Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 40
Sálfræðingur
Skólaþjónusta Árborgar auglýsir lausa stöðu sálfræðings.
Leitað er að einstaklingi með brennandi áhuga á starfi í
skólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar
og samþættrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla.
Lögð er áhersla á snemmtækan stuðning, þverfaglegt sam-
starf á fjölskyldusviði og ýmissa stofnana, m.a. um þróun
úrræða fyrir börn og foreldra. Í Sveitarfélaginu Árborg búa
um 11000 íbúar þar af um 2300 börn í leikskólum og grunn-
skólum.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• ráðgjöf til nemenda, foreldra og kennara,
m.a. v/hegðunar- og tilfinningavanda barna
• þverfaglegt samstarf um málefni barna í leik-
og grunnskólum
• sálfræðilegar skimanir og greiningar
• fræðsla og námskeið fyrir foreldra, börn og starfsfólk
skóla
Menntunar- og hæfniskröfur:
• kandidatspróf (cand. psych. gráða) í sálfræði
og starfsleyfi frá Landlækni
• reynsla af starfi með börnum æskileg
• góðir skipulagshæfileikar
• hæfni í mannlegum samskiptum
• góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar:
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2022. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og við-
komandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 70-100%. Vakin er
athygli á stefnu Sveitarfélagsins Árborgar að jafna hlutfall
kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu og að vinnustaðir
endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Björk Brynhildardóttir,
deildarstjóri skólaþjónustu, margretbbr@arborg.is, sími
480-1900. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, ásamt
greinargóðum rökstuðningi fyrir hæfni í starfið og er skilað
í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins, starf.arborg.is
Starfsmenn í kjötvinnslu óskast.
Vegna aukinna umsvifa óskum við
eftir að ráða í eftirtaldar stöður:
• Kjötiðnaðarmann (Gæðastjóra)
• Mann vanann úrbeiningu
Upplýsingar veita:
Sigurður – 8923482 – svg@kjotsmidjan.is
Bryndís – 8693077 – bryndis@kjotsmidjan.is
Marteinn – 8693636 – matti@kjotsmidjan.is
Kjötsmiðjan ehf. / Fosshálsi 27-29 / 110 Reykjavík
Spennandi tækifæri
hjá Símanum
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní næstkomandi.
Aðeins er tekið við umsóknum í gegnum siminn.is/storf.
Fyrirspurnum skal beint á netfangið mannaudur@siminn.is.
Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við alla til að sækja um; óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á uppsetningu á nýjum vörum og þjónustu í reikningagerðarkerfum Símans
• Ábyrgð á reikningagerð, útgáfu og afhendingu reikninga til viðskiptavina
• Starfinu fylgja mikil samskipti, bæði við innri og ytri samstarfsaðila
Hæfni og reynsla
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
• Reynsla af verkefnastýringu er kostur
Persónulegir eiginleikar
• Greiningarhæfni og brennandi áhugi á reikningagerð
• Metnaður og frumkvæði til að ná árangri í starfi
• Sjálfstæð og framúrskarandi samskiptahæfni
Rekstrarstjóri reikningagerðar
Síminn leitar að öflugum einstaklingi í starf rekstrarstjóra reikningagerðarkerfa Símans.
Rekstrarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri á reikningagerðarkerfum ásamt umsjón og
eftirliti með flæði gagnastrauma og réttleika gagna en í því felst meðal annars tekjueftirlit
og greining frávika.
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyingar sem vill laða til sín
framúrskarandi starfsfólk. Við leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi
og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar. Við bjóðum aðgang að framúrskarandi mötuneyti,
fyrsta flokks kaihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki.
Óskar eftir fólki til starfa
í veitingasal.
Leitum eftir jákvæðu fólki á
framúrskarandi veitingastað.
Með frábærum starfsanda.
Sendi fyrirspurnir eða umsókn
á snaps@snaps.is merkt atvinna.
intellecta.is
RÁÐNINGAR
8 ATVINNUBLAÐIÐ 28. maí 2022 LAUGARDAGUR