Morgunblaðið - 24.02.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.02.2022, Qupperneq 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Áformað er að reisa nýja og full- komna bálstofu á Hallsholti við Gufuneskirkjugarð. Hún á að þjóna jafnt trúuðum af öllum trúar- brögðum og trúlausum af öllu land- inu. Bálstofan verður búin tveimur rafknúnum brennsluofnum með full- komnum hreinsibúnaði sem fjar- lægir alla mengun. Hún á að geta annað þörf fyrir bálfarir hér á landi næstu 50 ár. Gert er ráð fyrir að brenndar verði 1.200 til 1.300 kistur á ári en afkastagetan er yfir 2.000 bálfarir á ári. Byggingin verður tæp- lega 1.200 m2 og þar verður m.a. geymslurými fyrir 40 líkkistur með möguleika á stækkun. Kirkjugarðaráð hefur kynnt skýrslu sína um nýju bálstofuna og kostnaðargreiningu fyrir innanrík- isráðuneytinu og Jóni Gunnarssyni innanríkisráðherra. Undirbúning- urinn hófst snemma á þessari öld hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófast- dæma (KGRP) en þeir hafa rekið fyrstu og einu bálstofu landsins frá árinu 1948. Bálförum hefur fjölgað mikið og á Norðurlöndum eru þær orðnar mikill meiri hluti útfara, ekki síst í borgum. Sömu þróunar verður vart hér en nú eru bálfarir 56% út- fara á höfuðborgarsvæðinu og rúm- lega 40% útfara á landsvísu. Gert er ráð fyrir að hlutfall bálfara haldi áfram að hækka hér. Vekur mikla athygli arkitekta KGRP efndu til samkeppni 2004- 2005 um hönnun þjónustubygginga og umhverfis þeirra á Hallsholti. Þar áttu að vera starfsmannahús, bál- stofa, líkhús og tvö athafnarými. Samkeppni var haldin samkvæmt reglum Arkitektafélags Íslands og bárust 18 tillögur. Verðlaunatillagan kom frá arkitektum Arkibúllunnar, nú A-arkitektum, og var samið við þá. Fyrsti áfangi, starfsmannahúsið, var tekinn í notkun 2008. Efnahags- hrunið kom í veg fyrir frekari fram- kvæmdir þá en nú er ætlunin að taka upp þráðinn á ný. Arkitektarnir Margrét Leifs- dóttir, Hrefna Björg Þorsteinsdóttir og Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir hjá A-arkitektum segja að bygg- ingin eigi að geta þjónað öllum landsmönnum óháð trúarbrögðum og lífsskoðunum. Hvergi verða fest upp trúarleg tákn og hægt verður að koma til móts við fjölbreytta útfar- arsiði. Arkitektarnir kynntu sér nýj- ar bálstofur í nálægum löndum og uppfærðu hönnunina í samræmi við þróunina. Þeir nutu m.a. ráðgjafar Ole Asp, forstjóra bálstofu í Vestfold í Noregi. Hann er einn fremsti sér- fræðingur Norðmanna á þessu sviði. Hönnun nýju bálstofunnar hefur vakið alþjóðlega athygli og verið um hana fjallað í fagtímaritum og bók- um eins og t.d. The Phaidon Atlas of 21st Century World Architecture. Starfsmannahúsið gefur góða hugmynd um það sem koma skal. Grágrýti úr lóðinni var höggið til og notað sem klæðning þeirra hluta hússins sem snúa að starfsmönnum. Í rýmum fyrir aðstandendur eru hvítir bogadregnir veggir. Notuð eru vistvæn og náttúruleg efni og náttúran er nálæg í gegnum gluggana. Myndlistarkonurnar Anna Hallin og Olga Bergmann hönnuðu listskreytingar. Góð aðstaða fyrir aðstandendur Þrjú athafnarými verða í bálstofu- hlutanum. Aðstandendur geta kvatt kistu ástvinar í kveðjurými. Þeir geta síðan verið í áhorfsrými vilji þeir vera viðstaddir þegar kistan er sett í ofninn. Loks munu aðstand- endur fá duftkerið afhent í sérstöku rými. Einnig verða kveðjutorg og af- hendingartorg við athafnarýmin þar sem aðstandendur geta safnast sam- an fyrir eða eftir athöfn. Ýmsar leiðir verða í boði varðandi ráðstöfun öskunnar. Hægt verður að jarðsetja duftker í grafarsvæði Gufuneskirkjugarðs, sem er í göngu- fjarlægð frá bálstofunni. Þá verður komið upp minningarlundi umlukt- um veggjum fyrir minningarskildi um látna og hólfum fyrir duftker (kólumbarium). Auk þess verður duftvangur þar sem hægt verður að dreifa ösku í trjálundi. Aðstaða verð- ur til að setja upp spjöld með nöfn- um þeirra sem þar fá hinstu hvílu. Sjálfseignarstofnun um rekstur VBS verkfræðistofa gerði áætlun um byggingarkostnað nýju bálstof- unnar. Þar var stuðst við ein- ingaverð starfsmannahússins sem þegar er risið og voru þau uppfærð til verðlags í dag. Heildarkostnaður byggingarinnar er áætlaður 1.244 milljónir króna. Þar af kosta brennsluofnarnir tveir 260 milljónir. HLH ráðgjöf gerði rekstr- aráætlun vegna nýju bálstofunnar. Árlegur rekstrarkostnaður með fjármagnsgjöldum er talinn verða 93 til 116 milljónir króna eftir því hve stór hluti byggingarkostnaðar verð- ur tekinn að láni. Kostnaður á hverja bálför á 1. rekstrarári miðað við 1.050 bálfarir er áætlaður frá 80-100 þúsund krónur eftir því hvert hlut- fall lánsfjár var í fjármögnun. Það eru sambærilegar tölur og í ná- grannalöndum okkar. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri KGRP og formaður Kirkjugarða- sambandsins, segir að kirkjugarð- aráð leggi áherslu á að eignarhald og rekstur bálstofu verði áfram á veg- um opinberra aðila. Reksturinn verði samvinnuverkefni ríkis, sveit- arfélaga og kirkjugarða landsins sem setji upp sjálfseignarstofnun um hann. Ekki er talið heppilegt að rekstur einu bálstofu landsins verði í höndum einkaaðila eða hagn- aðardrifinna félaga. Ný bálstofa fyrir alla landsmenn - Tillaga að nýrri og nútímalegri bálstofu - Jafnt fyrir trúaða af öllum trúarbrögðum og trúlausa - Vel hugsað fyrir þörfum aðstandenda - Tveir rafknúnir ofnar með fullkomnum hreinsibúnaði Morgunblaðið/Eggert Líkan Þeir Þórsteinn Ragnarsson forstjóri og Guðmundur Rafn Sigurðsson framkvæmdastjóri lyftu hlíf af líkani sem sýnir nýju bálstofuna og umhverfi hennar. Gluggarnir á byggingunni snúa að Gufuneskirkjugarði og Esjunni. Á Hallsholti Lengst t.v. er starfsmannahúsið sem er risið. Svo koma kveðju- torg og kveðjurými, ofna- og áhorfsrými, afhendingarrými og -torg. Kynning F.v.: Margrét Leifsdóttir, Þórsteinn Ragnarsson, Guðmundur Rafn Sigurðsson, Hrefna Björg Þorsteinsdóttir og Hólmfríður Jónsdóttir. Tölvuteikning/A-arkitektar Ofnarými Aðstandendur geta fylgt kistunni inn í ofnarýmið og séð þegar hún er sett í ofninn, kjósi þeir það. Allt ferlið verður opið ástvinum. Tölvuteikning/A-arkitektar Afhendingarrými Aðstandendur koma í rými þar sem duftker eru afhent. Hægt verður að jarðsetja duftkerin, setja þau í hólf eða dreifa öskunni. Hef flutt starfstöð mína úr Læknastöðinni í Glæsibæ, Álfheimum 74 íMeltingarklíníkina, Klíníkin, Ármúla 9. Viðtalsbeiðnum og beiðnum ummaga-og ristilspeglanir er svarað í síma 519 7000, Meltingarklíníkin (3). Ásgeir Theodórs læknir, M. Sci (EMPH) Sérgrein: Meltingarlækningar Hef flutt starfstöð mína úr Læknastöðinni í Glæsibæ, Álfheimum 74 íMeltingarklíníkina, Klíníkin, Ármúla 9. Viðtalsbeiðnum og beiðnum ummaga-og ristilspeglanir er svarað í síma 519 7000, Meltingarklíníkin (3). Tryggvi Björn Stefánsson, Sérfræðingur í almennum skurðlækningum og sjúkdómum í endaþarmi (Proktologia)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.