Morgunblaðið - 24.02.2022, Side 29

Morgunblaðið - 24.02.2022, Side 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022 Sendiráð Rússa á Íslandi sendi í gær frá sér tilkynningu til Morgunblaðs- ins, þar sem stjórnvöld í Úkraínu eru sökuð um að hafa framið stríðs- glæpi og glæpi gegn mannkyni gegn eigin þjóð. Þá sakar sendiráðið vest- ræn ríki um afneitun varðandi viður- kenningu Rússa á Donbass-héruð- unum, þar sem þau séu hrædd um að „allur sannleikurinn“ um þessa glæpi, sem vestræn ríki væru þá meðsek um, komi í ljós. Í tilkynningu sendiráðsins segir að stjórnarher Úkraínu hafi árið 2014 viljandi skotið með fallbyssum á borgir, sem voru á víglínunni við aðskilnaðarsinna í Luhansk-héraði, með þeim afleiðingum að rúmlega 2.000 manns fórust, þar af 35 börn. Í bréfinu segir að Úkraínumenn hafi skotið á sjúkrahús, líkhús, skóla og kirkjugarða. Þar segir einnig að frá desember 2021 hafi rúmlega 16 grafir fundist, bæði fjöldagrafir og fyrir einstak- linga, og að í einni þeirra hafi fundist líkamsleifar fjögurra mánaða gam- als barns. Í heildina hafi 292 lík verið rannsökuð og er meirihluti þeirra konur og gamalmenni. Í niðurlagi tilkynningarinnar seg- ir að vesturveldin séu að styðja ekki bara þjóðarmorð, heldur einnig mis- munun á því hvaða raddir megi heyrast, þar sem einungis hlið Úkra- ínumanna sé leyfð. „Íbúar Donbass- héraðanna, samkvæmt Vesturlönd- um, eru ómenni sem ljúga og rægja Úkraínustjórn. Hvar eru lýðræðið og mannréttindin?“ segir meðal ann- ars í tilkynningu Rússa. Ljósmynd/Rússneska sendiráðið Uppgröftur Rússneska sendiráðið segir að þessi mynd sýni uppgröft fjöldagrafar í þorpinu Sokogorovka. Saka Úkraínu um stríðsglæpi - Segjast hafa fundið fjöldagrafir Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld í Úkraínu kölluðu í gær út varalið sitt vegna yfirvofandi innrás- ar Rússa, en Bandaríkjamenn vör- uðu í gær stjórnvöld í Kænugarði við því að herlið Rússa væri nú í fullri viðbragðsstöðu fyrir allsherjarinn- rás. Áætla leyniþjónustustofnanir Bandaríkjanna að Rússar muni senn sækja fram á öllum vígstöðvum, en um 80% herafla þeirra við landa- mærin er nú í árásarstöðu. Liz Truss, utanríkisráðherra Breta sagði í gær að Kænugarður væri lík- legasta takmark innrásarinnar. Úkraínska þingið ræddi hvort lýsa ætti yfir neyðarástandi næstu 30 daga, en það myndi heimila héraðs- stjórnum og öryggissveitum að taka upp aukið eftirlit og setja upp vega- tálma. Risastór netárás lamaði heimasíð- ur stjórnvalda um eftirmiðdaginn í gær, en þar á meðal voru heimasíður úkraínska stjórnarráðsins og utan- ríkisráðuneytisins. Náði netárásin einnig til nokkurra banka, en þeir náðu að flytja netþjónustu sína ann- að til að verjast henni. Þá tilkynntu Rússar að þeir hygð- ust flytja allt starfsfólk sendiráða sinna frá Úkraínu til þess að „verja líf þeirra.“ Hafa sjónarvottar í ná- grenni sendiráða og ræðismannsbú- staða Rússa séð reyk leggja frá sendiráðunum undanfarna daga, þar sem verið var að brenna skjöl, en slíkt er jafnan gert þegar til stendur að loka sendiskrifstofum. Var rúss- neski fáninn dreginn niður við sendi- ráðið í Kænugarði í gær. Framtíð Evrópu undir Volodimír Zelenskí, forseti Úkra- ínu, fundaði í gær með leiðtogum Póllands og Litháen, og sagði að rík- in þrjú stæðu sameinuð í þeirri trú að framtíð öryggismála Evrópu lægi nú undir atburðum í Úkraínu. „Úkraína þarf tryggingar í varn- armálum sínum. Skýrar, nákvæmar og tafarlausar,“ sagði Zelenskí og bætti við að Rússland ætti að vera eitt þeirra ríkja sem myndi gefa skýr fyrirheit um öryggi Úkraínu. Áætlað er að um 200.000 hermenn séu nú undir vopnum í Úkraínuher, en fyrirskipun Zelenskís um að kalla út varaliðið mun þýða að um 250.000 varaliðsmenn á aldrinum 18 til 60 ára muni brátt verða kvaddir í herinn. Þá hvöttu stjórnvöld í Úkraínu til þess að þeir Úkraínumenn sem búa í Rússlandi yfirgefi land hið fyrsta, en um það bil þrjár milljónir Úkraínu- manna eru taldar vera búsettar þar. Hættustund fyrir heiminn Antonio Guterres, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði við því í gær að nú væri uppi hættu- stund fyrir allan heiminn, sem gæti leitt til neyðarástands sem myndi vara í mörg ár. Nágrannaríki Úkraínu í vestri hafa undirbúið sig fyrir flóttamanna- straum, en Linda Thomas-Green- field, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum áætlaði í gær að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu gæti leitt til þess að um fimm millj- ónir Úkraínumanna myndu fara á flótta. Stjórnvöld í Póllandi sögðu í gær við AFP-fréttastofuna að þau hefðu undirbúið sig um nokkra hríð vegna ástandsins við landamæri Úkraínu, en þau áætluðu í janúar síðastliðnum að Pólland gæti tekið á móti allt að einni milljón flóttamanna frá Úkra- ínu. Þá hafa Rúmenía, Ungverjaland og Slóvakía einnig undirbúið sig fyr- ir stóraukinn fjölda flóttamanna frá Úkraínu komi til allsherjarinnrásar Rússa, og telja Rúmenar sig geta tekið á móti allt að hálfri milljón manns. Rússar muni svara fyrir sig Vesturveldin hafa nú tilkynnt um fyrstu umferð refsiaðgerða vegna upphafs innrásar Rússa, og sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti í fyrra- kvöld að frekari aðgerðir væru í burðarliðnum ef innrásin héldi áfram. Meðal þeirra aðgerða sem Banda- ríkjamenn og Bretar hafa sett á eru hömlur á endurfjármögnun ríkis- skulda Rússlands, og Þjóðverjar hafa stöðvað framgang Nord Stream 2-jarðgasleiðslunnar. Tilkynnti Bi- den í gærkvöldi að Bandaríkjamenn myndu einnig leggja refsiaðgerðir á Nord Stream 2-verkefnið og helstu framkvæmdastjóra þar. Rússnesk stjórnvöld hétu því í gær að þau myndu svara refsiað- gerðum Bandaríkjamanna af fullri hörku. Sagði í tilkynningu rússneska utanríkisráðuneytisins að svar Rússa yrði ekki endilega samsvar- andi, en að það yrði „vel stillt og við- kvæmt fyrir Bandaríkin“. Þá sagði í tilkynningunni að Rúss- ar hefðu sannað að þeir gætu tak- markað skaðann af refsiaðgerðum vesturveldanna, sem hefðu engin áhrif á einbeittan vilja Rússa til að verja hagsmuni sína. Varalið kallað út vegna innrásar - Bandaríkjastjórn segir að árás Rússa geti komið á hverri stundu - Risastór netárás lamaði heimasíð- ur úkraínskra stjórnvalda - Búist við um fimm milljónum flóttamanna - Hóta svari við refsiaðgerðum AFP Samstaða Samstöðumótmæli með Úkraínu og gegn innrás Rússa voru í nokkrum borgum Evrópu í gær, þar á með- al París, Kaupmannahöfn og Berlín, þar sem Brandenborgar-hliðið fræga var lýst upp í fánalitum Úkraínu. AFP Herkall Úkraínskir hermenn eiga hér stund milli stríða við víglínuna í Luh- ansk. Varalið úkraínska hersins var í gær kallað út vegna innrásar Rússa. Viltu láta sumarhúsið vinna fyrir þig? Við höfum yfir 20 ára reynslu í útleigu sumarhúsa á Íslandi til traustra erlendra ferðamanna. Við gerum það eins einfalt og áreynslulaust og mögulegt er fyrir eigendur að leigja út sumarhúsið sitt. Við bjóðum persónulega ráðgjöf, frábært samstarf og hnökralausa útleigu á húsinu þínu. Kynntu þér málið nánar á viator.is/eigendur Við sjáum um öll samskipti við gesti Öflug markaðssetning á erlendum mörkuðum Það kostar ekkert að vera á skrá Grensásvegur 5, 108 Reykjavík info@viator.isViator 544 8990

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.