Fréttablaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 41
Ég vildi hafa hluti hjá börnunum, eins og leikföng og dýr, til að hugga þau og reyna þannig að draga athyglina frá sorginni. Jón Magnússon sýnir 25 olíu- myndir á sýningu á Mokka sem hefur yfirskriftina Á meðan… Fréttaljósmyndir af börnum í stríðshrjáðum löndum eru grunnurinn að myndunum. kolbrunb@frettabladid.is „Fyrir nokkrum árum fór frétta- mynd af dreng sem hafði drukknað við strendur Grikklands eins og eldur í sinu um heiminn. Mér var mjög brugðið og ákvað að gera mál- verk eftir fréttamyndum frá stríðs- hrjáðum löndum þar sem börn væru í forgrunni. Ég byrjaði á að gúgla „wounded child in Syria“ en ráðlegg engum að gera það, hryll- ingurinn sem þar birtist er ólýsan- legur. Ég skoðaði fjölda mynda en fékk líka aðgang að myndbanka UNICEF og nokkrar myndanna á sýningunni koma þaðan. Ég vann lengi við umbrot og hafði séð hryllilegar myndir áður og þess vegna held ég að ég hafi getað horft á þær. Sumar myndanna lifa enn Sumar myndanna lifa enn með mér Jón segir að það hafi verið tilfinningalega erfitt að mála myndirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Málverkin sýna börn frá stríðshrjáðum löndum. MYND/SPESSI með mér og sumar voru ekki mál- aðar af því að þær voru svo hræði- lega óhuggulegar,“ segir Jón. Stríð alls staðar eins Hann segir að það hafi verið til- finningalega erfitt fyrir sig að mála myndirnar. „Þetta eru myndir af börnum í stríði, mjög sterkar ljós- myndir. Málverkið mildar þessar aðstæður aðeins og ég vildi hafa hluti hjá börnunum, eins og leik- föng og dýr, til að hugga þau og reyna þannig að draga athyglina frá sorginni. Myndirnar eru af börnum víða um heim, f lestar frá Aleppo í Sýrlandi en mér finnst ekki skipta máli hvaðan myndirnar koma. Stríð er alls staðar eins.“ Safnað fyrir prentun Hann fyrirhugar að gefa út bók með myndunum og safnar fyrir prentun hennar á Karolina Fund. Verkefnið er til styrktar UNICEF sem er með söfnun fyrir börn á f lótta undan stríðinu í Úkraínu. Didda Jónsdóttir skáld er höfundur texta í bókinni. „Mig vantaði sterkan textahöfund og skáld og Ari Alexander bróðir stakk upp á Diddu. Það sýndi sig að hún var alveg rétta manneskjan í þetta verkefni,“ segir Jón. Mynd- listarmaðurinn Jón B. K. Ransu skrifar inngang bókarinnar. Jón Magnússon fæddist árið 1966 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Parsons School of Design í París frá 1988-1992. Þar lauk hann prófi með BFA gráðu í myndskreytingu. Hann stundaði síðan nám við Myndlista- skóla Reykjavíkur og lauk prófi árið 2018. Hann hefur haldið einkasýn- ingar hér á landi og erlendis og tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýning hans á Mokka stendur til 6. júlí. n kolbrunb@frettabladid.is Sönghátíð í Hafnarborg verður haldin 18. júní til 10. júlí. Á sjötta tug framúrskarandi innlendra og erlendra tónlistarmanna koma fram á átta tónleikum, en hátíðin býður einnig upp á fimm nám- skeið. Sönghátíð í Hafnarborg fékk Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Á Sönghátíð í Hafnarborg er ekki einungis leitast við að leggja rækt við list augnabliksins, heldur er einnig horft til framtíðar með því að birta á YouTube-síðu hátíðarinnar valdar myndbandsupptökur af tón- leikum og viðtöl við söngvara. Miðasala fer fram á tix.is. Dag- skrána má sjá á vefsíðunni www. songhatid.is. n  Leiðarljós í Hafnarborg Diddú verður á Sönghátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? FIMMTUDAGUR 16. júní 2022 Menning 25FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.