Fréttablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 10
Fjölskyldan mín talar um hvert við eigum að fara þegar og ef Pól- land verður hernumið. Við erum að hugsa um Frakkland eða Þýska- land. Jazek Það er gríðarmikill ótti meðal ungs fólks, þetta er mjög hættulegt ástand. Zophia Efling-stéttarfélag • Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík • Sími 510 7500 Aðalfundur Eflingar 2022 Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2022 verður haldinn föstudaginn 8. apríl klukkan 20:00 á Grand hótel Reykjavík í Gullteig. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu 3. Lýst kjöri stjórnar, trúnaðarráðs, stjórna sjóða og skoðunarmanna reikninga 4. Lagabreytingar ef tillögur liggja fyrir 5. Ákvörðun félagsgjalds, ef tillaga um breytingu liggur fyrir 6. Önnur mál Eflingarfélagar eru vinsamlega beðnir að skrá sig á fundinn á Mínum síðum á www.efling.is eigi síðar en 6. apríl. Allir Eflingarfélagar eru hvattir til að mæta! Ungt fólk í Póllandi sem Fréttablaðið ræddi við í Varsjá íhugar flutning til annarra landa. Þau eru óánægð með pólsk stjórnvöld og vilja harðari viðbrögð við stríðinu frá Evrópu. Ungir Pólverjar tala á allt öðrum nótum en ráðherrar pólsku ríkis- stjórnarinnar þegar kemur að við- horfi til ógnarinnar frá Rússum. Ráðamenn Póllands sem Frétta- blaðið hefur rætt við síðustu daga hafa sumir gengið svo langt að gera grín að mætti rússneska hersins og talið hann ofmetinn. Aðstoðarutan- ríkisráðherra Póllands sagði í sam- tali við Fréttablaðið í gær að það væri til marks um máttleysi rúss- neska hersins að rússneskir her- menn í Úkraínu yrðu að stela sér kjúklingi frá úkraínskum bændum til að drepast ekki úr hungri. Í viðtölum Fréttablaðsins við unga Pólverja á götum Varsjár í gær kom hins vegar fram mikill ótti við Rússa. Margir hefðu áform um að f lytja burt og finna skjól í öðrum ríkjum heimsins. Jazek, 39 ára, er á meðal þeirra sem óttast mjög innrás Rússa í Pól- land. „Ég er hræddur við að stríðið komi hingað til Póllands. Ég held að í nálægri framtíð sé mjög líklegt að Pútín ryðjist inn til okkar,“ segir Jazek. Hann segir að almennt óttist ungt fólk stríð í Varsjá. „Fjölskyldan mín talar um hvert við eigum að fara þegar og ef Pólland verður hernum- ið. Við erum að hugsa um Frakkland eða Þýskaland.“ Jazek segir að Þýskaland og Frakkland verði að bregðast mun harðar við en gert hefur verið. Þar sem voldugustu Evrópuríkin geri ekki sitt til að leysa deiluna ráðist margt af getu Bandaríkjanna til að leysa deiluna. „Ég held að öll Evrópa, bæði stjórnvöld og almenningur, verði Ungir Pólverjar óttast innrás Pútíns í Pólland Fréttablaðið hitti unga Pól- verja í miðborg Varsjár í gær. Fólkið er gagn- rýnið á pólsk stjórnvöld og hefur áhyggjur af stöðunni í Austur-Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI að gera allt sem hægt er að gera til að stöðva Rússa.“ Varðandi f lóttamannafjöldann segir hann að einstaklingar í Varsjá hafi gert meira til að bjarga flótta- mönnum en stjórnvöld. Sjálfur hefur Jazek gert sitt til að leggja Úkraínumönnum lið með því að hýsa flóttafólk, konu og barn. Spurður um ánægju gagnvart inn- lendum stjórnvöldum segist Jazek alls ekki ánægður með forseta Pól- verja, Duda, eða ríkisstjórnina. „Nei, ég er ekki ánægður með for- setann, pólsk stjórnvöld eru ekki lýðræðisleg, þau segja að Pólland sé lýðræðislegt land en það er ekki lýð- ræðislegt að almenningur megi ekki tjá sig um ríkisstjórnina eins og fólk langar til,“ segir Jazek. „Ástandið hér er ekki eins alvar- legt og í Rússlandi eða Ungverja- landi, en ég óttast að með sama áframhaldi hér, ritskoðun og öðru, verði frelsi til skoðana eins tak- markað hér og þar,“ bætir Jazek við. Zophia, pólsk kona um tvítugt, sem Fréttablaðið hitti á öðrum slóð- um í Varsjá, talar á svipuðum nótum og Jazek, að ungt fólk sé mjög ugg- andi og munur milli kynslóða hvað varði viðhorf til Rússaógnarinnar. „Það er gríðarmikill ótti meðal ungs fólks, þetta er mjög hættulegt ástand,“ segir Zophia. Spurð hvort hún hafi sjálf íhugað að flýja til annars lands áður en til innrásar Rússa gæti komið, segir hún að flestir Pólverjar vilji berjast, veita viðnám án þess að f lýja, því þannig séu Pólverjar. Eigi að síður velti margir fyrir sér nýju landi til búsetu vegna ógnarinnar, margir íhugi slíkt en tækifærum til að flytja burt sé misskipt eftir efnahag. „Mín skoðun er að NATO megi ekki umgangast okkur eins og barn. Ríkisstjórnin gerir ekki nóg og þjóð okkar er ekki ánægð með stjórn- málin hérna. Aðrar þjóðir verða að koma sterkar inn en þær hafa gert,“ segir Zophia. Fréttablaðið ræddi einnig við Ígor, úkraínskan f lóttamann á framhaldsskólaaldri, sem kom yfir landamærin fyrir tveimur vikum. Hann kemur frá stríðshrjáðu svæði í austurhluta Úkraínu. Hann segist enn ekki hafa misst vini eða ættingja í stríðinu en hafa áhyggjur alla daga. Honum hafi boðist að f lýja til Póllands þar sem hann sæki nám núna. Hann sé þakklátur fyrir veitta aðstoð en hjarta hans blæði vegna ástandsins heima fyrir. „Ég vonast til að geta snúið aftur til Úkraínu.“ ■ Björn Þorláksson bth @frettabladid.is Sigtryggur Ari Jóhannsson sigtryggur @frettabladid.is ■ Fréttablaðið í Póllandi © GRAPHIC NEWSHeimildir: Reuters, UBIQUE, Business Insider Myndir: Google Earth Pro, Timm Suess Kjarnorkuverið í Tsjernobíjl Rauðskógur: Nafnið er dregið af grenitrjám sem urðu ryðrauð og dóu eƒir að hafa orðið fyrir gríðarlega mikilli geislun. 26. apríl 1986: Sprenging varð í kjarnaofni nr. 4. Gríðarlegt magn af geislamengun slapp út í andrúmsloƒið. 2016: Einangrunarhjúp komið fyrir. Hann á að endast í eina öld. Upprunalegi hjúpurinn. 500 m 1.640 fet 25. febrúar 2022: Geislavarnaráð Úkraínu mælir mikla aukningu í geislavirkni við Tsjernobíjl eƒir að skriðdrekar og bílar óku í gegn. 24. febrúar 2022: Leið Rússa H V Í T A - R Ú S S L A N D Ú K R A Í N A 20 km 12 mílur Tsjernobíjl LOKAÐA SVÆÐIÐ PALÍESKÍ- VERNDARSVÆÐIÐ Rússneskar hersveitir sem tóku y™r lokaða svæðið í Tsjernobíjl óku brynvörðum farartækjum í gegnum geislaverndarsvæðið án allra varna, þar á meðal í gegnum „Rauðskóginn“, og þyrluðu í leiðinni upp miklu magni af geislavirku ryki. Rússar þyrluðu upp geislavirku rykiarib@frettabladid.is Rússneskar hersveitir hörfa nú frá Tsjernobíjl-svæðinu og yfir landa- mærin til Hvíta-Rússlands að sögn úkraínskra yfirvalda. Er þetta í samræmi við upplýsingar banda- rísku leyniþjónustunnar. Rússar tóku svæðið í byrjun innrásarinnar í Úkraínu þann 24. febrúar síðast- liðinn. Talið er að Rússar séu að breyta um stefnu í innrásinni og í stað þess að reyna að ná Kænugarði muni þeir einbeita sér að austur- hluta landsins. Kjarnorkuverið í Tsjernobíjl er ekki lengur í notkun en hópur starfsmanna sér um að halda því við. Starfsmennirnir hafa setið fastir í kjarnorkuverinu nú vikum saman og hafa ekki getað farið til síns heima. Tsjernobíjl er vettvangur versta kjarnorkuslyss allra tíma þegar sprenging varð í kjarnaofni með þeim af leiðingum að geislavirkni dreifðist um alla Evrópu. Talið er að á annan tug þúsunda hafi látist í kjölfarið. Svæðið var rýmt og er nú 2.600 ferkílómetra svæði lokað fyrir umferð vegna geislamengunar. Talið er að einhverjir rússneskir hermenn séu enn á svæðinu en það sé nýr hópur. Óstaðfestar fregnir hafa borist af því að rússneskir hermenn hafi verið lagðir inn á sjúkrahús í Gomel í Hvíta-Rússlandi vegna einkenna geislamengunar. ■ Rússar hörfa frá Tsjernobíjl 8 Fréttir 1. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐINNRÁS Í ÚKRAÍNU FRÉTTABLAÐIÐ 1. apríl 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.