Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 63
Gullið mitt var að opna nýja
verslun á Smiðjuvegi, þar
sem fólk getur leigt bása
og selt notaðar vörur af
ýmsu tagi. Það er einfalt og
þægilegt að leigja bás og í
versluninni má finna mikið
úrval af alls kyns fatnaði
fyrir fólk af öllum stærðum
og gerðum.
„Gullið mitt var fyrst opnað í
Holtagörðum 2020 og rekstur
fyrirtækisins hefur tekist með
prýði og við höfum notið mikilla
vinsælda frá upphafi,“ segir Guðni
Þór Guðnason, einn eigenda. „Hjá
okkur getur fólk selt notaðar vörur.
Fyrst um sinn vorum við bara með
barnafatnað og fylgihluti en vegna
mikillar eftirspurnar eftir sölu á
fullorðinsfatnaði var ekkert annað
í boði en að bæta við básum og
mæta þörfum viðskiptavinarins,
enda algjör snilld að geta bókað
barna- og fullorðinsbás á sama
stað, það sparar bæði tíma og
fyrirhöfn þegar á að selja fatnað og
fylgihluti af allri fjölskyldunni.
Nú höfum við opnað stór-
glæsilega verslun á Smiðjuvegi
4A Grænni götu, svo nú erum
við komin nær okkar stærsta
markhópi,“ segir Guðni. „Það er
mikilvægt fyrir okkur að vera eins
nálægt okkar viðskiptavinum
og hægt er og það er bara þriggja
mínútna ganga til okkar frá Mjódd
og næg bílastæði fyrir utan hjá
okkur.“
Auðveld leið til að selja vörur
„Þegar viðskiptavinur bókar bás
hjá okkur hefur hann ótakmarkað
aðgengi að verðmerkingum,
þjófavörnum og herðatrjám og
í raun öllu sem hann þarf til að
setja upp sínar vörur. Við erum
líka búin að byggja upp fyrir-
tækið á samfélagsmiðlum sem
auðveldar fólki að koma sinni
vöru á framfæri eftir að hún er
komin í sölu hjá okkur,“ útskýrir
Guðni. „Starfsmaður í verslun sér
um að básar séu í góðu standi svo
við hámörkum árangur í sölu hjá
okkar básaleigjendum.
Við veitum topp þjónustu til
þeirra sem leigja hjá okkur bása og
við höfum ekki séð aðra bjóða upp
á básaleigu þar sem svona mikið
er innifalið eins og hjá okkur.
Við reynum eftir fremstu getu að
mæta þörfum okkar viðskiptavina
á meðan svigrúm leyfir og það
hefur tekist með prýði. Aðgengi að
versluninni okkar hefur líka alltaf
verið gott og við gefum viðskipta-
vinum, hvort sem þeir eru að leigja
bása eða kaupa vörur, mikið pláss.
Það eru allir velkomnir í Gull-
Stórglæsileg verslun fyrir notaðar vörur
Guðni, Ómar og Auður hjá Gullinu mínu taka vel á móti þeim sem vilja kaupa
eða selja notaðar vörur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nýja verslunin á Smiðjuvegi 4A er
aðgengileg og glæsileg og þar er nóg
pláss fyrir kaupendur og seljendur.
Gullið mitt býður upp á gríðarlegt
úrval af alls kyns fatnaði, allt frá úti-
vstarfötum til sparifata.
Gullið mitt býður meðal annars upp
á mikið af alls kyns merkjavöru sem
er í mjög góðu ástandi.
Vöruúrvalið er gríðarlega fjölbreytt,
en það eru um 10.000 vörur í boði
hjá Gullinu mínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
fjölskylduna okkar. Básaleigjendur
eru á öllum aldri, sá elsti er 75 ára
og hefur selt nokkuð vel og þeir
yngstu eru á táningsaldri og þar
er sömu sögu að segja, svo okkar
markhópur er gríðarlega breiður,“
segir Guðni. „Það eru líka flestar
stærðir í boði í versluninni hverju
sinni, enda eru sirka 10.000 vörur í
boði að staðaldri.“
Einfalt og þjónustan góð
„Viðskiptavinir bóka hjá okkur
vegna góðrar þjónustu og vegna
þess að það er allt innifalið í leigu
meðan á leigutíma stendur. Kerfið
sem við notum er líka að skila
miklum árangri, það er mjög ein-
falt í notkun og gefur rauntíma
upplýsingar um sölu á vörum svo
viðskiptavinur getur fylgst með
sínum vörum allan þann tíma sem
þær eru staðsettar í verslun,“ segir
Guðni. „Bókunarferlið okkar er
líka mjög einfalt og aðgengilegt
öllum svo það er auðvelt að skoða
úrvalið af lausum básum og eftir
að bás er leigður fá viðskiptavinir
góðar upplýsingar í tölvupósti um
hvernig er best að taka næstu skref.
Vöruleitin okkar býður líka upp
á að setja inn myndir af vörunum
og við hvetjum alla básaleigjendur
til að setja mynd við hverja vöru
svo það einfaldi vöruleit og sölu
á þeirra vöru. Fólk utan af landi
notar þetta mikið hjá okkur og
við tökum við símgreiðslum og
sendum út á land ef þess er óskað.“
Selja notuð gæði
„Það er erfitt að segja nákvæm-
lega til um hvað er í versluninni
hverju sinni. Þetta er gríðarlega
fjölbreytt en aðallega er þetta
barna- og fullorðinsfatnaður,
allt frá sokkum upp í háklassa
jakkaföt, yfir í skíði og annan úti-
vistarbúnað. Við höfum líka tekið
nýjan fatnað í umboðssölu þegar
hann hefur safnast upp á lager hjá
fyrirtækjum,“ segir Guðni. „Það
má náttúrulega ekki gleyma því að
það þarf líka að viðhalda hringrás-
inni í hagkerfinu og það er gaman
að segja frá því að hjá okkur hefur
nokkuð af nýjum náttfötum og
göllum verið selt sem við sjáum svo
koma aftur í sölu sem notaða vöru.
Þá sjáum við að okkar markmið er
að nást, að koma fleiri fötum inn í
hringrásarhagkerfið okkar.
Það hefur verið mikil vitundar-
vakning um mikilvægi þess að
endurnýta og flestir eru farnir að
hugsa út í þetta á einn eða annan
hátt, umhverfið er okkur mikil-
vægt og er þetta á vörum allra
í heiminum í dag,“ segir Guðni.
„Markaðir sem selja notaðan
fatnað eru heldur ekki nýir af
nálinni, verslanir Rauða krossins
hafa verið þekktar til margra ára.
En það hefur verið lítið í boði að
geta selt sínar vörur á einum stað í
stað þess að hanga inni á sölu-
síðum í fleiri, f leiri klukkustundir
að selja nokkrar flíkur.
Vörur sem eru seldar hjá okkur
þurfa að sjálfsögðu að uppfylla
vöruskilmála verslunar og ef þær
uppfylla þá ekki eru þær teknar úr
umferð og básaleigjandi látinn vita
að vara uppfylli ekki kröfur sem
við setjum,“ segir Guðni. „Þá er ég
að tala um ef vara er til dæmis illa
farin eða ekki CE-merkt.
Það má segja að við seljum notuð
gæði, enda er mikið af merkja-
vörum sem koma inn á borð til
okkar í mjög góðu standi og eru í
leit að nýjum eiganda. Það er alveg
frábært að sjá að svona vörur endi
ekki í ruslinu og einhver geti notið
góðs af þessum gersemum,“ segir
Guðni.
Opnunartilboð og spennandi
verkefni fram undan
„Við vorum að flytja og erum með
dúndur opnunartilboð í gangi hjá
okkur núna, það eru líka nokkrir
básar lausir akkúrat núna en það
streyma inn vörur daglega og við
höfum séð mikið af nýjum við-
skiptavinum eftir að við fluttum,“
segir Guðni, sem segir að það sé
líka spennandi verkefni fram
undan hjá fyrirtækinu.
„Við erum með einn draum
sem við erum að vinna að þessa
dagana og gefum út tilkynningu
varðandi það verkefni fljótlega.
Þá tökum við mjög stórt skref í átt
að enn stærra hringrásarhagkerfi
og verður það staðsett í Reykjavík.
Undirbúningur er hafinn fyrir það
stóra verkefni og er það unnið í
samstarfi við mikla reynslubolta
úr verslunarumhverfi á Íslandi,“
segir Guðni. „Það eru klárlega
spennandi tímar fram undan og
við erum fjarri því að vera komin
þangað sem við stefnum. Við erum
rétt að byrja, en ekkert af þessu
væri hægt án þess að vera með
duglegt starfsfólk í verslun okkar
sem byggir þetta allt saman upp
með okkur.“
Gullið mitt er staðsett á Smiðju-
vegi 4A - Græn gata og heimasíðan
er gullidmitt.is.
NOTAÐ & NÝTT
FULLORÐINS OG BARNAFATNAÐUR
Smiðjuvegur 4a - Græn gata - gullidmitt.is - 5195584 - gullidmitt@gullidmitt.is
Skannaðu og
bókaðu!
Einfaldara
verður það ekki
Opnunartilboð
kynningarblað 5LAUGARDAGUR 19. febrúar 2022 NYTJAHLUTIR OG ENDURVINNSLA