Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 91
Salka Sól Eyfeld
söng- og leikkona
„Ég er orðin
húkkt á Eup-
horia. Þetta
eru náttúrlega
ótrúlegir þættir,
alveg geggjaðir.
Mögulega þeir
bestu sem ég hef
horft á. Allt svo flott og nýtt og vel
leikið.
Ég náttúrlega er í fæðingarorlofi
og búin að horfa mjög mikið
á Netflix en ég er mikill hljóð-
bókanörd og hlusta mikið á
hljóðbækur og hlaðvörp. Svo
var ég líka að byrja í fyrsta sinn á
The Sopranos. Það fer svo mikill
tími í að horfa á þætti og þar sem
það er svo mikið framboð vill
maður bara eyða tímanum sínum
í gæðadót. Ég var búin að heyra
að Sopranos ættu að vera bestu
þættir í heimi og mér finnst þeir
byrja mjög vel.“ n
n Á skjánum
Geggjuð Euphoria
The Sopranos. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Eftir að hafa horft á valdar
franskar kvikmyndir í vetur
fengu frönskunemar í reyk-
vískum menntaskólum að
velja sína uppáhaldsmynd
til sýninga á Frönsku kvik-
myndahátíðinni sem hófst í
Bíó Paradís í vikunni.
odduraevar@frettabladid.is
Frönskunemar í menntaskólum
í Reykjavík völdu svörtu gaman-
myndina Adieu les cons, Bless,
fávitar, á Frönsku kvikmyndahá-
tíðina og kynna hana á sérstakri
sýningu í dag. „Við völdum mynd-
ina vegna þess að okkur finnst hún
eiga mikilvægt erindi við sam-
félagið okkar og samtímann,“ segir
kvenskælingurinn Alfa Magdalena
Birnir Jórunnardóttir.
„Okkur fannst myndin
snerta á f jölmörgum
m i k i lvæg u m v ið -
fangsefnum fólks
nú til dags. Til
dæmis áhr if um
tækninnar á líf
okkar, mikilvægi
þess að vera góð
manneskja, hjálpa
öðrum og tala um
ge ð s jú kdóma . Þ á
kemur of beldi af hálfu
lögreglunnar líka til sögu
sem víða í heiminum er til
umræðu í dag.“
Franskir menntaskóla-
nemar virðast á sama máli
þar sem Bless, fávitar hlaut
César verðlaun mennta-
skólanema í Frakklandi
2021.
Alfa segir per-
sónur myndarinnar
einnig áhugaverðar
og ek k i dæmi-
g e r ð a r h e t j u r.
„Heldur venjulegt
fólk í samfélaginu
sem oft er ekki tekið
eftir. Við hvetjum sem
flesta til að sjá myndina
og vonum að ykkur þyki
hún jafn skemmtileg og
okkur!“
Elskar frönskuna
Alfa byrjaði að læra frönsku
Fávitar með mikilvægt erindi við alla
Þegar skjala-
verðirnir
sérkennilegu
blandast í leit
Suze að barninu
sem hún gaf ung
frá sér, fer allt
á yfirsnúning í
myndinni Bless,
fávitar.
MYND/AÐSEND
Adieu les cons
Suze Trappet er 43 ára þegar
hún veikist alvarlega og
ákveður að reyna að finna
barnið sem hún neyddist til
að gefa frá sér fimmtán ára.
Leitin skilar henni til fundar
við JB, kulnaðan skjalavörð á
sextugsaldri, og metnaðar-
fullan kollega hans, hr. Blin,
sem er blindur og leikar
æsast þá til mikilla muna.
Myndin er sýnd með
enskum texta í Bíó Paradís
klukkan 17 í dag, laugardag-
inn 19. febrúar.
Alfa Magdalena
frönskunemi í
Kvennó.
í Kvennó fyrir um tveimur og hálfu
ári. „Ég kunni ekkert í frönsku, bara
„oui“ og „merci“, eins og f lestir, og
gat ekki ímyndað mér hvernig ég
ætti að geta myndað heilar setn-
ingar. Hvað þá svara spurningum!“
Hún segist vera með frábæra
kennara sem hafi vakið áhuga
nemendanna á tungumálinu og
þau hafi meðal annars spilað bingó
á frönsku, horft á bíómyndir, spilað
spil og farið á hraðstefnumót á
frönsku.
„Allt þetta hefur hjálpað mér
mikið til þess að verða öruggari að
tala frönsku við venjulegar aðstæð-
ur og skilningur minn á tungumál-
inu hefur aukist til muna,“ segir
Alfa. n
Fjárfesting í vellíðan
Smiðjuvegi 11 s. 571 3770, pall@sauna.is, sauna.is
Velkomin í sýningarsalinn
að Smiðjuvegi 11
Tryggðu þér saunatunnu, saunaklefa eða tunnupott úr sedrusviði í tíma!
Sumarpöntun!
OFN FYLGIR OFN FYLGIR
OFN FYLGIROFN FYLGIR
Í Sauna Spa færðu vandaða gufuklefa og tunnupotta
úr sedrusviði sem reynst hafa sérlega vel á Íslandi.
Veldu gæði!
Þú finnur verðlistann og nánari upplýsingar á sauna.is
Panorama sedrus saunatunna
Tunnupottur úr sedrusviði
Saunatunna úr sedrusviði
Pure Cube útisauna úr sedrusviði
Luna útisauna úr sedrusviði
LAUGARDAGUR 19. febrúar 2022 Lífið 47FRÉTTABLAÐIÐ