Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 65

Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 65
Í dag eru færri tilbúnir til að gefa fötin sín eða hanga lengi á samfélagsmiðlum til að reyna að selja notaðar flíkur úr fataskápnum. Þar skapar SmartGO seljendum mikið hag- ræði og þægindi. Íslenski hugbúnaðurinn SmartGO hefur valdið straumhvörfum í sölu not- aðs fatnaðar og fylgihluta. Stefnt er að sölu hálfrar milljónar endurnýttra flíka á árinu. „Hugsjónin um endurvinnslu og umhverfisvernd er drifkraftur hjá öllum sem koma að SmartGO; það að minnka sóun og slæm umhverfis áhrif. Hjá heiminum öllum liggja fyrir gríðarstór verk- efni við að taka sig á í þessum málum og með SmartGO-lausn- inni teljum við okkur vera með vöru sem getur aðstoðað fyrirtæki við það verkefni. Til að byrja með er það með notaðan fatnað og fylgihluti, en í raun er hægt að selja hvað eina notað og endurnýtt í SmartGO-kerfinu.“ Þetta segir Sturla Thor, fram- kvæmdastjóri SmartGO, um sam- nefndan hugbúnað sem verslanir og viðskiptavinir þeirra geta nýtt sér til hagræðingar við að selja notaðan og „outlet“-fatnað. „Hugmyndin að SmartGO varð til með einu pennastriki sumarið 2020 en síðan hefur það selt sig sjálft. Við höfum ekki einu sinni komist í að setja upp heima- síðu, fólk bara hringir og vill fá SmartGO í sína þjónustu, sem sýnir vel þörfina,“ segir Sturla. Einstakt, íslenskt hugverk SmartGO er íslenskur og sérhann- aður hugbúnaður til að halda utan um sölu og bókanir í verslunum með notaðan fatnað og fylgihluti. „Við höfum frá upphafi þróað kerfið með viðskiptavinum til að ýta undir enn meiri endurnýtingu og betra aðgengi að þessum versl- unum. Endurnýting og sala á not- uðum fatnaði er vel þekkt og hefur til dæmis verið lengi til staðar í Rauðakrossbúðunum, en í dag eru færri tilbúnir til að gefa fötin sín eða hanga á samfélagsmiðlum tím- unum saman til að reyna að selja notaðar flíkur úr fataskápnum. Því höfum við fundið mikinn áhuga á okkar nálgun með SmartGO- hugbúnaðinum og erum þegar byrjuð að nota hann í íslenskum verslunum með góðum árangri,“ upplýsir Sturla. SmartGO einfaldar til mikilla muna sölu á notuðum fatnaði. „Hugbúnaðurinn heldur utan um allar bókanir í verslunum, hvort sem þar eru bókaðir básar eða stærri rými sem fólk tekur á leigu fyrir notaðan fatnað sem það vill selja. SmartGO tekur sömu- leiðis á móti greiðslum fyrir leigða svæðið og þegar búið er að bóka rými í búðinni fær leigjandinn aðgang að sínu svæði og hleður upp myndum og upplýsingum um vörurnar sínar. Um leið verða vörurnar aðgengilegar í vöruleit verslunarinnar og hægt að skoða þær eins og í búðarglugga og varan heldur áfram inn í sölukerfið,“ útskýrir Sturla. Frábær notendaupplifun SmartGO-kerfið býður upp á framúrskarandi notendaupplifun í símtækjum, enda þróað með símtæki í fyrsta sæti þar sem lang- flestir noti síma sína mest. „Við þróuðum SmartGO-lausn- ina með Reglu, sem er ört vaxandi fyrirtæki í hönnun sölukerfa sem fleiri hundruð verslanir nota. Það sem er gott við sölukerfi Reglu er að það tengist líka bókhaldskerfi Reglu og því teljum við SmartGO vera fyrsta flokks lausn þar sem kúnninn getur hlaðið inn vörum sínum á sjálfvirka vefsíðu sem svo hleður þeim sjálfkrafa upp í sölu- kerfinu. Um leið og varan er komin í sölukerfið er hægt að selja hana og þegar varan selst fær seljandinn upplýsingar um söluna á sinni síðu og hefur yfirsýn yfir söluna allan tímann. SmartGO vinnur að sjálfvirku útborgunarferli þar sem seljandinn fær greitt fyrir söluna í lok leigutíma og hefur allt aðgengi- legt á sínu svæði, kvittanir, yfirlit og allt annað sem tengist viðkom- andi notanda. Þetta er því afar þægilegt kerfi, sjálfvirkt og einfalt í notkun,“ greinir Sturla frá. Hann segir íslenskt þjóðfélag í dag vilja hafa allt sjálfvirkt og þar af leiðandi sé kerfið hannað með nútímann í huga. „Á aðeins fjórtán mánaða tíma- bili höfum við náð gríðarlega góðum árangri þar sem yfir 7.500 notendur hafa notað kerfið, eða tvö prósent þjóðarinnar. Því hafa 7.500 básaleigur farið í gegnum okkur til þessa, þar sem verslanir og viðskiptavinir þeirra bóka sölu- bása og selja notaðan fatnað með góðum árangri. Á þessum fjórtán mánuðum hafa 240 þúsund vörur farið í gegnum SmartGO-kerfið og um 144 þúsund vörur verið seldar. Það þýðir 60 prósenta sölu í verslunum sem við þjónustum, og sem annars hefðu endað á rusla- haugnum.“ Fyrsta verslunin með notaðan varning sem tók SmartGO í sína þjónustu var Gullið mitt í Holta- görðum, árið 2020. „Fljótlega bættust við verslun á Selfossi og önnur í miðbæ Reykja- víkur, og í nóvember síðastliðnum varð þjónusta SmartGO hluti af Fjallamarkaðnum, sem heyrir undir Fjallakofann. Allar þessar verslanir hafa sitt sérsvið, Gullið mitt með barna- og fullorðinsfatn- að og fylgihluti, búðin í miðbænum selur „vintage“-fatnað, á Selfossi er til sölu alls konar bland í poka og í Fjallamarkaðnum útivistarfatn- aður, skíði og fylgihlutir. Undan- farna mánuði höfum við svo verið að undirbúa Hafnarþorpið (gamla Kolaportið) og sú vinna er að mestu leyti búin og þá getur fólk keypt vörur frá hundrað mismunandi aðilum í Hafnarþorpinu og borgað fyrir í einni greiðslu með SmartGO. Því mun ekki lengur þurfa að fara í hraðbankann áður en farið er í Hafnarþorpið, sem skapar við- skiptavinum og seljendum auð- vitað mikið hagræði og þægindi,“ segir Sturla. SmartGO leiðandi í Evrópu En það er ekki bara á Íslandi sem verslanir með notaðan fatnað vilja fá SmartGO í lið með sér og hefur fyrirtækið verið í samstarfi og grunnrannsóknum hjá hol- lenskum aðilum sem finna þörf á slíku konsepti þar í landi. „Við höfum fengið mikinn áhuga frá nokkrum verslunum í Hollandi, bæði sem eru þar fyrir með versl- anir með notaðan varning, sem og aðilum sem eru að opna nýjar verslanir. Á næstu tólf mánuðum stefnum við að opnun í 31 verslun í Hollandi og þar í nágrenni. Til var erlendur hugbúnaður sem gerir svipaða hluti en hann er orðinn barn síns tíma, gamall, með litla sjálfvirkni og mjög takmarkaða virkni, og án beintengingar við bókhalds- og sölukerfi eins og SmartGO. Hjá okkur sést strax hvað er laust í búðinni, án þess að þurfa að gefa upp ítarlegar per- sónuupplýsingar, en það er einmitt aðgengið sem SmartGO gengur út á og gerir það einstakt. SmartGO er einstakur hugbúnaður á heims- vísu og íslenskt hugvit eins og það gerist best. Hann losar um mörg flækjustig og bæði einfaldar og léttir fólki allt ferlið.“ Ónotuð föt líka mikilvæg Sturla segir stundum heyrast for- dómar fyrir því að nýr fatnaður og ónotaður fáist í verslunum með notaðar vörur. „En eins og þetta horfir við okkur sem skoðum málin með erlendum aðilum sem við erum að hefja samstarf við í Hollandi, er fullt af verslunum bæði hér heima og úti um allan heim með útsölu- vörur, sem fara svo á enn meiri útsölu en seljast samt ekki. Engu að síður þurfa þær að komast inn í hringrásarkerfið og þarf alltaf nýjar vörur til að viðhalda hring- rásinni,“ útskýrir Sturla. Hann tekur sem dæmi verslunar eiganda sem á gamlan lager af óseldum og ónotuðum fatnaði sem hann vill síður henda á haugana og frekar koma í verð. „Því höfum við innleitt „outlet“ í okkar kerfi, til að endurvinna og selja gamla lagera, í stað þess að þeim sé hent í hauga eins og maður hefur séð frá Afríku, þar sem heilu fatafjöllin hafa staflast upp og menga náttúruna. Við leggjum mikla áherslu á þetta í Hollandi, Belgíu, Frakklandi og Þýskalandi, þeim fjórum löndum sem við ætlum að herja á með því sem kallast verksmiðjuútsala eða „factory outlet“ og inniheldur vörur sem koma beint frá framleið- endum, en ekki úr verslunum per se. Framleiðendur framleiða alltaf umframmagn til að eiga á lager en ef hann selst ekki, þarf að koma því í umferð og það er það sem við viljum betrumbæta hér heima og í Evrópu, til að sporna við sóun og auka endurvinnslu,“ segir Sturla. Hann bætir við að ánægjulegt sé að starfsfólk í hans viðskipta- mannahópi sé farið að sjá sömu vörurnar koma aftur inn í sölu. „Það sýnir vitundarvakningu almennings um að nýta og endurnýta, þegar börn vaxa upp úr fötunum og svo framvegis. Einnig eru þeir sem leigja sér bása og selja notuð föt farnir að kaupa sér sjálfir föt fyrir peninginn sem þeir fá úr sölunni, og þannig gengur hring- rásin og allir vinna. Sjálfur fór ég alltaf í búðir eftir nýjustu fötunum en er nú farinn að kaupa minnst helming míns fatnaðar á svona mörkuðum.“ Hálf milljón flíka takmarkið í ár Aðeins um SmartGO, sem er að hluta til dótturfyrirtæki Splittis og varð til árið 2020 í samstarfi við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Reon. „Splitti og Reon unnu fyrst að kerfinu árið 2020, en strax árið 2021 varð SmartGO að sér rekstrareiningu því við sáum hvað það hafði mikil tækifæri. Þeir sem standa að baki SmartGO í dag eru forritarar frá SmartGO og Reon, ásamt Reglu sem vinnur mikið með okkur. Við vinnum mikið að sjálfvirkni og til þess þurfum við að vera með viðurkennt bók- halds- og sölukerfi í verslunum og allt verður það að einingu innan skamms,“ upplýsir Sturla. Fyrirtækið er nú í hröðum vexti og er að bæta við sig starfsfólki í forritun og þjónustu. „Þá verðum við komin með bol- magn til að stækka mun hraðar og getum við fært okkur hraðar á Evrópumarkað. Við teljum okkur geta komið með fullt í farteskinu til Evrópu og þar sem við höfum stigið niður fæti er ljóst að hægt er að betrumbæta margt. Mörg erlend fyrirtæki eru að koma í samstarf og við teljum okkur geta stóraukið sölu á notuðum fatnaði og fylgihlutum á Íslandi og erlendis á næstu misserum. Við stefnum að því að hálf milljón vara fari í gegnum SmartGO kerfið á þessu ári. Það er góður biti en við erum undirbúin fyrir það.“ ■ SmartGO, Skútuvogi 3, sími 5686800. Nánari upplýsingar um SmartGO á splitti.is. SmartGo gerir gagn fyrir umhverfið Sturla Thor, framkvæmdastjóri SmartGO, og Pétur Ísfeld Jónsson, sölu- og verkefnastjóri Reglu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI kynningarblað 7LAUGARDAGUR 19. febrúar 2022 NYTJAHLUTIR OG ENDURVINNSLA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.