Fréttablaðið - 01.04.2022, Side 29
Maður veit aldrei
hvernig áhrifin
verða og það hefur snert
mann að hún skuli vera
að hafa þessi tilætluðu
áhrif.
Aníta Briem
Aníta Briem, sem leikur aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni
Skjálfta, sem frumsýnd var
í vikunni, og stórt hlutverk
í Berdreymi, sem frumsýnd
verður 22. apríl, hefur haft í
nógu að snúast í íslenskum
verkefnum síðustu tvö árin.
olafur@frettabladid.is
Blaðamaður settist niður með
Anítu Briem í Betri stofunni, sem
svo er kölluð, í húsakynnum Torgs
við Hafnartorg. Svo skemmtilega
vill til að Betri stofan var einmitt
notuð sem skrifstofa Steinunnar,
sem Aníta lék í þáttaseríunni Ráð
herranum, fyrir tveimur árum.
Aníta hefur leikið mikið hér
heima að undanförnu en hún hefur
líka leikið mikið í bæði Bretlandi
og Bandaríkjunum. Eru þetta ólíkir
heimar, hér heima og erlendis?
„Mér finnst vera gríðarlega
mikill munur á þessum heimum,
hérna og erlendis, og þá kannski
sérstaklega í Bandaríkjunum. Það
er svo mikill munur á því hvernig
sögur eru sagðar. Þetta eru svo
ólíkir menningarheimar.
Ég held að mismunandi menn
ingarheimar þurfi sögurnar
sínar í mismunandi formum og
umbúðum. Í Bretlandi er frá
sagnarstíll miklu nær okkur en í
Bandaríkjunum. Ég eyddi miklum
tíma í Bandaríkjunum og fannst
forvitnilegt að vera þar og upplifa
nýja hluti, en kannski tengdist ég
þessum menningarheimi samt
aldrei neitt djúpum böndum.“
Önnum kafin á Íslandi
Aníta hefur lítinn frítíma átt að
undanförnu. „Ég var í Svar við bréfi
Helgu, kvikmyndinni sem Ása
Helga Hjörleifsdóttir leikstýrir af
stakri snilld. Hún verður frumsýnd
seinna á árinu. Svo er ég í Villibráð
eftir Elsu Maríu Jakobsdóttur sem
líka kemur út seinna á árinu.
Ég er að fara að gera mína eigin
seríu, sem ég skrifaði, og það lítur
jafnvel út fyrir að hún sé að fara
í tökur núna í sumar. Þetta er
ástarsaga, en ekki svona dæmigerð
sem endar á því að ástfangið par
leiðist inn í sólsetrið. Aðeins meira
raunsæi á ferð,“ segir Aníta.
„Þetta var búið að gerjast í mér
í fimm ár núna og í fyrra fór ég að
setja þetta í sjónvarpsseríuform.
Það hefur tekið mig dálítinn tíma
að færa mig inn á þetta svæði. Ég
hef verið feimin við að kalla mig
handritshöfund, var bara að dvelja í
ferlinu held ég, en þegar tilkynning
kom í Variety sem titlaði mig sem
slíkan varð það allt í einu raunveru
legt. Og auðvitað mikill heiður að
það skyldi vera tilkynnt, ekki síst
fyrir sjálfri mér, á þann hátt.“
Aníta segist hafa haft frábært
fólk í kringum sig í þessu verkefni.
„Glass River er að framleiða og nú
erum við að setja saman teymið í
kringum þetta. Katrín Björgvins
dóttir ætlar að leikstýra. Hún er
tiltölulega nýlega útskrifuð úr
konunglega danska skólanum og
mjög klár í sínu fagi. Ég verð í hlut
verki skapara, creator, og svo leik
ég aðalhlutverkið.“
Þessa dagana er verið að ráða
leikara í seríuna. Hlutverkin eru
ekki mörg og Aníta skrifaði þetta
með ákveðna leikara í huga. Þætt
irnir verða sex og eru 45 mínútur
hver, í dramaformi.
Að sögn Anítu tekur undir
búningur fyrir svona seríu mörg ár.
„Ég fór að vinna formlega með Glass
River síðasta sumar og ef allt gengur
eftir og tökur verða í sumar er hægt
að segja að hlutirnir gangi mjög
hratt fyrir sig, óvenjulega hratt.“
Munur á Evrópu og Ameríku
Hvaða áhrif hefur Covid haft á
kvikmyndaframleiðslu?
„Það er raunar mjög mismun
andi milli landa. Ég heimsótti
til dæmis Bandaríkin núna á
dögunum í fyrsta sinn í tvö ár. Í
Warner Bros. kvikmyndaverinu
var enginn. Þar hefur enginn verið
í tvö ár. Þetta var ótrúlegt, alveg
eins og að labba inn í draugabæ.
Hér á Íslandi er ég búin að
vera í verkefni eftir verkefni og
þarna áttaði ég mig á því hvað við
erum heppin hérna. Kvikmynda
iðnaðurinn hérna hefur getað
haldið áfram á fullri ferð. Frá því
að faraldurinn hófst hef ég verið í
fjórum verkefnum.
Auðvitað hefur þetta verið skrít
ið og maður hefur haft áhyggjur af
því að framleiðslu gæti verið hætt
á hverri stundu, aðalleikarinn eða
leikstjórinn farið í sóttkví og svo
framvegis, en þetta hefur gengið
alveg ótrúlega vel.“
Í Bandaríkjunum hefur þessu
verið þveröfugt háttað. Þar stopp
aði allt í langan tíma og fyrirtæki
eins og streymisveitur reyna hvað
þau geta að ná sér í efni. Í Evrópu
hefur þetta verið öðruvísi. Þar hafa
áhrifin verið meiri á kvikmynda
hátíðir.
„Þessar myndir sem ég hef verið í
eru listrænar myndir og þegar þær
eru tilbúnar eru þær frumsýndar á
kvikmyndahátíðum, fara síðan á
fleiri hátíðir og í almenna sýningu
í framhaldinu. Þannig eignast þær
áhorfendur og líf.
Það sem gerðist í Evrópu var að
kvikmyndahátíðirnar voru annað
hvort algerlega á vefnum eða féllu
niður. Því er mikill flöskuháls, upp
söfnuð framleiðsla, sem ekki hefur
komist almennilega í sýningu.
Þetta er alveg öfugt í Ameríku. Þar
er skortur á myndum.“
Ólíkar myndir
Í Berdreymi leikur Aníta Briem
nokkurs konar fimmta hlutverk, en
í aðalhlutverkum eru fjórir ungir
strákar og skila sínu frábærlega vel,
að sögn Anítu sem leikur Guðrúnu,
móður Adda, í myndinni.
„Guðmundur Arnar er stórkost
legur listamaður og tökumaðurinn
er Sturla Brandth Grøvlen, sem
var líka tökumaður á Druk. Hann
er einn færasti kvikmyndatöku
maðurinn í heiminum í dag og
það voru þvílík forréttindi að fá að
vinna með þessum tveimur.
Góðir tökumenn eru svo næmir
á frammistöðu leikara að þeir
verða nánast eins og persóna í sen
unni. Eins og þeir séu áhorfandinn
sem maður getur átt einhvers
konar dans með í augnablikinu.“
Aníta lék líka í frumraun Tinnu
Hrafnsdóttur sem leikstjóra
myndar í fullri lengd, Skjálfta.
„Þessar myndir eru mjög ólíkar.
Þær eru báðar eftir ótrúlega flotta
íslenska kvikmyndagerðarmenn.
Tinna er að gera sína fyrstu mynd
í fullri lengd. Myndin er byggð
á bók Auðar Jónsdóttur, Stóra
skjálfta, og Tinna tekur þetta alveg
snilldarlega. Kvikmyndin er allt
annað miðlunarform en bókin og
frásögnin er allt önnur.“
Skjálfti hefur verið sýnd á
nokkrum kvikmyndahátíðum og
fengið alveg feikilega góða dóma.
Lofuð í hástert og fjórar stjörnur.
„Það sem manni finnst samt vænst
um er að í dómunum sjálfum talar
fólk svo persónulega um hana,
talar um tilfinningalega ferðalagið
sem hver og einn upplifði, sem er
auðvitað alltaf misjafnt, því að
engar tvær mannssálir eru eins.“
Skjálfti var tekin upp fyrir
tveimur árum. Í kvikmyndunum
líður langur tími frá því að myndir
eru framleiddar þar til þær koma
fyrir augu áhorfenda.
„Maður veit aldrei hvernig
áhrifin verða og það hefur snert
mig djúpt að hún skuli hafa þessi
tilætluðu áhrif. Hún fjallar um
að það er ekki bara hægt að sópa
hlutum undir teppið. Ef fólk tekst
ekki á við hlutina stækka þeir og
verða eins og eitur í líkamanum
sem ekki fer fyrr en við þorum að
horfast í augu við það.
Stundum verða atburðir í okkar
lífi, eins og í þessu tilfelli að Saga
fær flogakast og missir minnið.
Þessir atburðir geta stundum virst
erfiðir eða óyfirstíganlegir, en
geta verið hin mesta gjöf. Orðið til
þess að við öðlumst hugrekki og
skýrleika til þess að horfast í augu
við og takast á við eitthvað sem við
höfum veigrað okkur við.
Fortíðin breytist ekki eða hverf
ur þótt við tölum ekki um hana.
Hún er hluti af okkur. Hluti af fjöl
skyldum okkar og getur þroskað
okkur og sameinað ef nálgast er af
kærleika og heiðarleika.“
Aníta er ánægð á Íslandi. „Mér
líður vel hérna. En auðvitað er ég
til í að skoða tækifæri til að vinna
að metnaðarfullum verkefnum
með góðu listafólki bæði hér og í
útlöndum.
Sögur með boðskap
Ég hef verið svo heppin að fá mörg
tækifæri hérna heima og hef haft
nóg að gera í verkefnum með stór
brotnu kvikmyndagerðarfólki. En
ég fann líka að ég varð aðeins að
kúpla mig út úr þessu í Ameríku.
Mér fannst ég verða að ná jarð
tengingu aftur og fékk tækifæri til
þess hérna.
Úti í Ameríku eru svo ótrúlega
miklir peningar í húfi. Myndir
kosta kannski 50100 milljónir
dollara í framleiðslu og ábyrgðin
er gríðarleg. Þá eru menn ekkert að
taka neina óþarfa áhættu.
En mér finnst áhrifaríkustu
myndirnar oft vera myndir eftir
leikstjóra sem eru að taka áhættu.
Þegar áhættan gengur upp getur
útkoman verið stórkostleg.
Þegar verið er að setja tugi millj
óna dollara í mynd vill stúdíóið
ekki taka neina áhættu. Það vill
leikara sem draga að áhorfendur
og handritið má ekki fæla neinn í
burtu eða móðga of mikið.
List getur hins vegar oft verið
óþægileg og krefjandi. Það er ekk
ert að því að búa til afþreyingu en
ég vil að sögurnar hafi merkingu
og boðskap,“ segir Aníta Briem. n
Áhrifaríkustu myndirnar þegar áhætta er tekin
Aníta Briem hefur gert garðinn frægan hér heima og beggja vegna Atlantshafs. MYNDIR/SAGA SIG
Aníta kann
betur við sagna-
hefð í Evrópu en
í Ameríku.
kynningarblað 11FÖSTUDAGUR 1. apríl 2022 KVIKMYNDIR MÁNAÐARINS