikilvæga
þjónustu og er í samvinnu við öll svið
innan RÚV. Við leitum að jákvæðum og
talnaglöggum sérfræðingi, með góðan
skilning og áhuga á reikningshaldi, sem
liðsauka í góðan hóp.
STARFSSVIÐ
• Mánaðarleg uppgjör og greiningar
• Undirbúningur við gerð ársreikninga
og milliuppgjöra
• Umsjón með millideildasölu
• Upplýsingagjöf til
framkvæmdastjórnar
• Þátttaka í daglegum verkefnum
fjármáladeildar
HÆFNISKRÖFUR
• Menntun á viðskiptasviði eða
viðskiptafræðimenntun
• Reynsla af bókhaldi og uppgjörum
• Mjög góð excel kunnátta
• Góð sam kipta- og samstarfsfærni
• Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
• Rík þjónustulund
RÚV starfar í almannaþágu
og hefur það hlutverk að
vekja, virkja og efla. Öflugt
og samhent starfsfólk RÚV
skoðar samfélagið með
gagnrýnum hætti, segir
mikilvægar sögur og þróar
nýjar leiðir til miðlunar.
Umsókn skal skilað á
www.ruv.is/storf
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Dagsdóttir,
forstöðumaður fjármáladeildar;
bryndis.dagsdottir@ruv.is
Umsóknarfrestur er til
og með 1. mars 2022
Við hvetjum áhugasöm til að
sækja um, óháð kyni, uppruna,
fötlun eða skertri starfsgetu.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Ungbarnaleikskólinn við Bríetartún
óskar eftir deildarstjóra
Deildarstjórar óskast til starfa í nýjum ungbarnaleikskóla
staðsettur við Bríetartún 11.
Um er að ræða 4 deilda leikskóla með 60 börnum á aldrinum 12
mánaða til þriggja ára.
Þetta er spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt og skapandi
fólk sem hefur áhuga og löngun til að koma að og þróa nýjan
ungbarnaleikskóla í nýju húsnæði.
Saman munum við vinna að því að skapa börnunum námsum-
hverfi þar sem hverjum og einum gefst tækifæri til að leika og
njóta, en um leið leggja áherslu á umönnun, góð samskipti og
málþroska.
Fríðindi í starfi:
• Forgangur í leikskóla
• Afsláttur á dvalargjaldi
• Vinnustytting
• Heilsustyrkur
• Sundkort
• Menningarkort
• Samgöngustyrkur
Verkefni og ábyrgð:
• Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt
starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
• Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram
fer á deildinni
• Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
• Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
• Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Hæfniskröfur í starfið:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem kennari.
• Reynsla af starfi í leikskóla.
• Reynsla af stjórnun er æskileg.
• Góð íslenskukunnátta æskileg.
• Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf.
• Góð tölvukunnátta.
Starfið er laust frá 15. mars n.k., eða eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarféla-
ga og KÍ vegna Félags leikskólakennara.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu
Reykjavíkurborgar, Deildarstjóri - Bríetartún | (reykjavik.is)
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Anna Ben. Blöndal, leikskólastjóri í síma 7734454 og tölvupóstur
anna.blondal@rvkskolar.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
18 ATVINNUBLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR