Fréttablaðið - 01.04.2022, Síða 24
Prófessor Albus Dumbledore veit
að hinn voldugi og myrki galdra-
maður Gellert Grindelwald ætlar
sér að ná yfirráðum yfir galdra-
heimum.
Hann treystir sér ekki til að
stöðva hann einn og felur galdra-
fræðingnum Newt Scamander að
leiða teymi galdramanna, norna
og einn hugrakkan mugg í hættu-
lega för þar sem þau lenda í návígi
við gamla og nýja óþokka og lendir
saman við her Grindelwalds sem
stækkar sífellt.
En hvernig getur Dumbledore
verið á hliðarlínunni þegar svona
mikið er í húfi?
Myndin gerist á fjórða áratug
síðustu aldar, nokkrum árum eftir
að The Crimes of Grindelwald á að
gerast.
The Secrets of Dumbledore er
þriðja myndin í seríunni um Fan-
tastic Beasts og ellefta myndin í
allri galdraseríunni sem byrjaði
með Harry Potter og viskustein-
inum fyrir rúmlega 20 árum.
Myndin gerist sem fyrr segir á
4. áratug 20. aldarinnar og seinni
heimsstyrjöldin nálgast óðfluga og
sagan skýrir hvernig galdraheimur-
inn blandast inn í stríðið.
Leikurinn berst víða, meðal ann-
ars til galdrasamfélaganna í Bútan,
Þýskalandi og Kína, auk þess sem
gamalkunnir staðir í Bandaríkj-
unum og Bretlandi koma við sögu.
Allir helstu leikararnir úr fyrri
tveimur myndunum um Fantastic
Beasts ætluðu að taka þátt í þessari
þriðju mynd seríunnar en í nóvem-
ber tilkynnti Johnny Depp, sem
hafði leikið Grindelwald, að hann
myndi ekki taka þátt í verkefninu
vegna þess að Warner Bros. höfðu
beðið hann um að draga sig út úr
því vegna neikvæðrar umfjöllunar
um meiðyrðamál Depps gegn News
Group-dagblaðakeðjunni.
Tökur voru hafnar og Depp hafði
þegar leikið í einu atriði sem tekið
var upp í London. Sagan segir að
samningur Depps hafi hljóðað upp
á 1-2 milljarða króna, hvort sem
myndin kláraðist eða ekki.
Það var svo danski leikarinn
Mads Mikkelsen sem hljóp í skarðið
fyrir Depp og árangurinn má sjá í
þessari mynd. n
Sambíóin, Smárabíó, Laugarásbíó
og Bíóhúsið Selfossi
Hve lengi getur Dumbledore haldið sér til hlés?
Fróðleikur
n Upphaflegur handritshöfundur Harry Potter-myndanna snýr
aftur og skrifar handritið að þessari mynd ásamt J.K. Rowling.
n Upphaflega átti að frumsýna myndina 12. nóvember 2021 en
myndatökur töfðust vegna brotthvarfs Johnny Depp í nóvember
2020 svo heimsfrumsýningin er 8. apríl næstkomandi.
n J.K. Rowling greindi frá því árið 2007 að Dumbledore væri sam-
kynhneigður og hún hefur einnig greint frá því að hann og Grin-
delwald hafi átt í eldheitu „ástarsambandi“.
Frumsýnd
8. apríl 2022
Aðalhlutverk:
Mads Mikkelsen, Ezra Miller,
Katherine Waterston, Jude
Law, Eddie Redmayne, Alison
Sudol og Dan Fogler
Handritshöfundar:
J.K. Rowling og Steve Kloves
Leikstjóri:
David Yates
Operation Mincemeat byggir
á sannri sögu úr seinni heims-
styrjöldinni. Árið 1943 fannst lík
í sjónum úti fyrir strönd Huelva á
suðurhluta Spánar. Líkið virtist hafa
verið nokkurn tíma í sjónum og við
úlnlið þess var hlekkjuð skjalataska.
Þjóðverjar fréttu af líkinu og
skjalatöskunni og lögðu allt kapp á
að komast yfir hana, ekki síst þegar
þeir fréttu að Bretar væru að reyna
að endurheimta hana.
Þjóðverjum tókst að ná töskunni
á undan Bretum og í henni fundu
þeir trúnaðarbréf frá yfirvöldum í
London til háttsetts bresks foringja í
Túnis sem gaf í skyn að herir banda-
manna hygðust ráðast frá Norður
-Afríku yfir Miðjarðarhafið á Sardin-
íu og Grikkland. Þetta reyndist vel
heppnaður blekkingarleikur Breta
til að villa Þjóðverjum sýn. Banda-
menn réðust inn á Sikiley. Líkið í
sjónum var af umrenningi frá Wales
sem leyniþjónustan hafði fengið í
líkhúsi í London. Oft er sannleikur-
inn ótrúlegri en skáldskapur. n
Sambíóin
Ótrúlegur blekkingarleikur
Frumsýnd
22. apríl 2022
Aðalhlutverk:
Rufus Wright, Atthew Mac-
fayden, Ruby Bentall, Char-
lotte Hamblin og Colin Firth
Handritshófundar:
Michelle Ashford (handrit) og
Ben Macintyre (bók)
Leikstjóri:
John Madden
Sónik er búinn að koma sér fyrir
í Green Hills og tilbúinn í meira
frelsi. Tom og Maddie samþykkja
að leyfa honum að vera einum
heima á meðan þau fara í frí.
Ekki eru þau fyrr farin af stað
en Doktor Róbotnikk snýr aftur.
Í þetta sinn er hann með nýjan
félaga með sér, Hnefil, og þeir eru
að leita að smaragði sem býr yfir
af li til að bæði byggja nýja heima
siðmenningar og eyða þeim.
Sónik heldur af stað í ferða-
lag með Hölum félaga sínum
og saman ætla þeir að finna
smaragðinn áður en hann fellur í
rangar hendur.
Einvalalið íslenskra leikara
og söngvara fer með hlutverk í
íslensku útgáfunni, en myndin
verður sýnd með bæði íslensku og
ensku tali. Í ensku útgáfunni fara
Jim Carrey, James Marsden og Ben
Schwartz með helstu raddir.
Myndin er sýnd bæði með
íslensku og ensku tali. n
Sambíóin, Smárabíó, Laugarásbíó
og Bíóhúsið Selfossi
Kapphlaupið um smaragðinn
Komin í bíó
Aðalhlutverk:
íslensk talsetning
Eyþór Ingi Gunnlaugsson,
Björgvin Franz Gíslason, Davíð
Guðbrandsson, Sigríður Eyrún
Friðriksdóttir
Handritshöfundar:
Pat Casey, Josh Miller og John
Whittington
Leikstjóri:
Jeff Fowler
6 kynningarblað 1. apríl 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS