Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 12
Ég hita upp vistarver-
urnar þar sem lúsina er
að finna. Hún drepst
við 28 gráður.
Guðmundur Óli Scheving,
meindýraeyðir
Á árunum 2000–2020 fram-
leiddu Bandaríkjamenn fleiri
en 139 milljónir skotvopna og
eru Bandaríkin eina þjóðin þar
sem byssur í eigu almennra
borgara eru fleiri en borgar-
arnir sjálfir.
69
þúsund byssur voru
skráðar á Íslendinga
árið 2019, eða 31 byssa
á hverja hundrað íbúa.
Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn fimmtudaginn
2. mars 2017 kl. 16.00 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura Víkingasal.
Dagskrá aðalfundar
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Að loknum aðalfundarstörfum mun Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH kynna
áfangana í Hringbrautarverkefninu og Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt hjá hönnunarteyminu
Corpus3 segja frá hönnun meðferðarkjarna nýbygginga Landspítala við Hringbraut.
Lokaorð flytur Nichole Leigh Mosty alþingismaður og formaður velferðarnefndar Alþingis.
Stjórnin.
Aðalfundur landsamtakanna Spítalinn okkar
verður haldinn þriðjudaginn 31. maí 2022 kl.
16.00 á Hótel Nordica.
Dagskrá
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Að loknum aðalfundarstörfum verður stutt málþing. Fyrirlesarar eru:
Staðan á Hringbrautarverkefninu og sýnir myndband:
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf.
Verkefni framundan hjá Landspítala: Lilja Stefánsdóttir,
deildastjóri Hringbrautarverkefnisins hjá Landspítala
Nýtt húsnæði geðþjónustu Landspítala - tækifæri og
þjónusta við sjúklinga: Nanna Briem, forstöðumaður
geðþjónustu Landspítala
Stjórn Spítalans okkar
A Ð A L F U N D U R
Byssuofbeldi jókst í Banda-
ríkjunum í heimsfaraldr-
inum og eru Bandaríkin
eina landið í heiminum þar
sem byssur í eigu almennra
borgara eru fleiri en borgar-
arnir sjálfir. Víða hafa atburð-
ir líkt og skotárásin í Texas
á þriðjudag orðið til þess
að vopnalög eru hert.
birnadrofn@frettabladid.is
BANDARÍKIN Átján ára piltur skaut
nítján nemendur og tvo kennara
til bana í barnaskóla í borginni
Uvalde í Texas á þriðjudag. Árásin
er sú mannskæðasta í Bandaríkj-
unum frá árinu 2012 þegar Adam
Lanza skaut 26 manns til bana í
Sandy Hook-skólanum í Connecti-
cut.
Byssuof beldi í Bandaríkjunum
jókst í heimsfaraldrinum og sam-
k væmt Heilsuver ndarstof nun
Bandaríkjanna (Center for Disease
Control and Prevention) voru
dauðsföll af völdum skotvopna
fimmtán prósentum f leiri árið
2020 en árið á undan. Aldrei hafa
fleiri látist vegna áverka af völdum
skotvopna en árið 2020 þegar 45.222
Bandaríkjamenn létust af þeim
völdum. Meðal látinna voru 4.368
ungmenni, það eru að meðaltali tólf
börn og unglingar á hverjum degi.
Á árunum 2000–2020 framleiddu
Bandaríkjamenn fleiri en 139 millj-
ónir skotvopna og eru Bandaríkin
eina þjóðin þar sem byssur í eigu
almennra borgara eru f leiri en
borgararnir sjálfir. Í landinu er
skráð hæsta hlutfall byssueignar á
almenna borgara í heiminum, 120,5
byssur á hverja hundrað íbúa.
Árið 1996 létust sextán börn og
kennara þeirra í skotárás í skóla í
Dunblane í Skotlandi. Ríkisstjórnin
bannaði í kjölfarið allar skamm-
byssur í einkaeigu á innan við ári og
er nú vopnalöggjöf í Bretlandi með
þeim strangari í heiminum.
Í f leiri löndum heimsins hafa
skotárásir haft í för með sér breyt-
ingar á vopnalöggjöf. Eftir skotárás
í Porth Arthur í Ástralíu árið 1996
þar sem maður myrti 35 manns og
slasaði enn f leiri var sett á bann
við eign hraðskotabyssa og hagla-
byssa. Þá voru einnig gerð upptæk
hundruð þúsunda öf lugra vopna
í aðgerðum lögreglu. Á næstu tíu
árum fækkaði andlátum tengdum
byssum í Ástralíu um meira en 50
prósent og hafa breytingarnar oft
verið nefndar sem möguleg fyrir-
mynd að herðingu skotvopnalaga
í Bandaríkjunum.
Árið 2021 voru nærri fjögur þús-
und skammbyssur skráðar í einka-
eigu á Íslandi. Alls áttu Íslendingar
70 þúsund lögleg skotvopn á síð-
asta ári og voru haglabyssur lang-
vinsælastar.
Sumarið 2019 voru 69 þúsund
byssur skráðar á Íslendinga svo
skráðum byssum fjölgaði um þús-
und á tveimur árum. Samkvæmt
úttekt frá árinu 2018 á fjölda skot-
vopna í umferð í heiminum sem
unnin var af Small Arms Survey
var Ísland í tíunda sæti yfir fjölda
skotvopna í eigu almennings. Í
Tólf börn látist dag hvern vegna skotvopna
Átján ára maður réðst inn í barnaskóla í Texas á þriðjudaginn og myrti nítján
nemendur og tvo kennara með skotvopni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ser@frettabladid.is
LÍFRÍKI Veggjalúsum fjölgar ört á
Íslandi eftir að hafa fækkað verulega
á farsóttartímum. Aukin tímgun
þeirra er einkum rakin til æ f leiri
erlendra ferðamanna.
„Það er klárt mál að þeim hefur
fjölgað snarlega,“ segir Guðmundur
Óli Scheving meindýraeyðir sem fær
núna beiðnir um það vikulega – og
stundum oftar – að eyða óværunni
sem er blóðsuga og leggst á fólk með
óþægilegum afleiðingum.
Veggjalúsin er vanalega um þrír
millimetrar en stækkar að miklum
mun – og helmingar sig hæglega –
þegar hún sýgur blóð úr mönnum.
„En hún fer í manngreinarálit,“
segir Guðmundur Óli og meinar að
lúsin sækist í ákveðna blóðflokka,
öðrum fremur, án þess að fyrir liggi
rannsóknir á því hvaða samsetning
á blóði er lúsinni lystugust.
Veggjalús var að sögn Guð-
mundar landlæg á árum áður þegar
húsakynni íslenskrar alþýðu voru
bágbornari í samanburði við seinni
tíma, en með bættum húsakosti á
seinni hluta síðustu aldar átti hún
orðið æ erfiðara uppdráttar.
„En nú berst hún hingað til lands
með ferðamanninum og við verðum
víst bara að taka því,“ segir Guð-
mundur Óli og nefnir helstu varnir.
„Ég hita upp vistarverurnar þar
sem lúsina er að finna. Hún drepst
við 28 gráður, en eggin eru meira
vandamál, því það þarf að hita her-
bergin upp í 50 gráður til að fyrir-
koma þeim,“ segir Guðmundur Óli. n
Mikil fjölgun veggjalúsa hér á landi
Guðmundur Óli Scheving segir veggjalýs snúnar aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Veggjalús velur fórnarlömb eftir
blóðflokkum.
Heimild: Johns Hopkins, handvopnakönnun, dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna
Byssueign almennra borgara
© GRAPHIC NEWS
Kanada
Kýpur
Líbanon
Austurríki
Noregur
Nýja-Sjáland
Svíþjóð
Portúgal
Frakkland
Þýskaland
Ástralía
Litháen
Belgía
Tékkland
Rússland
Norður-Írland
Kólumbía
Danmörk
Suður-Afríka
Búlgaría
Írland
Ísrael
Indland
Bretland
Japan
Bandaríkin
6
5
4
3
2
1
0
Vopnaframleiðsla innanlands (milljónir,
fyrir utan skammbyssur og haglabyssur)
Skammbyssur
Riar
1,599,890
5,509,151
2,760,263
1,005,198
Byssueign almennra borgara (Skotvopn á hverja 100 íbúa e¤ir völdum löndum)
2000 2005 2010 2015 2020
12.7
120.5
12.5
12.3
11.0
10.1
9.9
9.7
8.4
7.2
6.7
5.3
2.7
0.3
19.6
21.3
23.1
26.3
28.8
30.0
31.9
34.0
34.7
19.6
16.7
14.5
13.6
Að meðaltali létust 124 Bandaríkjamenn af völdum byssuo¦eldis á hverjum degi árið 2020 –
það er ¨mmtán prósenta aukning miðað við árið 2019 – og mesta byssuo¦eldi sem nokkurn
tímann hefur mælst samkvæmt miðstöð John Hopkins um lausnir við byssuo¦eldi.
2020: Byssuo¦eldi í Bandaríkjunum jókst í
Covid-19 faraldrinum. 45.222 Bandaríkjamenn
– þar af 4.368 ungmenni- létust af völdum
áverka af skotvopnum.
Sameinuðu
arabísku furstad.
úttektinni kemur fram að á Íslandi
sé 31 byssa á hverja 100 íbúa.
Til þess að eignast byssu löglega
á Íslandi þarf einstaklingur að fá
skotvopnaleyfi. Til að fá slíkt leyfi
þarf einstaklingurinn að sækja
skotvopnanámskeið og vilji ein-
staklingurinn nýta byssuna til
veiði þarf hann einnig að sækja
veiðikortanámskeið. Sótt er um
leyfi fyrir skotvopninu hjá Leyfa-
deild lögreglunnar. n
12 Fréttir 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ