Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 53
Verkefnastjóri
Vegna góðrar og vaxandi verkefnastöðu býður Viðskiptavit ehf áhugavert framtíðarstarf fyrir
verkefnastjóra sem hefur stýrt byggingarverkefnum og unnið á verkstað.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Stjórnun og umsjón verkefna
• Stjórn og eftirfylgni innkaupa
• Gerð og eftirfylgni verk- og kostnaðaráætlana
• Reikningagerð og uppgjör verka
• Samskipti við opinbera- og samstarfsaðila
• Gæðaeftirlit í Ajour
• Timastjórnun í MS Project
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Iðn-/tækni-/verkfræðimenntun og marktæk reynsla á verkstað
• Góð tölvukunnátta, reynsla af notkun á AutoCad, Ms Project og Ajour æskileg
• Stundvísi, sjálfstæði og vinnusemi
• Árangursdrifin og lausnamiðuð nálgun
• Samskiptafærni, frumkvæði og framúrskarandi þjónustulund
-
Tæknimaður
Viðskiptavit ehf býður áhugavert framtíðarstarf og spennandi verkefnastöðu fyrir tæknimann sem
hefur reynslu af byggingarverkefnum.
Viðkomandi mun vinna náið með eigendum að fjölbreyttum verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Sjá um magntökur og uppgjörsmál
• Undirbúa útboð
• Sinna útboðs-/tilboðsgerð
• Undirbúningur og utanumhald verkefna ásamt gerð áætlana og samninga
• Samskipti við opinbera aðila og samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Verk- eða tæknifræðimenntun
• Stundvísi, sjálfstæði og vinnusemi
• Árangursdrifin og lausnamiðuð nálgun
• Samskiptafærni, frumkvæði og framúrskarandi þjónustulund
Verkstjóri / Staðarstjóri
Vegna góðrar og vaxandi verkefnastöðu vantar Viðskiptavit ehf hörkuduglegan og reynslumikinn verk-/
staðarstjóra til daglegrar verkstjórnunar og reksturs á byggingarsvæðum sínum. Um er að ræða skem-
mtilegt, krefjandi og fjölbreytt starf þar sem öryggi, gæði og afköst skipta meginmáli.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Rekstur byggingarsvæðis með öllu sem því tilheyrir
• Fagleg yfirumsjón með framkvæmdum
• Undirbúningur og uppsetning verka
• Úttekt á verkum undirverktaka
• Stjórnun á verkstað
• Umsjón með dagsskýrslum og verkskýrslum
• Mælingar á verkstað
• Geta gripið til verka
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistararéttindi í húsasmíði eru áskilin.
• Reynsla vegur þungt
• Góð færni í samskiptum
• Drifkraftur
Umsóknarfrestur fyrir stöðurnar er til og með 27. febrúar 2022. Farið er með allar umsóknir sem
trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.
Umsóknir óskast sendar í gegnum auglýsingar Viðskiptavits hjá alfred með ferilskrá og nöfnum
umsagnaraðila.
Viðskiptavit ehf. er framsækið fyrirtæki í byggingariðnaði sem sinnir verktöku ásamt alhliða verkefnas-
tjórnun og ráðgjöf. Viðskiptavit hefur innan sinna raða reynslumikið og hæfileikaríkt starfsfólk á sviði
byggingarstarfsemi og verkefnastjórnunar.
Hjúkrunarfræðingur óskast
Húðmeðferðarstöðin HÚÐIN Skin Clinic
auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í hlutastarf
(50-80%). Viðkomandi þarf að vera vandvirk,
hafa jákvætt viðmót og sýna frumkvæði.
Starfið er laust frá og með 1.mars.
Umsóknir ásamt ferilskrá
sendast á hudin@hudin.is
Sölumaður
Ertu öflug/ur, árangursdrifin/n og með reynslu af
sölumennsku og þjónustu við mannvirkjaiðnaðinn?
Vinnupallar ehf eru að stækka söludeildina og leita
að söluaðila. Frumkvæði í starfi og drifkraftur í
sölustörfum eru eiginleikar sem við metum mikils.
Hæfniskröfur:
• reynsla af sölustörfum
• þekking á mannvirkjaiðnaði
• reynsla af tilboðs/áætlanagerð vegur þungt
• framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
• gilt ökuskírteini er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2022.
Umsóknir óskast sendar í gegnum auglýsingu
Vinnupalla hjá alfred.is með ferilskrá og nöfnum
umsagnaraðila.
Vinnupallar ehf bjóða hnitmiðað vöruúrval öruggra
áhalda og tækja sem og þjónustu á hagstæðu
verði til að styðja við bætta öryggismenningu í
mannvirkjaiðnaði. Við viljum styðja við áframhaldandi
þróun í þá átt með auknu vöruframboði á vinnu-
verndar- og öryggisbúnaði á Íslandi. Við leggjum
mjög mikla áherslu á alhliða öryggi vinnustaða og
persónulega lausnamiðaða þjónustu.
VERKEFNASTJÓRI BROTHÆTTRA BYGGÐA Í DALABYGGÐ
Hefur þú brennandi áhuga á uppbyggingu samfélaga?
Við auglýsum eftir verkefnisstjóra til að leiða verkefni brothættra byggða í Dalabyggð. Verkefnið er
fjölbreytt og tengist byggðaþróun í víðum skilningi.
Verkefnið er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar,
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Dalabyggðar.
Um fullt starf er að ræða með starfsstöð í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og þarf viðkomandi að geta
hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar til eflingar byggðar og mannlífs í Dalabyggð
Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu
Miðlun upplýsinga og skýrslugerð til samstarfsaðila og íbúa
Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í byggðalaginu
Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið samkvæmt samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í verkefninu, háskólamenntun er kostur
Haldbær starfsreynsla og reynsla af verkefnastjórnun
Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg
Góð tölvu- og tæknifærni
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í mannlegum samskiptum
Verkefnisstjóri verður starfsmaður Samtak sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) sem vinnur að ýmiskonar
samstarfsverkefnum fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi, auk þess að sinna stoðþjónustu hvað varðar
atvinnulíf, byggðaþróun, menningu og ferðaþjónustu. Hjá SSV eru 12 starfsmenn sem starfa um allt
Vesturland. Auk þess mun verkefnastjóri starfa náið með sveitarfélaginu Dalabyggð. Í Dalabyggð
búa um 660 manns, þar af um 40% í Búðardal. Sveitarfélagið nær frá Álftafirði á Snæfellsnesi til
Gilsfjarðar á mörkum Vestfjarða og býr yfir mikilli náttúrufegurð. Dalabyggð er friðsælt og rótgróið
samfélag, hlaðið sögu og menningu.
Umsóknarfrestur er til 7. mars 2022. Umsóknir skal senda á netfangið ssv@ssv.is
Nánari upplýsingar veita:
Páll S. Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV - pall@ssv.is - 433-2310
Kristján Sturluson sveitarstjóri í Dalabyggð - sveitarstjori@dalir.is - 430-4700