Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 64
Flest sem flutt er til landsins
er flutt á palletum, svo-
nefndum Euro-palletum
sem eru staðlaðar að stærð.
olafur@frettabladid.is
Pallettur eru hentugar á allan hátt.
Þær eru hannaðar til að hægt sé að
færa þær milli staða með lyftara
á auðveldan og öruggan hátt. Pal-
lettur eru líka vandamál þar sem
þær safnast upp og kostnaðarsamt
er að farga þeim í Sorpu.
Ekki er samt ástæða til að
örvænta. Pallettur henta nefnilega
frábærlega vel til endurvinnslu og
úr þeim má gera nytjahluti sem
fegra heimilið og umhverfi þess.
Viðurinn í pallettum er einstak-
lega sterkur vegna þess að hann
þarf að þola miklar byrðar. Hann
er því kjörinn sem efniviður í eitt
og annað.
Einnig er mikilvægt að hafa í
huga að þegar pallettur eru endur-
unnar þarf ekki að fella eitt einasta
tré. Með endurvinnslu á góðum
viði er umhverfinu og náttúrunni
sýnd virðing.
Ekki þarf alltaf að taka pal-
lettur í sundur til að endurnýta
þær. Heilar pallettur henta vel
sem stofuborð, hægt er að stafla
tveimur eða fleirum upp, eða setja
til dæmis hjól undir, setja glerplötu
ofan á og þá er komið fínasta stofu-
borð. Það fer síðan eftir smekk
hvers og eins hvort pallettan er
máluð eða pússuð og lökkuð.
Sumir vilja hafa þetta hrátt og
náttúrulegt og þá þarf ekkert að
gera nema koma fyrir í stofunni.
Í stofunni er hægt að hafa sófa-
sett í stíl við borðið með því að
nota pallettur sem undirstöður og
setja púða og sessur á.
Pallettur eru líka tilvaldar í
svefnherbergið, til dæmis sem rúm.
Þá er bara að setja dýnu ofan á tvær
eða fleiri pallettur og drífa sig svo í
háttinn, kannski með góða bók.
Þar sem viðurinn í pallettum er
sterkur er kjörið að nota hann í
diskaskápa/hillur í eldhúsinu.
Vantar skrifborð í barnaher-
bergið? Þá er bara að skella sér í
IKEA og kaupa fjóra fætur til að
skella undir pallettu. Svo er mikið
geymslurými í sjálfri pallettunni.
Pallettur eru líka góðar á skrif-
stofunni. Til dæmis er hægt að
útbúa prýðisgott fundarborð úr
nokkrum pallettum með því að
setja glerplötu ofan á.
Vitanlega er fólk misvel til þess
fallið að dunda sér við að búa
gamla hluti eins og pallettur í
nýjan búning og framhaldslíf. Svo
er um flest, að sumir eru betri í
því en aðrir. Flestir sem geta sett
saman húsgögn úr IKEA eiga hins
vegar auðvelt með að gera sér eitt-
hvað gott úr gömlu pallettum.
Pallettur í hvert herbergi og garðinn líka
Hér sóma pallettur sér vel sem forláta fundarborð.
Þessi sófi virðist vera þægilegur.
Ekki þarf að vera dýrt að fá skrifborð í barnaherbergið.
Pallettur eru fínasta pallaefni.
Gamlar pal-
lettur eru ekki
aðeins nytsam-
legar heldur
geta þær verið
hin mesta prýði,
hvort heldur
sem er innan
dyra eða utan.
Pallettur leysa hvern vanda í stofunni og óþarft að leita langt yfir skammt.
Bókaðu bás á
www.extraloppan.is
GEFÐU HLUTUNUM NÝTT LÍF
Fatnaður & fylgihlutir
Öll helstu merkin á einum stað
6 kynningarblað 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURNYTJAHLUTIR OG ENDURVINNSLA