Fréttablaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 45
Margir kjósa létt- ara efni í fríinu. Sumarið er tíminn til að leggja frá sér símann og lesa skemmtilegt skáldverk, jú eða sorglegt eða spennandi. Eitt þarf heldur ekki að útiloka annað. Frumlegt og framandi Hvað er drottinn að drolla eftir Auði Haralds Þær gleðifregnir berast bók- menntaheiminum að Auður Haralds hafi sent frá sér nýja bók. Auður sló í gegn með skáld- sögunni Hvunndagshetjan sem kom út árið 1979 og er bókaunnendum kunn fyrir fyndnar og hárbeittar skáldsögur, og auð- vitað barnabækurnar um Elías. Síðast gaf Auður út bók árið 2007, barnabókina Litlu, rauðhærðu stúlkuna. Hvað er drottinn að drolla fjallar um skrifstofu- konuna Guðbjörgu sem ferðast frá tíunda áratug síðustu aldar aftur á fjórtándu öld. Tímaflakk í meðförum Auðar hljómar vel og mun vafalaust rata í margar ferðatöskur þetta sumarið. Glöggt er gests augað Kalmann eftir Joachim B. Schmidt Kalmann eftir Joachim B. Schmidt kom út í Sviss árið 2020 og rauk þráðbeint á metsölulista Der Spiegel. Þýðing Bjarna Jónssonar hlaut Ísnálina 2022 fyrir best þýddu glæpasöguna og voru verðlaunin veitt með einhljóða áliti dómnefndar. Svissneski rithöfundurinn Joachim B. Schmidt tók ástfóstri við Ísland sextán ára gamall árið 1997 og fluttist til landsins tíu árum seinna. Flestar skáldsögur Joachims gerast á Íslandi og Kalmann gerist á Raufarhöfn. Sagan segir frá sérstökum manni sem lítur á sig sem lögreglu- stjóra þorpsins og rambar á stóran blóðpoll í snjónum eftir hvarf ríkasta mannsins í plássinu. Ástir og örlög Þessu lýkur hér eftir Colleen Hoover Metsöluhöfundurinn Colleen Hoover er í fyrsta sinn gefin út á ís- lensku, í þýðingu Birgittu Elínar Hassell og Mörtu Hlínar Magnadóttur hjá Bókabeitunni. Bókin kemur í verslanir í byrjun júlí. Colleen er marg- faldur metsöluhöfundur yfir tuttugu bóka og hefur þrisvar unnið Goodreads Choice Awards fyrir bestu ástarsöguna, og þar á meðal Þessu lýkur hér, sem á ensku heitir It Ends With Us. Að sögn Birgittu er bókin ástarsaga sem fjallar þó líka um ansi þung málefni. Þar segir frá hinni bandarísku Lily sem kynnist sjóðheitum heila- og taugaskurðlækni. Þegar fyrsta ástin hennar dúkkar síðan óvænt upp myndast brestir í ann- ars fullkomnu lífi Lily. Hlýja í hjartað Sannleiksverkið eftir Clare Pooley Páll Valsson hjá bókaútgáfunni Bjarti bendir á Sannleiksverkið eftir Clare Pooley sem „feel- good-bók.“ Bókin er í þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur. Clare hlaut RNA-verðlaunin fyrir bókina, fyrir bestu frumraun í skáldsagnagerð og Sannleiksverkið er metsölubók í 30 löndum. Þar segir frá Julian Jessop sem er ríflega sjö- tugur, sérvitur listamaður, sem heldur því fram að fæstir séu heiðarlegir við aðra. Julian skrifar sann- leikann um líf sitt í græna minnisbók og skilur síðan bókina eftir á kaffihúsi í hverfinu sínu. Fljót- lega hefja fleiri sem finna grænu minnisbókina að skrifa sannleikann um eigið líf í bókina. Þáþrá og nostalgíukast Vængjalaus eftir Árna Árnason Í bókinni Vængjalaus sem kemur út hjá Bjarti & Veröld í júlí, ferðast lesendur til sumarsins 1996 þegar SSSól spilar í Sjallanum. Söguhetjan Baldur er rúmlega tvítugur og kynnist Auði sem er ellefu árum eldri, með afdrifaríkum afleiðingum. Í bókarlýsingu útgefanda segir að bókin sé skemmtileg og spennandi skáldsaga sem hreyfi við lesandanum en kveiki líka nostalgíu og hug- ljúfa stemningu. Brakandi ferskar bækur til að bragða á í fríinu Margir kjósa léttara efni í fríinu á meðan aðrir leita uppi krefjandi bækur sem kynda undir vöru- talningu í sál lesandans. Frétta- blaðið hafði samband við nokkra fulltrúa íslenska bókabransans í leit að ferskustu skáldverkum sum- arsins og voru heimtir með besta móti. Tilnefningum var næst skipt í nokkra flokka til að auðvelda leitina að góðri bók fyrir sundlaugarbakk- ann, ströndina eða pallinn í sumar- bústaðnum. Og ef bókin hugnast ekki lesand- anum má auðvitað nota hana á lúsmýið. n Nína Richter ninarichter @frettabladid.is odduraevar@frettabladid.is Jóhann LePlat Ágústsson, stofnandi og stjórnandi Facebook-hópsins Kvikmyndaáhugamenn sem telur tæplega 9.000 meðlimi, hefur efnt til fjársöfnunar sem ætlað er að efla starfsemina í kringum hópinn og jafnvel framleiða kvikmynd í fullri lengd innan tíu ára. Ef vel gengur hyggst Jóhann einn- ig stofna félagið Kvikyndaáhuga- menn, skammstafað K.Á.M. en til að byrja með verður því fé sem safnast varið í sjálfstæða spjallþáttagerð, skipulag á vinnusmiðjum, heima- síðu og að lokum í framleiðslu á kvikmynd í fullri lengd, en sú framleiðsla er á tíu ára áætlun hjá honum. „Það sem er svo skemmtilegt við þessa nálgun á stofnun félags er að grunnurinn verður alltaf þessi sam- félagshópur þar sem meðlimir halda áfram að taka beinan þátt í upp- byggingu á sínu eigin samfélagi, þar sem þeir eru nú þegar mjög virkir. Síðar verður hægt að byggja enn frekar ofan á þennan grunn, með því til dæmis að leita að mögulegum styrktaraðilum,“ segir Jóhann. Jóhann segir söfnunina rétt nýhafna, en hann opnaði styrktar- reikning á PayPal fyrir tveimur dögum. „Ég hef sjálfur verið að setja til hliðar á mínum persónulega sér- reikningi fyrir myndavél, upptöku- búnaði, ljósum og fleiru til að koma af stað YouTube-rás og hlaðvarpi fyrir hópinn. Aðskilinn fjárhagur Þetta er meðal annars hugsað til þess að efla „vörumerkið“ og vitund samfélagshópsins, en líka bara fyrir sjálfstæða, almenna spjallþáttaaðstöðu til að taka upp þætti í mynd og hlaða þeim á netið.“ Jóhann tekur fram að söfnunar- reikningurinn sé aðskilinn öðrum reikningum á hans nafni. „Ég vildi sjá hvort það væri áhugi á því innan hópsins að taka beinni þátt í upp- byggingu hópsins og taka þetta skrefinu lengra,“ segir Jóhann, sem er mjög áfram um stof nu n a lvör u félags fyrir kvik- m y n d a u n n - endur. „Peningurinn myndi fyrst fara beint í upp- hafskostnað á upptökubúnaði og aðstöðu fyrir upptöku á hlað- varpsmynd- e f n i . Alla- vega til að byrja með og með það að markmiði að betrumbæta umræður og bæta enn einni samskiptavídd í mengið. Til dæmis með spjallþætti í beinni.“ Jóhann segir slíka spjallþætti fullkomna viðbót við kvikmynda- gagnrýni í rituðu máli og skrifuðum hugleiðingum í stöðuuppfærslum og athugasemdum í kommentakerf- inu. „Oft myndast mjög skemmtileg- ar, ástríðufullar og uppbyggilegar umræður í hópnum og virknin er þá oft svakaleg. Þá geta umræður stundum verið umdeildar, sem er hið besta mál en þá myndast oft hætta á misskiln- ingi, mistúlkun og stundum harka- leg viðbrögð, sem hættir svo til að gera umræður misuppbyggilegar.“ Viðkvæmar umræður í fókus Jóhann segir því mikilvægt að gera vangaveltur innan hópsins, skoðan- ir og svör enn gagnsærri. „Sérstak- lega þegar um viðkvæmari málefni er að ræða. Þegar sá sem er að tjá sig er fyrir framan myndavélina geta líkamstjáning og tónninn í því sem sagt er oft skilað skýrari mynd af meiningunni. Eru menn með þverar og lokaðar staðhæfingar? Eru þetta sterkar skoðanir sem menn eru til- búnir að standa og falla með? Eða er þetta bara lausleg skoðun eða jafn- vel bara hálfgerð spurning?“ Jóhann segir að slíkir þættir myndu auka vægi umræðunnar innan hópsins enn frekar. „Ég tala nú ekki um ef einhver frægur leik- ari er mættur til landsins og maður reynir að fá þann einstakling í við- tal!“ Hann segir að gaman væri að setja í loftið heimasíðu til viðbótar við Facebook- hópinn. „Það væri gaman að slík síða færi í loftið, undir lengri blogg, sérhæfðari þætti og svo fram- vegis. Þetta er að sjálfsögðu allt enn þá á hugmyndastigi.“ n Kvikmyndaáhugamaður vill stofna félagið K.Á.M. Jóhann LePlat Ágústsson FIMMTUDAGUR 16. júní 2022 Lífið 29FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.