Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 76
lýsingar sem voru gefnar, og hætta
að spyrja óviðeigandi spurninga. En
lögreglan hafði allar staðreyndir og
það hefði átt að nægja þeim í stað
þess að vera hrædd.“
Af því að það hjálpaði ekki endi-
lega þeirra máli að segja frá þessu
og gefa frá sér allar þessar upp-
lýsingar?
„Sum þeirra voru hrædd um að
málið myndi enda aftur hjá þeim
og að einhverjir myndu segja að
þetta væri þeim að kenna. Þannig
hjálpuðu þau mér ekki og tóku þátt
í þessu að einhverju leyti.“
Enginn getur ímyndað sér
Natascha hefur orð á því í þáttunum
að það eina sem hún vildi þegar hún
f lúði var réttlæti og friður. Spurð
hvort hún upplifi það í dag, segir
hún að það hjálpi að trúa á það.
„Ef þú ert í erfiðum aðstæðum þá
hefurðu líka það vandamál að þú
þarft að takast á við sannleikann
frekar en aðrir og það getur gert það
að verkum að þú ert ekki eins sjálfs-
öruggur. Sumir myndu kannski
segja: „Ef þetta myndi koma fyrir
mig þá myndi ég gera hitt og þetta
og það myndi ganga vel og ég myndi
fá stuðning.“ En þangað til að þú
ert í þessum aðstæðum sjálf, þá
geturðu ekki ímyndað þér hversu
hræðilegt þetta er. Ég var í þessum
aðstæðum en ég upplifði líka alveg
góðar aðstæður og réttlæti í því að
ég náði að flýja og ég er frjáls í dag,“
segir Natascha ákveðin.
Hún segir að í hverju samfélagi
séu lög og reglur sem fólk fylgi og að
þeim geti fylgt einhvers konar rétt-
læti. Sum þessi lög eða reglur eru
óskrifuð og það er ekki alltaf hægt
að reiða sig á þau.
„Stundum fer það eftir aðstæð-
unum sem þú ert í. Sumt er skrifað
niður en sumt þarf fólk að túlka
sjálft.“
Saga Natöschu er margsögð en
það er áhugavert á þeim tímum
sem við lifum í dag að líta til baka og
skoða betur það sem gerðist og það
sem tók við hjá Natöschu eftir að
hún flúði. Hún upplifði mikla þol-
endaskömm og gerendameðvirkni
eftir að henni loks tókst að f lýja.
Sem dæmi þá furðaði fólk sig á því
að hún væri leið yfir því að Přiklopil
hefði fyrirfarið sér, en eins og hún
útskýrir í myndinni þá er ekki gott
að hafa það á samviskunni og var
í raun ein af ástæðunum fyrir því
að hún hafði ekki f lúið fyrr. Hann
hafði hótað henni að drepa sig.
Það sem sérfræðingar útskýra líka
í þáttunum, og er kannski eitthvað
sem mörgum þykir ef laust erfitt
að kyngja, er hversu mannlegt það
er, eftir átta og hálft ár, að hún hafi
myndað einhvers konar tengsl við
manninn sem þó beitti hana hræði-
legu of beldi, nær daglega, allan
þennan tíma.
Sögðu hræðilegar sögur
Eftir að Natascha flúði komst það í
hámæli að hún hefði eignast barn
með Přiklopil sem hefði dáið og var
grafið í garðinum. Natascha segir að
á þeim tíma sem þetta var í fréttum
hafi hún ekki getað gengið um göt-
urnar nema að hrópað væri að henni
og sumir gengið svo langt að jafnvel
slá til hennar eða hrækja á hana.
„Fólk notaði mig sem striga fyrir
hræðilegar sögur sínar. Ég var auð
síða sem átti eftir að skrifa á. Sama
hvað ég samþykkti eða ekki þá vildi
fólk segja þessar hræðilegu sögur og
koma fólki í uppnám með þeim.“
Natascha segir að í dag sé mikil-
vægt að það sé farið yfir stöðuna
og málið eins og það var. Hún telur
ekki endilega að hún geti breytt
nokkru um þau sem fyrir voru, en
að það skipti máli fyrir yngri kyn-
slóðir og komandi kynslóðir að
vita hvað gerðist. Það sé ein helsta
ástæðan fyrir því að hún ákvað að
taka þátt í þessu verkefni.
Hefurðu von um að það sé mögu-
lega hægt að knýja fram breytingar
fyrir þolendur á þessum #MeToo
tímum?
„Já, þetta gæti verið tækifæri
Natascha Kampusch er í dag 34 ára gömul og segir að líf sitt verði alltaf betra. Hún segir að árin í haldi Přiklopil skilgreini sig ekki. MYND/VIAPLAY/NENT GROUP
fyrir okkur til að ala börnin okkar
upp sem betra fólk. Fólk sem veit
muninn á réttu og röngu,“ segir
Natascha.
Svo margir sem hafa hitt þig lýsa
þér sem sterkri manneskju. Líður þér
þannig?
„Ég á svoleiðis stundir. Ég sé styrk
minn þegar ég sé hverju ég hef sigr-
ast á.“
Fólk er meira en fortíð þess
Í þáttunum gerir Natascha nokk-
uð mikið úr því að þegar hún
f lúði þá hafi það eina sem hún
vildi verið friður og ró. Spurð hvort
hún upplifi það í dag segir hún að
það fari eftir því hver horfir.
„Ég á bara mitt líf og það er betra
og betra. Ég upplifi meiri frið núna
en áður. Það eru skin og skúrir af því
að ég er ekki ein, það er líka annað
fólk, sem líka á sín vandamál.“
Er eitthvað sem þú saknar sem
hefur ekki komið fram í umræðunni
um þína sögu?
„Það er ekkert sem ég sakna en
fólk ætti að huga að því að það var
ekki í mínum höndum eða höndum
fjölskyldu minnar hvað kom fyrir
mig. Ég hef önnur plön, líka um
mína framtíð, og fólk ætti líka að
hafa hugfast að manneskja er ekki
bara það sem hún hefur gengið í
gegnum. Manneskja er frekar per-
sónuleikinn og það er kannski þess
vegna sem ég er svona sterk. Ég
hugsa ekki um mig sem fórnarlamb
af því að ég er manneskjan sem ég
er. Fólk ætti ekki að gleyma því.“ n
Fólk notaði mig sem
striga fyrir hræðilegar
sögur sínar. Ég var auð
síða sem átti eftir að
skrifa á. Sama hvað ég
samþykkti eða ekki þá
vildi fólk segja þessar
hræðilegu sögur og
koma fólki í uppnám
með þeim.
Það var mikið fjallað um mál Natöschu í fjölmiðlum hér á landi eftir að hún flúði og árin á eftir.
32 Helgin 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ