Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.04.2022, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 01.04.2022, Qupperneq 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hrokafullt viðmót kann einn- ig að vinna gegn meiri- hlutanum, þar er fólk, þó ekki borgar- stjórinn, farið að láta eins og það eigi rétt á völdum. Meira en annað hvert barn í Úkraínu er á flótta vegna stríðsins. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Ekki verður þess vart að einungis nokkrar vikur séu til borgarstjórnar­ kosninga. Eftirvænting meðal borgarbúa er lítil sem engin, jafnvel þeir þrætugjörnustu meðal þeirra nenna ekki að rífast um borgarmál. Þeim virðist standa á sama um úrslitin. Fari fram sem horfir má búast við að fjöldi kjósenda sitji heima eða komi sér í frí til útlanda án þess að kjósa. Tíðindaleysið í kosningabaráttunni er æpandi og lítið ber á frambjóðendum. Sú sem þetta skrifar telur sig reyndar hafa séð and­ lit Hildar Björnsdóttur á auglýsingaspjaldi á strætisvagni, en kannski var það missýning. Sú litla kosningabarátta sem er farin í gang byggist helst á skítkasti. Þannig má lesa í skoð­ anadálkum vinstrimanna sömu fullyrðingu og borgarstjórinn okkar ágæti hélt fram á dög­ unum, sem sagt þá að Sjálfstæðisflokkurinn í borginni sé sundurtættur af innbyrðis átökum og alls ófær um að taka við völdum í borginni. Þetta er vitaskuld hræðsluáróður. Sjálfstæðis­ flokknum er vel treystandi fyrir borgarstjóra­ stólnum og hann er ágætlega fær um að vinna borgarbúum gagn. Úr svipuðum ranni má heyra að Framsóknar­ flokkurinn eigi ekki erindi í borgarstjórn. Þetta er vitaskuld einnig fjarstæða. Frambjóðandinn í efsta sæti listans í borginni er geðugur ein­ staklingur sem sjálfsagt er að veita brautar­ gengi, enda er honum trúandi til góðra verka. Það er einfaldlega þannig að gott fólk er í flestum flokkum sem treystandi er til að fara með völd. Svo væri vitanlega gaman að fá konu sem borgarstjóra. Það sem skekkir þá mynd er að núverandi borgarstjóri er eins og fæddur í embættið og hefur auk þess yfir sér einhvers konar siguráru. Það er engin sérstök ástæða til að hafna honum, þótt hann hafi reyndar setið ansi lengi. Hugsanlega mun stór hluti þeirra kjósenda sem nenna að mæta á kjörstað hugsa einmitt á þennan hátt. Það má þó líka hugsa sér að áhugaleysi á kosningunum muni bitna á fylgi meirihlutans. Sjálfstæðismenn hafa alltaf kunnað að smala sínu fólki á kjörstað, og einmitt sú hæfni kann að vinna vel með þeim í þessum kosningum. Hrokafullt viðmót kann einnig að vinna gegn meirihlutanum, þar er fólk, þó ekki borgar­ stjórinn, farið að láta eins og það eigi rétt á völdum. Slíkt virkar fráhrindandi. Meirihlut­ inn ætti að koma sér upp bljúgara viðmóti, allavega svona rétt á meðan hann er í kosninga­ baráttu. En umfram allt er kominn tími til að hefja yfirvegaða kosningabaráttu. n Kosningabarátta Við upphaf ársins var ljóst að staða mannúðar­ mála hafði aldrei verið verri vegna heimsfaraldurs, hamfarahlýnunar og átaka. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð frammi fyrir stærstu áskorun í 75 ára sögu sinni: að sporna við afturför í réttindum barna vegna heimsfaraldurs Covid­19. Svo skall á stríðið í Úkraínu. Það er auðvelt að horfa á þá heimsmynd sem við blasir og fyllast vonleysi. En hvað segjum við þá þegar við horfum í augun á börnunum okkar? Ef það er eitt­ hvað sem við skuldum komandi kynslóðum þá er það þrautseig bjartsýni og von – þrátt fyrir allt. Verkefnin eru ógnarstór en það eru til lausnir. Milljónir skólabarna búa enn við skólaskerðingar vegna Covid­19 en það er hægt að tryggja þeim fjar­ kennslu – sums staðar með útvörpum. Þegar reglu­ bundið skólastarf hefst að nýju þarf að tryggja að öll börn skili sér aftur í skólastofurnar. Meira en annað hvert barn í Úkraínu er á flótta vegna stríðsins. UNICEF vinnur hörðum höndum að því að tryggja börnunum þann stuðning sem þau þurfa: barnavernd, bólusetningar, lyf, drykkjarvatn, sálgæslu og menntun. Í Jemen og Afganistan búa milljónir manna við vannæringu og mun slæmt ástand versna eftir því sem líður á árið. Í Jemen eru 2,2 milljónir barna alvar­ lega vannærðar og þar af meira en hálf milljón barna með bráðavannæringu, sem er lífshættulegt ástand. En með einfaldri meðferð er hægt að lækna barn af bráða vannæringu á einungis sex vikum. Allt ofangreint starf er mögulegt vegna ómetan­ legs stuðnings íslensks almennings, Heimsforeldra UNICEF. Íslendingar eiga heimsmet í fjölda Heimsfor­ eldra miðað við höfðatölu og senda á hverju ári meira en hálfan milljarð króna til verkefna UNICEF um allan heim. Þannig sýnum við Íslendingar að saman erum við sterkari og engin áskorun er of stór. Á morgun gefst tækifæri að kynnast verkefnum og árangri UNICEF, hlæja og gráta, í einstökum stjörnu m prýddum sjónvarpsþætti á RÚV. Það verður heimsins mikilvægasta kvöld. n Þrautseig bjartsýni Birna Þórarinsdóttir Framkvæmda­ stjóri UNICEF á Íslandi Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is arib@frettabladid.is Sápa Átökin innan Eflingar eru orðin slík að það er hægt að detta inn í nýjasta þátt án þess að hafa fylgst með seríunni á undan. Nú hefur Viðar sakað Odd, lögmann Agnieszku, um gassagang eftir að krafist var upplýsinga um greiðslur til Andra sem gætu hafa verið til að grafa undan óvinum Sól­ veigar. Kemur það beint ofan í meint framhjáhald Ridge sem spillti brúðkaupi Quinn sem leiddi til þess að Harold tók ofskammt og Amy datt niður lyftugöng. Jens bíður eftir sím­ tali. Megi þessar erjur endast sem lengst nú þegar Neighbo­ urs er á leiðinni úr loftinu eftir 37 ár. ÁTVR Mathöll Áfengis­ og tóbaksverslun ríkisins hefur viðurkennt að það komi henni ekkert við hvort bjór sé seldur í vefversl­ unum eða ekki. Ekki frekar en öll þau skipti sem verslunin hefur sleppt því að fara í mál við landa sala þrátt fyrir að það sé ótvírætt að slíkt grafi undan rekstrinum. Á meðan lögregl­ unni er alveg sama, löggjafan­ um líka og hvað þá ráðherrum, þá verður að gera ráð fyrir að þetta sé löglegt. Stefnir því allt í kapphlaup um hvoru fjölgar hraðar – brennivínsbúðum á netinu eða mathöllum. n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 1. apríl 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.