Fréttablaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 2
gar@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Félagið Arctic Therapeut
ics ehf. sem rekur hraðprófunina
covidtest.is hagnaðist um 127,2
milljónir króna í fyrra. Fyrirtækið
velti alls 399,7 milljónum króna
það ár. Félagið hefur ekki áður haft
tekjur.
Eins og öðrum fyrirtækjum í
sömu starfsemi greiddi ríkið um
skeið Arctic Therapeutics fjögur
þúsund krónur fyrir hvert hraðpróf
sem einstaklingar hér búsettir fóru
í. Þessar greiðslur frá ríkinu voru
felldar niður 1. apríl síðastliðinn.
Þá höfðu Sjúkratryggingar Íslands
greitt einkafyrirtækjum í hraðpróf
unum vel yfir einn milljarð króna.
Gjaldið sem Arctic Therapeutics
tekur fyrir hraðpróf í dag nemur
6.980 krónum.
Að undanförnu hafa það helst
verið erlendir ferðamenn á leið
utan sem nýtt hafa þjónustu félags
ins, sem stendur til boða í Hörpu og
á Akureyri.Eigendur félagsins eru
Hákon Hákonarson og Bandaríkja
mennirnir David H. Moskowitz og
Philip Harper. n
Hraðpróf Arctic Thera-
peutics kostar í dag
6.980 krónur.
Fjögurra ára bið loks að ljúka
Ökumenn í miðbænum geta bráðlega ekið Lækjargötuna á ný með hefðbundnum hætti. Í maí árið 2018 hófust framkvæmdir við hótel Íslandshótela,
sem leiddu til þess að Lækjargatan var þrengd og hafa orðið tafir æ síðan á umferð. Nú er þeim að ljúka og allt að færast í fyrra horf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Haukur Hauksson ferðaðist á
átakasvæði í Úkraínu í boði
rússneskra stjórnvalda. Hann
gefur lítið fyrir vestrænan
fréttaflutning af stríðinu og
kveðst óhræddur við að deyja.
tsh@frettabladid.is
Ú K R A Í N A Fjölmiðla maðu r inn
Haukur Hauksson er um þessar
mundir staddur í Úkraínu í sérstakri
ferð fyrir fjölmiðlafólk í boði rúss
neskra stjórnvalda. Er blaðamaður
náði tali af Hauki var hann staddur
í austurhluta Úkraínu í hinu svo
kallaða Donetsk alþýðuveldi, rúss
neskumælandi héraði sem lýsti yfir
sjálfstæði 2014.
„Þetta eru ferðir sem eru skipu
lagðar af fréttamannaþjónustu
varnarmálaráðuneytis Rússlands
fyrir innlenda og erlenda frétta
menn, til að sýna þeim hvernig
málin standa frá fyrstu hendi.
Rey ndar tekur meginstraums
pressan ekki þátt í þessu, það er að
segja BBC, CNN, Reuters, Guardian
og þeir sem yfirleitt er vitnað í af
öðrum,“ segir Haukur, en hann
hefur nýtt ferðina til að sanka að sér
efni fyrir fyrirhugaða YouTuberás.
Haukur er rússneskumælandi og
hefur verið búsettur í Moskvu í rúm
þrjátíu ár. Hann telur mikilvægt að
fara til Úkraínu og upplifa átökin
með eigin augum og er gagnrýninn
á fréttir sem birtast af stríðinu í vest
rænum fjölmiðlum. Að hans mati
hefur Úkraína þróast út í ákveðið
bananalýðveldi Vesturlanda „ekki
síst með hjálp Bidenfeðga“.
„Stór faktor í þessu er það að þeir
auvirða öryggiskröfur Rússa og
svo útþensla NATO, sem er orðin
mjög áberandi og mikil, sem Rúss
ar vildu setjast niður og ræða en fá
puttann í rauninni, þar á meðal frá
íslenskum stjórnvöldum, en sér
staklega frá Antony Blinken utan
ríkisráðherra Bandaríkjanna og Joe
Biden forseta. Ef þetta hefði gerst í
tíð Trumps þá hefði þetta senni
lega ekki gerst því hann hefði sest
niður með Rússum og byrjað að
ræða öryggiskröfur Pútíns forseta
og Sergei Lavrovs.“
Einn viðkomustaður Hauks var
hafnarborgin Maríupol sem var
grátt leikin og meira og minna lögð í
rúst áður en hún féll í hendur Rússa.
„Asovstal, þarna er púður, líklykt
og saggi í lofti, blautar dýnur og
annað. Þú ert að sjá við hvað þetta
fólk er upp alið,“ segir Haukur.
Í gær beið Haukur þess að komast
aftur heim til Moskvu en ferðaáætl
unin var augljóslega breytingum
háð vegna ótta við árásir. Hann
þvertekur þó fyrir að vera stress
aður eða hræddur.
„Manns dauði kemur einhvern
tíma. Ég tel bara nauðsynlegt að
menn viti og þekki inn á þetta. Það
er líka ábyrgðarleysi að kynna sér
ekki hlutina ofan í kjölinn. For
sagan og forleikurinn að þessu er
tragedía. En mín samviska er hrein
og ef ég drepst hérna þá bara er það
hið besta.“ n
Nánar á frettabladid.is
Íslenskur fréttamaður til
Úkraínu í boði Pútíns
Horft yfir rústir Asovstal stáliðjuversins í Maríupol sem hart var barist um.
MYND/HAUKUR HAUKSSON
Sjálfvirkur
opnunarbúnaður og
snertilausir rofar frá
Þýsk gæðavara.
Snertilausir rofar
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
Haukur á brúnni hjá Asovstal stál-
iðjuverinu. MYND/HAUKUR HAUKSSON
ragnarjon@frettabladid.is
REYKJAVÍK Dagsektir eru sjaldnast
úrræði sem beitt er af Reykjavíkur
borg vegna húsa í niðurníðslu.
„Þetta er mögulega annað eða
þriðja skiptið á sex árum þar sem
við beitum hús í niðurníðslu dag
sektum,“ segir Gylfi Ástbjartsson,
hjá Umhverfis og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar. Eins og fram
kom í Fréttablaðinu ákvað Reykja
víkurborg að beita eigendur Óðins
götu 14a og 14b dagsektum vegna
ástands húsanna. Aðspurður segir
Gylfi að dagsektum sé í raun sjaldan
beitt yfir höfuð „Þetta eru í kringum
sex til tíu mál á ári þar sem við beit
um dagsektum,“ segir hann. n
Dagsektir vegna
húsa sjaldgæfar
Óðinsgata 14a og 14b,
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK
Græddu 127 milljónir á hraðprófum
Gylfi
Ástbjartsson hjá
Umverfis- og
skipulagssviði
Reykjavíkur-
borgar
Hákon Hákonar-
son hjá Arctic
Therapeutics
2 Fréttir 16. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ