Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 19
VERKFRÆÐISTOFNUN Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík
+354 525 4000 · hi@hi.is · www.hi.is Nánar á hi.is
Meistaradagur
Meistaranemar í verkfræði og tölvunarfræði við Háskóla Íslands hafa þurft að kljást við erfiðar áskoranir
á stærstum hluta námstíma síns sem nú er að baki.
Bjartari tímar blasa við þessum duglegu nemendum sem von bráðar bætast við í myndarlegan hóp
verkfræði- og tölvunarfræðinga á Íslandi.
Afrakstur námsins birtist meðal annars í fjölda meistaraverkefna sem hafa nú verið kynnt og varin.
Veggspjaldakynning á lokaverkefnum þessara nemenda verður haldin á Meistaradegi
Verkfræðistofnunar þriðjudaginn 31. maí kl. 15:00 í Grósku, Bjargargötu 1.
Verkfræðistofnunar
Þriðjudaginn 31. maí, kl. 15:00 í Grósku, Bjargargötu 1
Öll velkomin
Dagskrá
15:00 Opnun
Gunnar Stefánsson, formaður stjórnar Verkfræðistofnunar HÍ
15:05 Ávarp sviðsforseta
Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
15:10 Ávarp frá Verkfræðingafélagi Íslands
Svana Helen Björnsdóttir, formaður stjórnar Verkfræðingafélags Íslands
15:20 Hvatningarorð til meistaranema í verkfræði og tölvunarfræði
Erlingur Brynjúlfsson, Controlant
15:45 Opnun veggspjaldasýningar
Nemendur standa við veggspjöld sín og svara spurningum dómnefndar og gesta
16:30 Verðlaunaafhending og veitingar
Dómnefnd kynnir verðlaunahafa þriggja bestu veggspjaldanna
– Verðlaun í boði Verkfræðingafélags Íslands