Fréttablaðið - 01.04.2022, Side 6

Fréttablaðið - 01.04.2022, Side 6
Íslenska ríkið var sýknað í desember af bótakröfu dánarbús Tryggva Rúnars. Hann lést árið 2009 og var sýknaður árið 2018. Nú er komin lína bæði hvað varðar fjárhæðir sem og rétt eftirlifenda. Katrín Jakobs- dóttir, forsætis- ráðherra Brotaþoli fær ekki formlega aðild að máli samkvæmt frumvarpi dómsmálaráð­ herra en réttarstaðan er bætt til muna að mati saksóknara. adalheidur@frettabladid.is DÓMSMÁL Brotaþola í sakamáli verður ávallt heimilt að vera við­ staddur lokað þinghald fyrir dómi, eftir að hann hefur sjálfur gefið skýrslu, nema dómari telji sérstakar ástæður mæla gegn því, verði frum­ varp dómsmálaráðherra að lögum. Um er að ræða endurbætt frum­ varp um bætta réttarstöðu brota­ þola sem lagt var fram í tíð fyrr­ verandi dómsmálaráðherra en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið sem lagt var fram fyrr í þessari viku hefur tekið talsverðum breytingum, meðal annars með hliðsjón af umsögnum og athugasemdum sem komu fram. Kolbrún Benediktsdóttir vara­ héraðssaksóknari segir réttaróvissu hafa ríkt um heimild brotaþola til að sitja inni í lokuðu þinghaldi í málum sínum. Sumir dómarar hafi leyft það en aðrir hafnað því. „Það er auðvitað mjög gott að taka af þennan vafa og lögin veiti þessa heimild,“ segir Kolbrún. Mikið hefur verið rætt um hvort rétt sé að veita brotaþolum aðild að sakamálum sem rekin eru fyrir dóm­ stólum um mál þeirra. Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að brotaþoli fái formlega aðild en þó skerpt á því að hann hafi sérstaka stöðu umfram stöðu vitnis. Þannig segir í 39. grein: „Brotaþoli er ekki aðili að sakamáli en við með­ ferð þess nýtur hann þeirra réttinda og ber þær skyldur sem mælt er fyrir um í lögum þessum.“ Meðal annarra nýmæla um rétt­ indi brotaþola sem mælt er fyrir um í frumvarpinu er réttur réttargæslu­ manns hans til að beina tilmælum til lögreglu um spurningar til brota­ þola, sakbornings og vitna auk þess sem honum verði heimilt að leggja stuttar og gagnorðar spurningar til þeirra sem gefa skýrslu fyrir dómi. Þá sé brotaþola einnig veitt heimild til að leggja fram skjöl og önnur gögn og fá aðgang að gögnum í máli sínu. Kolbrún vekur athygli á því að aðgangur brotaþola að gögnum sé ekki alger, brotaþoli hafi enn stöðu vitnis og þurfi í f lestum tilvikum að gefa vitnaskýrslu. Aðgangur vitnis að gögnum geti haft slæm áhrif á sönnunarstöðuna og trúverðugleika vitnisins og dæmi séu um að réttar­ spjöll hafi orðið af þessum sökum. „Við viljum náttúrulega ekki að aukin réttindi brotaþola leiði til þess að mál þeirra spillist. Það er þannig með margar þessara reglna, það eru ástæður fyrir þeim, aðrar en bara kerfið að vera leiðinlegt,“ segir Kolbrún. Ekki er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að brotaþoli komi að ákvörðun um ákæru eða áfrýjun mála eða hafi formlega aðilastöðu eins og fyrr segir. „Í grunninn byggjum við okkar réttarkerfi á því að það sé hlutlaus lögregla og ákæruvald sem horfir bæði til þess sem horfir til sektar og sýknu, metur málin og hvort þau séu nægilega sterk til að fara fyrir dómstóla. Þetta á náttúrulega við um öll mál en ekki bara kynferðis­ brot. Það er ekki verið að hróf la við þessu í frumvarpinu en það er verið að rétta stöðuna og kveða aðeins fastar að orði um að brotaþoli er auðvitað ekki bara vitni heldur hefur ákveðna sérstöðu,“ segir Kol­ brún og bætir við: „Með þessum breytingum og rétti brotaþola til að koma að gögnum, láta spyrja spurninga, af la gagna og svo fram­ vegis, þá erum við að gera rann­ sóknina betur og þetta snýst auð­ vitað alltaf um að upplýsa mál og leita sannleikans. Þessar breytingar styðja við það markmið.“ Í frumvarpinu er einnig kveðið á um aukna upplýsingaskyldu til brotaþola varðandi framvindu málsins, til að mynda um gæslu­ varðhald og um áfrýjun máls. Þá er lagt til að Fangelsismálastofnun verði heimilað að upplýsa brota­ þola um tilhögun afplánunar þess sem brotið hefur gegn honum. Þá eru í frumvarpinu réttarbætur fyrir bæði sakborninga og brota­ þola með fötlun og mælt fyrir um rétt aðstandenda í málum sem varða andlát og þeim meðal ann­ ars tryggður réttur til réttargæslu­ manns. ■ Brotaþolar fái aðild að máli og sitji í lokuðu þinghaldi Kolbrún Bene- diktsdóttir varahéraðssak- sóknari segir breytingarnar mikilvægar en gæta verði þess að þær leiði í reynd til framfara og snúist ekki upp í andhverfu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK arib@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Góð reynsla hefur hlotist af tilraunaverkefni Velferð­ artæknismiðju Reykjavíkurborgar með lyfjaskömmtunarvélmenni. Eru þau nú þegar á heimilum nokk­ urra skjólstæðinga í Breiðholti. „Við fórum af stað í nóvember í tíu mánaða verkefni með finnska fyrirtækinu Evondos, þeir eru þjón­ ust aðir af Icepharma hér á Íslandi, og fengum 25 lyfjaskammtara til prófunar. Af þeim eru 22 komnir í gagnið. Við erum enn að vinna í að koma þeim öllum út. Í þessari viku erum við að byrja á nýju verkefni með 15 skömmturum frá norsku fyrirtæki og ætlum að prófa þá á öðrum stað í borginni,“ segir Kristín Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri Velferðartækni­ smiðju Reykjavíkurborgar. Margir starfsmenn heimahjúkr­ unar sinna þessu hlutverki, þeim verður ekki fækkað en með tilkomu vélmenna geta hjúkrunarfræðingar einbeitt sér frekar að félagslegum innlitum. „Eldra fólk er oft óöruggt í kringum nýja tækni en þetta er svo ofboðslega einfalt og notendavænt að það verða allir mjög ánægðir eftir fyrstu prófun,“ segir Kristín. Ef fjöldi tækja í Finnlandi er reiknaður yfir á Ísland má gera ráð fyrir að um 700 tæki verði í notkun hér á landi. Kristín segir auðvelt að vinna með tækið. „Inn í svona vélmenni eru settar lyfjarúllur. Margir af okkar skjól­ stæðingum eru með fyrir fram skömmtuð lyf sem á að taka á mis­ munandi tímum dagsins. Pokarnir eru allir merktir með tímasetningu, það sem vélmennið gerir er að lesa á pokana og skammta lyfin á réttum tíma. Þannig að klukkan níu byrjar vélmennið að láta vita, við erum svo með miðlægt kerfi þar sem við fáum skilaboð ef viðkomandi tekur ekki lyfin, þá getum við brugðist við.“ ■ Góð reynsla af vélmennum í Breiðholti Vélmennið talar íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/ARI Kristín Sigurðar- dóttir, hjúkr- unarfræðingur adalheidur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hyggst una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í bóta­ máli tveggja barna Sævars Marin­ ós Ciesielski sem kveðinn var upp í síðasta mánuði og bjóða þremur börnum Sævars sömu hækkun bóta og systkinum þeirra tveimur voru dæmdar með dóminum. Dánarbúi Tryggva Rúnars verður einnig boðin sátt á sama grundvelli að sögn forsætisráðherra sem leggur fram minnisblað um málið í ríkis­ stjórn í dag. Með dómi Héraðsdóms Reykja­ víkur voru bætur til Sævars taldar hæfilegar 385 milljónir, en áður höfðu verið boðnar alls 239 millj­ ónir til aðstandenda hans. Fjár­ hæðin skiptist milli fimm barna hans. „Þetta er það sem ég mun ræða í ríkisstjórn og vona auðvitað, eins og við féllumst á niðurstöðu í málum Guðjóns Skarphéðinssonar og dánarbús Kristjáns Viðars Júlí­ ussonar, að komnar séu lyktir hvað varðar bætur vegna sýknudómsins sem féll í september 2018,“ segir hún en tekur fram að þessi fram­ vinda málsins miðist við að sjálf uni börn Sævars hinum nýja dómi og áfrýi honum ekki sjálf. „Þegar lögin um bótagreiðslur vegna málsins voru samþykkt, var lögð áhersla á að aðilar gætu tekið við þeim greiðslum sem þá voru boðnar og um leið skotið málum sínum til dómstóla. Nú er komin lína bæði hvað varðar fjárhæðir sem og rétt eftirlifenda. Við ætlum að fylgja þeirri línu og vonum að þessum kafla uppgjörs málsins sé að ljúka,“ segir Katrín. Ríkið var sýknað af bótakröfu dánarbús Tryggva Rúnars í Lands­ rétti skömmu fyrir jól en Hæsti­ réttur hefur fallist á að taka það til meðferðar. Náist sættir á þeim grundvelli sem forsætisráðherra leggur til verður málið væntanlega fellt niður. ■ Katrín vill sættast í málum afkomenda Sævars og Tryggva Þetta snýst auðvitað alltaf um að upplýsa mál og leita sannleik- ans. Þessar breytingar styðja við það mark- mið. 4 Fréttir 1. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.