Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 1
VERTU MEÐ ÍBINGÓGLEÐINNI
ALLT AÐ
1000
VINNINGAR Í BOÐI
FYRIR HEPPNA
BINGÓSPILARA!
Í KVÖLD KL. 19:00
MBL.IS/BINGO
TAKTU ÞÁTTFRÍTT
Kostar ekkert
að taka þátt!
Fylgstu með
/ @mblmeira
24 | 02 | 2022
GARÐABÆR
Skrifstofustjóri
á skrifstofu innri þjónustu
Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innri þjónustu
Skrifstofa innri þjónustu er ein af fjórum skrifstofum ráðuneytisins samkvæmt nýju skipuriti sem tekur gildi1. apríl nk. Skrifstofan ber ábyrgð á rekstri, fjármálum og innri þjónustu þess ásamt því að vera miðstöðgæða- og umbótastarfs innan ráðuneytisins.
Við leitum að öflugum leiðtoga sem er umbótadrifinn og hefur metnað og kraft til að taka þátt í að mótaog efla innri starfsemi ráðuneytisins í samvinnu við ráðuneytisstjóra og aðra stjórnendur. Við ráðningu íembættið verður horft til þátta sem skilgreindir hafa verið í stjórnendastefnu ríkisins, sem eru heilindi,leiðtogahæfni, árangursmiðuð stjórnun og samskiptahæfni.
Forsætisráðherra skipar í embættið til fimm ára. Þriggja manna hæfnisnefnd, skipuð af forsætisráðherra,metur hæfni umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra, sbr. reglur nr. 393/2012 um ráðgefandihæfnisnefndir. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við Félagháskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Um er að ræða fullt starf og er embættið laust frá 1. apríl nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækjaum. Umsóknir skulu hafa borist eigi síðar en 3. mars 2022.
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri í síma 545 8400, bryndis.hlodversdottir@for.is
Sótt er um starfið á Starfatorgi
Helstu verkefni
• Rekstur og fjármál ráðuneytisins
• Fjárlagagerð, framkvæmd fjárlaga og
áætlanagerð
• Stoðþjónusta við aðrar skrifstofur
• Eftirlit og umsjón með fjárlagaliðum
ráðuneytisins og stofnana þess
• Umbætur og þróun í innri starfsemi
ráðuneytisins
• Ábyrgð á gæðamálum, skjalavistun, málaskrá,
stafrænni þróun og innra upplýsingaflæði
• Umsjón með fasteignum
forsætisráðuneytisins og Stjórnarráðsins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistaragráða skilyrði
• Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að miðla
upplýsingum
• Þekking og reynsla á sviði fjármála og rekstrar
• Þekking á lögum um opinber fjármál er kostur
• Farsæl stjórnunarreynsla, helst innan opinberrar
stjórnsýslu
• Metnaður, framsýni og lausnamiðað hugarfar
• Farsæl reynsla af samhæfingarverkefnum og
umbótastarfi
• Góð tungumálakunnátta í ræðu og riti (íslensku,
ensku og einu öðru Norðurlandamáli)
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
F I M M T U D A G U R 2 4. F E B R Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 46. tölublað . 110. árgangur .
Lambalæri
í bláberjamaríneringu
1.557KR/KG
ÁÐUR: 2.289 KR/KG
Nauta ribeye-steikur
3.989KR/KG
ÁÐUR: 5.699 KR/KG
Grísabógsneiðar
899KR/KG
ÁÐUR: 1.499 KR/KG
30%
AFSLÁTTUR
40%
AFSLÁTTUR
32%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ GILDA 24.--27. FEBRÚAR
FRÁBÆR TILBOÐ
Í NÆSTU NETTÓ
EINLÆGUR
SKUGGA-
SVEINN
ÍSLENSK
MATAR-
MENNING
Í SÖGULEGU LJÓSI 12dddde 50
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Ragnheiður Birgisdóttir
Ríkisstjórnin samþykkti í gær til-
lögu heilbrigðisráðherra um að af-
létta öllum sóttvarnaaðgerðum inn-
anlands og á landamærunum á
miðnætti í nótt.
„Ég skal alveg viðurkenna að
það eru blendnar tilfinningar,“
sagði Willum Þór Þórsson eftir rík-
isstjórnarfundinn í gær. Annars
vegar gleði yfir því að daglegt líf
landsmanna væri að færast í fyrra
horf. „En svo hef ég áhyggjur af
heilbrigðisstofnunum. Þetta er
mikið álag, þrátt fyrir að þetta hafi
gengið lengi, bæði með útsjónar-
semi, mikilli vinnu og mikilli auka-
vinnu, þá verður þetta snúið næstu
daga og vikur fyrir heilbrigðis-
stofnanir.“
Bjarnheiður Hallsdóttir, formað-
ur Samtaka ferðaþjónustunnar,
sagði í gær að ferðaþjónustan fagn-
aði þessari ákvörðun sem muni án
efa auka áhuga erlendra ferða-
manna á að koma hingað til lands.
Fram undan sé að gera áætlanir
miðað við þessar breyttu forsend-
ur. „Nú reynum við að keyra allar
vélar á fullt,“ sagði hún.
Lítil hætta á landamærum
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir sendi heilbrigðisráðherra
tvö minnisblöð í vikunni. Í minn-
isblaði um afléttingar innanlands
segir m.a. að víðtækt samfélagslegt
ónæmi gegn Covid-19 sé helsta
leiðin út úr faraldrinum og mark-
mið um 80% hjarðónæmi ætti að
nást fyrir lok mars.
Í minnisblaðinu um afléttingar
aðgerða á landamærum segir Þór-
ólfur, að hann telji að íslensku
samfélagi stafi lítil hætta af þeim
smitum sem koma yfir landamærin
nema ef ný afbrigði komi fram er-
lendis sem hegði sér öðruvísi en
þau afbrigði sem þekkt eru.
Aðgerðum aflétt á miðnætti
- Heilbrigðisráðherra fagnar en hefur einnig áhyggjur af álagi á heilbrigðiskerfið
- Reynum að keyra allar vélar á fullt, segir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
Faraldur í tvö ár
» 115 þúsund Íslendingar hafa
greinst með veiruna
» 60 einstaklingar hafa látist
vegna Covid-19
» 1,7 milljónir sýna hafa verið
tekin á heilbrigðisstofnunum
innanlands
» 580 þúsund sýni hafa verið
tekin á landamærunum
» 166 reglugerðir hafa verið
settar vegna sóttvarna
MÖllu aflétt... »4 og 30
_ Áformað er að reisa nýja og full-
komna bálstofu á Hallsholti við
Gufuneskirkjugarð. Hún á að þjóna
jafnt trúuðum af öllum trúar-
brögðum og trúlausum af öllu land-
inu.
Bálstofan verður búin tveimur
rafknúnum brennsluofnum með
fullkomnum hreinsibúnaði sem
fjarlægir alla mengun. Hún á að
geta annað þörf fyrir bálfarir hér á
landi næstu 50 ár. »20
Teikning/A-arkitektar
Bálstofan Fyrsti áfangi er þegar risinn.
Bálstofa sem mun
geta þjónað öllum
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Leiðtogar aðskilnaðarsinna á svæðum þeirra í
austurhluta Úkraínu óskuðu seint í gærkvöldi
eftir aðstoð Vladimírs Pútíns Rússlandsfor-
seta, til að „aðstoða við að hrinda á bak aftur
árásum“ úkraínska hersins.
Þing Úkraínu hafði rétt áður samþykkt að
lýsa yfir neyðarástandi í landinu. Er því ætlað
að aðstoða yfirvöld að bregðast við ógninni sem
stafar af herliði Rússlands, sem var í gær sam-
an komið við landamærin og þótti reiðubúið til
innrásar á hverri stundu, samkvæmt mati
varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna.
Ráðuneytið hefur einnig gefið út nýjar við-
varanir um líkurnar á allsherjarinnrás Rússa.
Starfsmenn sendiráðs Rússlands í Kænu-
garði yfirgáfu borgina í gær, degi eftir að rúss-
neska þingið veitti forsetanum Vladimír Pútín
leyfi til að beita hernum handan landamær-
anna. Síðdegis í gær var gert ráð fyrir að fleiri
en 150 þúsund rússneskir hermenn biðu frek-
ari skipana umhverfis Úkraínu, í Rússlandi og
Hvíta-Rússlandi, aðeins fáeinum kílómetrum
frá landamærunum. »2, 29 og 30
AFP
Allt til
reiðu fyrir
innrás
- Óskuðu í gærkvöldi eftir
aðstoð Pútíns í Úkraínu
Vígbúnaður Rússneskur hertrukkur á leið sinni eftir vegi í Rostov-héraði í Rússlandi, sem á landamæri til vesturs að Donetsk-héraði í Úkraínu.