Fréttablaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 28
Spennandi störf hjá Arctic Fish
Menntunar- og hæfniskröfur:
Leyfis- og rannsóknarstjóri mun hafa umsjón með og bera ábyrgð á framkvæmd leyfismála fyrirtækisins. Í því felst m.a. umsjón með umsóknum
um ný eldisleyfi, endurnýjanir leyfa og breytingar þeirra, stefnumótun í leyfismálum og ráðgjöf til stjórnenda sem og ábyrgð á innri og ytri
rannsóknum félagsins og dótturfélaga. Starfsstöðin getur verið sveigjanleg en félagið er með höfuðstöðvar á Ísafirði en starfsstöðvar í
Dýrafirði, Patreksfirði, Tálknafirði og á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225 og Daníel Jakobsson,
framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, í síma 820 6827.
• Stjórnun og eftirfylgni leyfisumsókna
• Samhæfing og stjórnun ytri ráðgjafa og verktaka vegna leyfismála
• Vikulegir áherslufundir, stefnumótun og stöðuuppfærslur
leyfismála til stjórnenda
• Ráðgjöf til starfsfólks
• Samskipti við yfirvöld vegna leyfismála
• Umsjón með rannsóknum og umhverfisvöktun
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu
lokinni. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um störfin.
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði náttúruvísinda
með áherslu á líffræði, vistfræði eða umhverfisfræði
• Reynsla og þekking úr sjávarútvegi og/eða fiskeldi sem og af
samskiptum við stjórnvöld er kostur
• Góð hæfni í ritaðri íslensku og ensku er kostur
• Þekking á norðurlandamáli öðru en íslensku er kostur
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að skila góðu starfi
• Stundvísi, áreiðanleiki og áhugi á verkefninu
Leyfis- og rannsóknarstjóri
Arctic Fish óskar eftir að ráða til sín tvo einstaklinga í spennandi störf, annars vegar leyfis- og rannsóknarstjóra og hins vegar sölu- og
flutningafulltrúa. Bæði störfin heyra undir framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar.
Arctic Fish framleiðir hágæða lax í seiðeldisstöð í Tálknafirði og sjókvíum á Vestfjörðum. Markmiðið er að halda áfram að fjárfesta og
byggja upp sjálfbæran og arðbæran rekstur, þar sem eldið er í sátt við samfélagið og umhverfið. Arctic Fish telur að lykillinn að velgengni
fyrirtækisins muni byggja á öflugu starfsfólki sem leggur metnað sinn í að bjóða besta mögulega lax frá Íslandi. Höfuðstöðvar fyrirtækisins
eru á Ísafirði. Nánari upplýsingar má finna á: www.arcticfish.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Viðkomandi kemur til með að sjá um tengsl og samhæfingu fyrirtækisins við sölu- og flutningafyrirtæki. Starfsstöðin er í Ísafjarðarbæ og
getur starfshlutfall verið sveigjanlegt frá 50-100%.
• Samhæfing og tengsl við sláturhús, sölu- og flutningafyrirtæki
• Gerð söluskýrslna og greining á sölu
• Umsjón og afgreiðsla endurkrafna vegna sölureikninga
• Eftirlit með sölu- og flutningsreikningum og undirbúningur
reikningagerðar fyrir seldar afurðir
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Menntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði eða sambærilegt
• Reynsla sem nýtist í starfi
• Reynsla og þekking úr sjávarútvegi
• Góð tölvukunnátta, s.s. excel
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að skila góðu starfi
• Stundvísi, áreiðanleiki og áhugi á verkefninu
Sölu- og flutningafulltrúi
4 ATVINNUBLAÐIÐ 16. apríl 2022 LAUGARDAGUR