Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 88
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Margrétar Erlu
Maack
n Bakþankar
Blótsyrði eru í miklu uppá-
haldi hjá mér og ég ber mikla
virðingu fyrir fólki sem blótar
fallega og hressilega, með
innistæðu að sjálfsögðu. En
það bar til um þessar mundir
að prestur einn tók upp lykla-
borð og blótaði þeim sem
sitja við stjórnvölinn því nú
á að senda fjölda fólks aftur
„heim,“ heim þangað sem
jafnvel er ekkert heima lengur.
Íslenskan er svo mögnuð,
hún endurspeglar gildin
okkar og þó hún þróist ekki
nægilega hratt á sumum
sviðum þá höfum við þennan
lúxus: Orðin tvö, heimur og
heima, eru af sama stofni.
Á dönsku eru það hjemme
og verden, á ensku home
og world og á spænsku casa
(hús) og mundo. Það var
pabbi minn sem benti mér á
þetta, og það í predikun. Hér
ritar prestsdóttir sem á erfitt
með þegar prestar eru settir
á hærri siðferðilegan stall en
aðrir. Sömu kaffistofur og hvá
þegar prestar skilja við maka
sína eru nú að hvá því að
prestur gagnrýndi, vissulega
harkalega, að senda mann-
eskjur „heim“.
Blæbrigðaríka tungumálið
okkar á það til að f lækjast
fyrir og við missum okkur í
orðunum sjálfum en ekki í því
sem þau gagnrýna, og þetta
virðist vera orðið meira sport
og keppni en netskraflið.
Þegar allt kemur til alls er
niðurstaðan þessi:
Öll stríð eru stríð gegn
börnum. Og ef það fær þig
ekki til að blóta og missa
stjórn á skapi þínu, þá er eitt-
hvað að þér. Opnum hjartað.
Ef það er hjartarúm, þá er
húsrúm. n
Heima í heimi
Sigraðu
grillveisluna!
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is̵
VEITINGASTAÐURINN
Nú á matseðli ̵
gríptu tækifærið
995,- 1.095,-
Samloka með
rifnu grísakjöti
með sætkartöflumús
og hrásalati
Kjúklingalæri
í stökkum hjúp
með frönskum
og hrásalati
©
Inter IKEA System
s B.V. 2022
Ævintýri spýtustráksTryggðu þér
miða strax!
borgarleikhus.is
Sýningar haustsins eru komnar í sölu