Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 68
Það er margt sem þarf að
hafa í huga þegar eldhús
er innréttað. Mikilvægt er
að nýta rýmið sem best og
hafa það fallegt fyrir augað.
Innanhússarkitektinn Berg
lind Berndsen endurhannaði
og innréttaði eldhús í sérbýli
þar sem fagurfræði og nota
gildi er í fyrirrúmi.
sjofn@frettabladid.is
Hvað skiptir höfuðmáli þegar
teikna skal og hanna eldhús?
„Hlutverk arkitekta og innan-
hússarkitekta er að þarfagreina
og aðstoða viðskiptavini við að
byggja upp draumaheimili sín.
Mér finnst skipta mestu máli að
huga vel að þörfum og óskum
hvers og eins og hugsa um sam-
band skipulags og innra fyrir-
komulags í rýminu. Vinnurými,
skápapláss og vinnulýsing þarf að
vera gott, og það þarf að úthugsa
rýmið svo að sem best nýting
náist,“ segir Berglind.
Segðu okkur frá þessu eldhúsi
sem þú sást um að teikna og hanna.
„Fyrir breytingar var eldhúsið
mjög lítið og þröngt, með stóru
búri sem tók mikið pláss en nýttist
lítið. Þar var til að mynda bakara-
ofninn, sem virkaði mjög illa.
Vinnuplássið var lítið og langt á
milli vinnustöðva. Þá voru tveir
inngangar inn í eldhúsið og tóku
óþarflega mikið pláss. Ég lokaði
því öðrum þeirra og fékk þá skápa-
pláss á heilan vegg.“
Best falda leyndarmál eldhúsa
Hvað hafðir þú í huga þegar kom
að hönnun eldhússins varðandi
nýtingu og fagurfræði?
„Mikilvægt var að ná sem bestri
nýtingu út úr rýminu sjálfu. Að
skapa stórt og rúmgott eldhús
með miklu skápaplássi og stórri
vinnueyju, sem yrði aðalvinnustöð
og hjarta heimilisins. Yfirbragð
eldhússins yrði með miklum viði,
en samt sem áður létt og bjart,“
segir Berglind, sem vildi ná fram
einföldu og góðu vinnufyrirkomu-
lagi.
„Eitt best falda leyndarmál eld-
húsa eru búr og tækjaskápar. Þarna
komum við fyrir stórum og góðum
tækjaskáp með góðri vinnulýsingu
sem nær líka yfir eyjuna, en það
skiptir miklu máli upp á heildar-
samhengið. Svo bætti ég við fal-
legri stemningslýsingu til að brjóta
loftið upp og fyrir valinu urðu
klassísk Beat Light frá Tom Dixon
sem við fengum í Lúmex.“
Laumar þú á góðum lausnum
til að gera eldhús aðgengilegra og
skemmtilegra sem vinnustöð?
„Mér finnst mikilvægt að skapa
rúmgott eldhús fyrir fólk, með
miklu skápaplássi, góðu vinnu-
fyrirkomulagi og góðu flæði. Ég
reyni eftir fremsta megni að hanna
stórar eyjur með góðri vinnuað-
stöðu og mynda þannig sam-
ræmda heild.“
Skiptir máli að hugsa eldhúsið
sem vinnurými fyrst og fremst?
„Nei, alls ekki. Þar sem allir fjöl-
skyldumeðlimir eru farnir að taka
virkan þátt í eldhússtörfunum
finnst mér í góðu lagi að hafa eld-
húsið hluta af borðstofu og stofu,
eða reyna að tengja það á einhvern
hátt. Við það stækkar rýmið og
Eldhúsið án efa
hjarta heimilisins
Hún er skemmtileg staðsetningin á stóru brettunum frá Magnolia og svarta
veggljósið frá Gubi kemur vel út. MYNDIR/GUNNAR SVERRISSON
Beat Light-ljós frá Tom Dixon mynda fallega stemningslýsingu yfir eyjunni.
Berglind Berndsen, innanhússarkitekt
Barstólarnir Mater frá Epal eru mikil
prýði og passa vel við flotta eyjuna.
Fyrir valinu varð svartur askur í háu
skápana og hvít kvarsítborðplata.
Heildarútlitið er einstaklega fallegt
og tímalaust. Öll eldhústækin eru
frá Siemens, Smith & Norland.
Eplaedik í töfluformi, einfalt og þægilegt
Er eplaedik
náttúrulegt
kraftaverk?
Apple Cider fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum.
flæðið verður betra á milli rýma.
Eldhús og borðstofa verða oftast að
hjarta heimilisins. Eldhúsið má því
vera notalegt og hlýlegt, í góðum
tengslum við önnur rými, með fal-
legri lýsingu. Lýsing skiptir miklu
máli upp á heildarsamhengið og
hefur mikil áhrif á líðan fólks.“
Hvað réð för þegar ákvörðun var
tekin um efnisval í eldhúsið?
„Mig langaði að hafa mikla
kontrasta en samt sem áður hanna
einfalt og tímalaust eldhús þar sem
auðvelt væri að vinna og breyta
um liti og stemningu hverju sinni
og án mikillar fyrirhafnar. Fyrir
valinu varð svartur askur í háu
skápana, sem Aðalvík smíðaði, og
hvít kvarsítborðplata á eyjuna sem
heitir Calacatta Mont Blanc og við
fengum frá Granítsteinum. Það er
ótrúlega falleg borðplata með fal-
legum og miklum æðum.“
Skiptir máli hvaða efniviður er
valinn í eyjuna?
„Ég leitast oftast við að velja
sama efnivið í eyju og í háu
skápana til að halda samræmi í
efniviði. Svo er persónubundið
hvaða borðplötuefni er valið.“
Þegar farið er í umfangsmiklar
breytingar finnst Berglindi vert að
hugsa þær til langs tíma.
„Þá er gott að hugsa um að þær
standist tímans tönn. Val á eldhús-
tækjum er persónubundið og bað
ég eigendur um að koma með sínar
hugmyndir; fjölda ofna, ísskápa og
svo framvegis. Í þessu eldhúsi eru
öll eldhústæki frá Siemens, keypt
hjá Smith & Norland. Einnig bið
ég fólk um skoðun á efnisvalinu
sjálfu, því smekkur þess er afar
misjafn.“ n
6 kynningarblað A L LT 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR