Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 90

Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 90
Þetta sló á einfalda frægðardrauma, því ég fékk að sjá ljótu hlið- ina á þessu. Þórunn tendrar ljós Amy Winehouse í Úlfarsárdal Þórunn Antonía segir vináttuna og árin í London hafa opnað augu sín fyrir því sem máli skiptir. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Tónlistarkonan Þórunn Ant- ónía minnist vinkonu sinnar, Amy Winehouse, í Borgar- bókasafninu í Úlfarsárdal á þriðjudaginn, þegar hún les kaflann sem hún skrifaði í bókina Beyond Black og svarar spurningum úr sal um Amy og vináttu þeirra, sem hófst áður en hún lagði heiminn að fótum sér með tónlist sinni. odduraevar@frettabladid.is „Maður er þarna bara rosalega ungur, rétt um tvítugt, og allt í einu er vinkona manns orðin ein af stærstu stjörnum heims,“ segir tón- listarkonan Þórunn Antónía um Amy Winhouse, en þær urðu vin- konur áður en sú síðarnefnda lagði heiminn að fótum sér og myrkur fíknarinnar helltist yfir hana og dró hana til dauða aðeins 27 ára gamla 2011. Bókin Amy Winehouse: Beyond Black kom út undir lok síðasta árs, að undirlagi fjölskyldu tónlistar- konunnar, en í henni freista vinir og samferðafólk hennar þess að draga upp sanna mynd af henni í máli, ljósmyndum og minningum. Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til styrktarsamtaka sem fjölskylda Amy stofnaði í hennar nafni. Þórunn er meðal þeirra sem leggja til efni í bókina, ásamt ekki ómerk- ara fólki en Ronnie Spector, Vivienne Westwood og Bryan Adams svo ein- hver séu nefnd. Þórunn verður með bókina í Borgarbókasafninu í Úlfars- árdal klukkan 20 á þriðjudagskvöld og segist ætla að eiga persónulega og þægilega stund með safngestum og svara spurningum áhugasamra um Amy og vináttu þeirra að loknum upplestri sínum úr bókinni. Kómísk heimsfrægð „Ég flyt til London átján ára gömul og eignast fljótt vini í Camden sem var svona rosa kúl staður til að hanga og djamma þegar maður var mjög ungur,“ segir Þórunn Antónía um margrómað hverfið, sem er ekki síst þekkt fyrir flotta tónlistarsenu og markaðinn sem er gullnáma gamallar tísku. „Þetta var mjög heillandi umhverfi.“ Þórunn kynntist Amy í gegnum sameiginlega vinkonu sem var í söng- og leiklistarskóla með Wine- house. „Þannig að við fórum að hanga mjög mikið saman. Þetta var áður en Amy varð fræg og þarna er hún að stíga sín fyrstu skref í tón- listarútgáfu. Svo bara allt í einu, á einni nóttu, varð þessi vinkona okkar heimsfræg,“ segir Þórunn og bætir við að henni finnist þetta hálf kómískt þegar hún lítur um öxl. „Maður tók þessu ekkert alvar- lega. Okkur fannst þetta bara hálf kómískt og allt í einu voru bara komnar hárkollur í hennar stíl í svona partíbúðir og hún breyttist bara allt í einu í Elvis Presley.“ Þórunn segir vinahópinn hafa hlegið mikið að þessu öllu saman. „Ekki að henni, heldur hlógum við með henni og að því hvað þetta væri allt súrrealískt, spennandi og skemmtilegt. Hún var svo ótrúlega bjart ljós,“ segir Þórunn Antonía um Amy, eina skemmtilegustu manneskju sem hún hefur hitt. Frægðin kynnti fíknina Winehouse glímdi við fíkn sem Þórunn segir að hafi verið henni erfið og vandinn hafi magnast með frægðinni. „Það þótti rosalega töff og kúl að vera bara í rosa rugli, sér- staklega í þá daga í Bretlandi. Fólk var svolítið hvatt til þess að vera alltaf að drekka og dópa. Það þótti voða töff í þessum bransa, sem er rosalega fáránlegt þegar maður lítur til baka. Þetta er bara vinna eins og hver önnur.“ Þórunn segist hafa þroskast gríðarlega af vináttunni við Amy og sá þroski sé útgangspunkturinn í kaf la hennar í bókinni. „Flestir eru með eina blaðsíðu en ég fékk að skrifa tvær. Mér þótti ótrúlega vænt um það. Það er rosa heiður að fá að taka þátt í að halda hennar sönnu minningu á lofti. Vegna þess að þegar manneskja verður heims- fræg þá eiga hana einhvern veginn allir, “ útskýrir Þórunn. „Ég skrifa svolítið um það hvað maður var í raun og veru grænn þegar maður kynntist þessum ofboðslega spennandi heimi,“ segir Þórunn um lífsreynsluna sem hafði djúpstæð áhrif á hana. Sár missir „Að sjá manneskju verða heims- fræga, sem varð henni í raun og veru að falli, sló á einfalda frægðar- drauma mína. Því ég fékk að sjá ljótu hliðina á þessu,“ segir Þórunn og dregur hvergi úr hversu ofboðs- lega sársaukafullt það var að missa Amy. „Og þetta setti það í samhengi fyrir mig hvað nákvæmlega skiptir máli í lífinu. Það er svo sannarlega ekki að verða ríkur og frægur! Það er alls ekkert innihald í því ef maður hefur ekki góðan stuðning frá vinum og fjölskyldu.“ n Sjálfvirkur opnunarbúnaður og snertilausir rofar frá Þýsk gæðavara. Snertilausir rofar Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið Amy Winehouse söng sig inn í hjörtu heims- byggðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 46 Lífið 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.