Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 24.02.2022, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 24.02.2022, Qupperneq 56
SealyWASHINGTON heilsurúm með classic botni Sealy SEATTLE heilsurúm með classic botni Sealy PORTLAND heilsurúm með classic botni Virkilega vönduð dýna og hentar fólki á öllum aldri. Washington heilsudýnan er með einstaklega vönduðu, tvöföldu svæðaskiptu pokagormakerfi, kantstyrkingum og vandaðri yfirdýnu sem færir þér enn meiri þægindi og stuðning við líkamann. Ótrúlega vönduð og góð dýna á frábæru verði. Fæst í 160/180/200x200 og 180x210 cm. Verðdæmi 160 x 200 cmm/Classic botni og löppum Fullt verð: 269.900 kr.Tilboð: 215.920 kr. Verðdæmi 180 x 200 cmm/Classic botni og löppum Fullt verð: 194.900 kr.Tilboð: 155.920 kr. Virkilega vönduð dýna. Millistíf heilsudýna með pokagormum sem gefa fullkominn stuðning. Henni er skipt upp eftir svæðum þannig að það er meiri stuðningur þar sem við erum þyngri eins og öxlum ogmjöðmum. Náttúrulegt Talalay latex í bland við mismunandi svamptegundir gefa henni gott loftflæði. Virkilega vönduð dýna sem hentar fólki á öllum aldri. Fæst í 120/140/160/200 x 200 cm. Gæði á góðu verði. Portland er með góðum og sterkum pokagormum og kant- styrkingum. Millistíf dýna með pillow top úr mismunandi stífum svamplögum og trefjalagi. Mýkt á móti stífum og góðum gormum. Mjúkt og gott bómullaráklæði sem andar einstaklega vel. Dýna sem hentar öllum sem vilja gæða vörumerki og vandaða vöru. Fæst í 120/140/160/200 x 200 cm. Verðdæmi 120 x 200 cmm/Classic botni og löppum Fullt verð: 160.900 kr.Tilboð: 128.720 kr. www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Staðan er einfaldlega þannig að leigusamningurinn minn rennur út 30. apríl og einhverra hluta vegna hafa Samkaup þrýst á Reiti að end- urnýja hann ekki. Reitir hafa lúffað og ég er því á útleið,“ segir Halldór Þórhallsson matreiðslumaður. Hann hefur um árabil rekið vinsæla matsölu í Mjódd í Breiðholti, Hjá Dóra, en með vorinu er komið að leiðarlokum þar. Snitselinn vinsælastur „Hérna hef ég verið síðan 1996. Það er ágætisending enda hefur mér liðið vel og þetta hefur gengið vel,“ segir Dóri en matsalan er í anddyri verslunar Nettó. Dóri selur heimilismat eftir vigt og hefur notið mikilla vinsælda meðal íbúa í Breið- holti, iðnaðarmanna og annarra vinnuhópa sem vilja gera vel við sig í hádeginu. Auk þess grípa margir bakka með mat á heimleið síðdegis þegar sá gállinn er á þeim. „Það er alltaf nóg að gera. Meira að segja miðað við Covid-aðstæður undan- farið. Við höfum haldið okkar og kvörtum ekki yfir því.“ Dóri er með átta heita rétti á boðstólum sem allir eru eldaðir á staðnum, svo sem kjötbollur, svína- hrygg með pöru, fiskibollur, la- sagna og lambalæri. „Við fáum alltaf nýja ýsu á hverj- um morgni og því er fiskur í raspi alltaf vinsæll. Eins rifjasteikin. En allra vinsælastur er samt snitselinn sem ég er með með á miðviku- dögum og föstudögum,“ segir Dóri. Hann segist ekki vita hvað tekur við hjá sér eftir að matsölunni í Mjódd verður lokað í apríllok. „Nei, ég get ekkert sagt til um það að neinu gagni. Við verðum bara að sjá hvernig landið liggur þegar fram í sækir. Ég held ég byrji bara á að taka mér frí til að ná áttum. Það verður fínt að fá frí. Svo sjáum við hvort eitthvað nýtt verður í kortunum, það er ekkert í sjónmáli nú.“ Eldað fyrir þrjár kynslóðir Dóri hefur fyrir löngu eignast traustan hóp viðskiptavina sem munu sakna viðurgjörningsins í Mjódd. „Það eru allir drullufúlir, það er stutta svarið,“ segir Dóri þegar hann er spurður um hvernig kúnnarnir hafi tekið tíðindunum. „Hérna hef ég horft upp á nýjar kynslóðir taka við af þeim eldri. Foreldrar hafa komið hingað með krakkana sína og nú eru þessir krakkar farnir að koma sjálfir með sín börn. Það segir dálítið um hversu langan tíma maður er búinn að vera hérna,“ segir Dóri. Morgunblaðið/Eggert Kveðjustund Halldór Þórhallsson matreiðslumaður hefur staðið vaktina í Mjódd frá 1996 en Hjá Dóra lokar í vor. Dóri á útleið í Mjódd og kúnnarnir drullufúlir - Vinsælli matsölu úthýst - Kjötbollur og snitsel í 25 ár Suttungur nefnist ný- stárleg ljóðlistahátíð sem haldin verður í kvöld, 24. febrúar, í Saln- um í Kópavogi og hefst kl. 20. Á henni er fram- úrstefnulegri nálgun á tungumálið fagnað og er hátíðin hugsuð sem vett- vangur til að efla til- raunakennda ljóðlist hvort heldur er í framsetningu, inntaki, formi eða með þverfaglegri nálgun þar sem notast er við hljóð, vídeó, tónlist, gjörninga eða annað. Suttungur var fyrst hald- inn á netinu fyrir tveimur árum og er nú haldinn í annað sinn. Hátíðin er að þessu sinni liður í Dögum ljóðsins og koma fram þau Ásta Fanney Sigurðardóttir, Björk Þor- grímsdóttir, Brynjar Jóhannesson, Elías Knörr, Kristín Ómarsdóttir, Kött Grá Pjé (Atli Sigþórsson), Ófeigur Sigurðsson & Kristín Karólína, Ragnar Helgi Ólafsson, Sjón og Sólbjört Vera Ómarsdóttir. Ásta Fanney er skipuleggjandi og listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Tilraunakennd ljóðlist á Suttungi FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 55. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. „Við höfum æft tvisvar á dag síðan á mánudag og sá tími hefur nýst vel. Flestir í hópnum hafa verið að vinna saman reglulega síðastu árið en ég og Pavel [Ermol- inskij] erum orðnir hálfgerðir nýliðar aftur. Við höfum nýtt vikuna til að setja okkur vel inn í hlutina,“ segir Haukur Helgi Pálsson m.a. en hann leikur sinn fyrsta landsleik í þrjú ár þegar Ísland mætir Ítalíu í kvöld. »47 Haukur Helgi og Pavel aftur orðnir hálfgerðir nýliðar í landsliðinu ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.