Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 86
Listamaðurinn
Birg ir Andrésson (1955-2007)
nam mynd list við Mynd-
lista- og handíðaskól ann
1973 til 1977 og fór síðan til
fram halds náms í mynd list
við Jan van Eyck Aka demie
í Ma astricht í Hollandi 1978
til 1979. Birgir var valinn
til að taka þátt í Feneyja-
tvíæringnum árið 1995 fyrir
hönd Íslands. Verk hans hafa
verið sýnd á virtum sýningar-
stöðum jafnt hérlendis sem
erlendis og eru í opinberri
safneign og einkasöfnum
víða um heim. n
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eins langt og augað eygir
er yfirlitssýning á verkum
Birgis Andréssonar á Kjar-
valsstöðum. Sýningin
stendur til 15. maí og teygir
sig svo að segja um allt húsið.
„Þetta er yfirlitssýning á verkum
Birgis allt frá fyrstu sýningu hans
sem var í SÚM salnum árið 1976.
Reynt er að hafa hana í tímaröð
þótt það sé erfitt vegna þess að
Birgir vann í svipuðum verkum yfir
margra ára tímabil. Henni er því
skipt upp í þemu í grófri tímaröð,“
segir Aldís Snorradóttir, verkefna-
stjóri sýninga hjá Listasafni Reykja-
víkur.
Sýningarstjóri er bandaríski
listfræðingurinn Robert Hobbs.
Samtímis opnun sýningarinnar
kemur út bók á ensku, um ævi-
starf Birgis, In Icelandic Colour, en
þar er að finna ritgerð eftir Hobbs.
Kjarni sýningarinnar er þau verk
sem Hobbs fjallar um í sinni grein.
Ásmundur Hrafn Sturluson arki-
tekt er hönnuður þessarar glæsi-
legu sýningar. Verkin, sem eru
rúmlega hundrað, eru úr safneign
Listasafns Reykjavíkur, Listasafns
Íslands, Listasafns Háskóla Íslands,
Nýlistasafnsins, frá stofnunum,
einkasöfnurum og úr dánarbúi
listamannsins.
Leikur að þjóðararfi
„Þegar við vorum að vinna að
sýningunni opinberaðist greini-
lega hvað Birgir hafði snert marga
á sinni lífstíð. Við vorum að sækja
verkin í allar áttir og margir
höfðu sína fallegu sögu að segja af
honum,“ segir Aldís. „Það er frábært
að sjá þessi verk saman komin á
einum stað. Síðasta yfirlitssýning
á verkum Birgis var 2006 í Lista-
safni Íslands, ári áður en hann lést
og það er því tímabært að kynna
verk hans fyrir nýjum kynslóðum.“
Spurð hvað hafi einkennt Birgi
sem listamann segir Aldís: „Upp-
eldið hafði mikil áhrif á hann.
Hann ólst upp hjá blindum foreldr-
um á Blindraheimilinu í Hlíðunum,
sem hafði auðvitað áhrif á það
hvernig hann upplifði umhverfi
sitt og hvernig list hans þróaðist.
Leikur hans að þjóðararfinum er
annað einkenni á myndlist hans,
eins og verkið sem hann fór með á
Feneyjatvíæringinn árið 1995, sem
samanstóð meðal annars af prjón-
uðum fánum í lopalitum og teikn-
ingum af grunnum torf bæja. Birgir
skoðaði það sem mátti líta á sem
íslenska menningu í alþjóðlegu
samhengi og nálgaðist gjarnan á
kaldhæðinn og gamansaman hátt.“
Leiðandi afl
Í vestursal Kjarvalsstaða er stórt
Sýning sem
beðið hefur
verið eftir
Aldís Snorradóttir er verkefnastjóri sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Prjónaðir fánar í lopalitum heilsa áhorfendum.
Verkin á sýningunni eru rúmlega hundrað talsins.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
verk sem málað er beint á vegg-
inn, Eins langt og augað eygir, sem
sýningin dregur nafn sitt af. Verkið
er í safneign Metropolitan-safnsins
í New York. Í austursalnum eru
síðan verk sem Birgir gerði síðustu
árin.
Birgir lést langt fyrir aldur fram.
Hann var leiðandi af l í íslenskri
myndlist og átti, og á enn, fjölda
aðdáenda. „Fólk var farið að bíða
eftir sýningunni og það hefur verið
mikið streymi á hana. Fólk þyrstir
greinilega í að sjá þessi verk,“ segir
Aldís. n
20árGott verð fyrir alla í
2002 – 2022
20% AFMÆLISAFSLÁTTUR
af öllum Truper og Tactix vörum!
Gott verð
fyrir alla í
2002 – 2022
20%
AF
20%
AF 20%
AF
20%
AF
20%
AF 20%
AF
42 Menning 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR