Fréttablaðið - 01.04.2022, Qupperneq 46
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
Um daginn skrifaði dóttir mín
ritgerð um túr og fátækt. Nánar
tiltekið um aðstæður stúlkna
og kvenna um allan heim sem
ekki hafa aðgang að tíðavörum.
Þar kemur fram að 500 milljónir
kvenna og stúlkna búa við tíðafá-
tækt, sem er skilgreind þannig
að þær hafa hvorki aðgang að
túrtöppum né dömubindum. Stór
hluti vandamálsins felst einnig í
litlu öryggi salernisaðstöðunnar, ef
þær hafa aðgang að henni, og þær
eru því berskjaldaðar fyrir ofbeldi.
Nú þykist ég vita að einhverjum
lesendum finnist sérkennilegt að
lesa orðin blæðingar, túr, túrtappar
og dömubindi á baksíðu Frétta-
blaðsins. Í því kjarnast einmitt
vandinn. Þrátt fyrir að næstum
helmingur mannkyns hafi
blæðingar, að meðaltali í fjörtíu ár,
virðast þær enn vera feimnismál
og víða í heiminum fylgir þeim
mikil skömm.
Bein áhrif vanþekkingar og
skammar vegna blæðinga eru
meðal annars að um helmingur
stúlkna í Indónesíu og Úganda
mæta ekki í skólann þegar þær eru
á túr og missa þannig af heilum
mánuði af kennslu á ári. Í Nepal,
Eþíópíu og á Indlandi er skömmin
svo mikil að konur eru víða sendar
í blæðingakofa þar sem þær eru
geymdar á meðan þær eru á
túr - eða að jafna sig eftir barns-
fæðingar.
Tíðafátækt er líka að finna
í löndunum nær okkur. Rúm-
lega 60% bandarískra stúlkna og
kvenna eiga iðulega í vandræðum
með að fjármagna kaup túrtappa
og dömubinda.
Hvernig er staðan á Íslandi? Það
er kominn tími til að bjóða ókeypis
tíðavörur á öllum salernum í
almannarýmum – og þá sérstak-
lega í skólum landsins – við hliðina
á klósettpappírnum. n
Á túr
Mjúk Stíf
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
QUICKREFRESH ™
ÁKL ÆÐI
Rennilás gerir það afar
einfalt að taka QuickRefresh
áklæðið af tempur dýnunni
og þvo.
ALLT ÞAÐ NÝJASTA FRÁ TEMPUR MEÐ 20% AFSLÆTTI
TEMPUR-DAGAR
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
A F S L ÁT T U R A F
T E M P U R R Ú M U M
20%
TEMPUR® Cloud línan
Hönnuð fyrir meiri mýkt
TEMPUR® Original línan
Hönnuð fyrir meiri stuðning
TEMPUR® Hybrid Línan
Hönnuð fyrir sneggra viðbagð
TEMPUR® Firm línan
Hönnuð fyir enn meiri stuðning
Mjúk Stíf
Mjúk Stíf
Mjúk Stíf Nýjar gerðir
og fjölbreytt úrval
heilsukodda
NÝBYGGINGAR
Í HAFNARFIRÐI
FJÖLDI EIGNA AÐ KOMA Í SÖLU
Í SKARÐSHLÍÐ OG HAMRANESI
BÆJARHRAUN 10 – HAFNARFIRÐI
SÍMI: 520-7500 - FASTEIGNASALA SÍÐAN 1983