Fréttablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 22
Sjón mun hafa gert Eggers fulla grein fyrir því að víkingar hefðu verið ruddar sem vöfðu ekki bómull um hlutina. The Northman er byggð á sömu norrænu þjóðsögu og Shakespeare notaði sem fyrirmynd að ódauð- legu verki sínu um Hamlet Dana- prins. Hér er fylgst með ungum víkingi sem leitar hefnda vegna morðsins á föður sínum. Leikstjórinn, Robert Eggers, er sonur prófessors í enskum bók- menntum sem kenndi Shakespeare og leitaði efniviðar á sömu miðum og Shakespeare gerði á sínum tíma. Eggers ákvað í samráði við Alexander Skarsgård, aðalleikara myndarinnar, að færa söguna í víkingabúning og fékk til liðs við sig Sjón. Haft er fyrir satt að Sjón hafi ráðið miklu um að ekki yrði neitt blúndutal, því að þótt það geti verið viðeigandi í ljóðskap Shakespeares fór því fjarri að norrænir víkingar þættu prúðir og hófsamir. Sjón mun hafa gert Eggers fulla grein fyrir því að víkingar hefðu verið ruddar sem vöfðu ekki bómull um hlutina. Þó að þeir hafi verið góð skáld hafi orðfæri þeirra verið einfalt og laust við blúndur og prjál. Sjón er ekki eini Íslendingurinn sem kemur að þessari mynd. Bæði Björk og Ingvar E. Sigurðsson fara með veigamikil hlutverk og Hafþór Júlíus Björnsson og Ísadóra Bjarkar- dóttir Barney leika líka í henni. Leikararnir eru engir aukvisar. Nicole Kidman leikur stærsta kven- hlutverkið, en í myndinni er einnig að finna Claes Bang, Ethan Hawke og Willem Dafoe, svo einhverjir séu nefndir. Sannkallað einvalalið og sann- kölluð stórmynd með sterku íslensku ívafi þrátt fyrir að hún hafi verið tekin á Írlandi en ekki hér á landi. n Háskólabíó, Sam-Álfabakka, Sam- Kringlunni, Egilshöll, Smárabíó, Borgarbíó Akureyri, Selfossbíó og Sam-Keflavík Ódauðleg og tímalaus saga um blóðhefnd Fróðleikur n Galdrakarlinn (Ingvar E. Sigurðsson) er klæddur í kvenmannsföt. Á járnöld var á Norðurlöndum litið svo á að galdrar væru kvenna- mál og vísað til galdrakarla með sama hætti og homma. n Hlutverkið í The Northman er fyrsta kvikmyndahlutverk Bjarkar í sautján ár. Frumsýnd 14. apríl Aðalhlutverk: Alexander Skarsgård, Nicole Kidman, Claes Bang, Ethan Hawke, Willem Dafoe, auk Bjarkar, Ingvars E. Sigurðs- sonar, Hafþórs Júlíusar Björnssonar og Ísadóru Bjarkardóttur Barney Handritshöfundar: Robert Eggers og Sjón Leikstjóri: Robert Eggers Árið er 1928 og fjölskyldan og þjónustufólkið í Downton Abbey eru við brúðkaup Toms Branson og ungfrú Lucy Smith, dóttur Maud, lafði Bagshaw. Eftir að heilsu hertogaekkj- unnar fór að hraka f lutti hún aftur til Downton til að gera verið nærri fjölskyldu sinni. Grantham lávarður greinir frá því að lögmaður fjölskyldunnar muni koma til Downton að ósk hertogaekkjunnar og að öll fjöl- skyldan eigi að vera viðstödd. Violet hefur erft villu í Suður- Frakklandi og hyggst arf leiða lafði Sybil og Sybbie, dóttur Bransons, að henni, nokkuð sem Tom Bran- son líst illa á. Spurningunni hvers vegna hinn látni Montmirail markgreifi arf leiddi hertogaekkjuna að svo verðmætri eign er ósvarað. Grantham lávarður fær áhuga- vert símtal frá herra Barber, kvikmyndaleikstjóra hjá British Lion-kvikmyndafyrirtækinu, sem vill láta næstu þöglu mynd sína, The Gambler, gerast í Downton Abbey. Robert telur hugmyndina vera fáránlega en tilboðið er himinhátt og eftir skoðunarferð um háa- loftið afræður Mary að taka því. Fréttirnar um fyrirhugaða kvik- myndatöku býr til eftirvæntingu meðal þjónustufólksins. Daisi og Anna eru að farast úr spenningi yfir að fá að berja átrúnaðar- goð sín augum. Carson er síður spenntur. Fjölskyldan undirbýr brottför til Frakklands þegar stjörnur myndarinnar ber að garði og æsingurinn hjá þjónustufólkinu nálgast suðumark. Fjölskyldan, ásamt Carson, heldur til Frakklands að skoða hina nýju eign hertogaekkjunnar en Mary verður eftir í Downton til að sjá um þarfir kvikmynda- teymisins. Robert kemst að leyndarmálum sem vekja spurningar sem aðeins móðir hans getur svarað og þegar Cora deilir sínu eigin leyndarmáli með Robert f lýtir það fyrir brott- för frá Frakklandi. n Háskólabíó, Smárabíó, Sam- Kringlunni, Sambíóin Akureyri, Gömul leyndarmál gægjast upp á yfirborðið Fróðleikur n Downton Abbey heitir í raun Highclere Castle og hefur verið í eigu Carnavon-fjölskyldunnar síðan 1679. Á vorin og sumrin er hægt að leigja kastalann fyrir brúðkaup og aðrar athafnir. n Meðal kvikmynda sem teknar hafa verið upp í Highclere Castle má nefna Eyes Wide Shut með Nicole Kidman og Tom Cruise og Robin Hood: Prince of Thieves. Frumsýnd 29. apríl 2022 Aðalhlutverk: Hugh Bonneville, Michelle Dockery, Jim Carter, Elizabeth McGovern, Joanne Froggatt, Maggie Smith, Tuppence Middleton og Phyllis Logan Handritshöfundur: Julian Fellows Leikstjóri: Simon Curtis 4 kynningarblað 1. apríl 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.