Fréttablaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 16
Ég fer ekkert leynt með
það að markmið mitt
og áætlun er að spila
alla leiki Íslands á
þessu móti.
Sandra Sigurðardóttir
Sumar breytingar
gerast því miður mjög
hægt.
Anna Lúðvíksdóttir,
framkvæmda stjóri Amnesty á
Íslandi.
Íslenska kvennalands-
liðið kemur saman til
æfinga á mánudaginn
þar sem undirbúning-
urinn fyrir EM hefst.
16 Íþróttir 16. júní 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. júní 2022 FIMMTUDAGUR
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Íslandsdeild mannrétt-
indasamtaka Amnesty Internatio-
nal vonast til þess að Knattspyrnu-
samband Íslands noti tækifærið
rækilega til að koma réttu skilaboð-
unum áleiðis, þegar það heimsækir
Sameinuðu arabísku furstadæmin
í nóvember, þar sem karlalandslið
Íslands á að mæta Sádí-Arabíu í vin-
áttuleik. Þetta segir Anna Lúðvíks-
dóttir, framkvæmdastjóri Amnesty
á Íslandi.
KSÍ hefur þurft að þola tölu-
verða gagnrýni fyrir að samþykkja
að leika vináttulandsleik við Sáda,
vegna stöðu mannréttinda í land-
inu. Réttindi kvenna, hinsegin fólks
og fjölda minnihlutahópa hafa lengi
verið fótum troðin í Sádí-Arabíu.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður
KSÍ, hefur áður svarað gagnrýninni
með þeim hætti að sambandið geti
nýtt vináttulandsleikinn við Sáda
til að senda sterk skilaboð. Sam-
bandið sé til að mynda með konur í
lykilstöðum og að Vanda geti haldið
ræður með það að markmiði að hafa
jákvæð áhrif.
Íslandsdeild Amnesty tekur ekki
afstöðu til ákvörðunar KSÍ um að
spila leikinn. Vonast samtökin
heldur til að KSÍ nýti þennan vett-
vang til að hafa áhrif.
„Amnesty vonar auðvitað að KSÍ
noti tækifærið rækilega til þess að
koma skilaboðum áleiðis og for-
dæma þau mannréttindabrot sem
eru framin í Sádí-Arabíu,“ segir
Anna. Þá segir hún að almenningur
og keppendur eigi að fá að njóta
tjáningarfrelsis og segja skoðanir
sínar án þess að þurfa að hræðast
afleiðingarnar af því.
Anna gerir sér grein fyrir því að
aðgerðir KSÍ í furstadæmunum í
nóvember muni ekki valda straum-
hvörfum í landinu, en trúir þó að
þær geti fengið einhverja til að sjá
ný sjónarmið.
„Sumar breytingar gerast því
miður mjög hægt,“ segir hún.
Að sögn framkvæmdastjórans
tekur Amnesty almennt ekki
afstöðu til íþróttaleikja á milli
ákveðinna þjóða.
„Amnesty notar slíkar keppnir eða
tímasetningar þeirra frekar til að
benda á þau brot sem eiga sér stað í
því ríki sem hýsir keppnina. Það
gerum við nú varðandi HM í Katar
og gerðum þegar vetrarólympíuleik-
arnir voru haldnir í Peking og einnig
þegar Eurovision var haldið í Ísrael
og Aserbaídsjan, svo ég nefni einhver
dæmi,“ segir Anna. n
Vonast til að KSÍ nýti tækifærið og sendi sterk skilaboð
Íslenska karlalandsliðið mætir Sádi-Arabíu í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Markvörðurinn Sandra
Sigurðardóttir er ein fjögurra
leikmanna í hópi Íslands
sem eru að fara á sitt fjórða
Evrópumót í sumar, ásamt
Sif Atladóttur og Söru Björk
Gunnarsdóttur. Sandra sat á
bekknum í fyrstu þrjú skiptin,
en er vongóð um að fá að spila
á stórmóti fyrir Íslands hönd.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Það er vissulega komin
mikil eftirvænting þó að maður
sé enn auðvitað líka með hugann
við síðasta leikinn í Bestu deild-
inni fyrir landsleikina. Þetta varð
strax áþreifanlegra þegar Steini
kynnti hópinn og við fengum að
vita hvernig þetta myndi líta út,“
segir Sandra Sigurðardóttir, mark-
vörður íslenska k vennalands-
liðsins, aðspurð út í Evrópumótið
fram undan.
Sandra er hluti af 23 manna
hópi Íslands sem var kynntur á
dögunum, en hún er ein þriggja
leikmanna sem eru að fara á sitt
fjórða stórmót. Í ár eru sautján ár
liðin síðan Sandra lék fyrsta leik
sinn fyrir íslenska landsliðið og
hefur hún þurft að bíða eftir stöðu
aðalmarkvarðar. Sandra hefur fyrir
vikið ekki enn komið við sögu á
stórmóti en er staðráðin í að breyta
því í sumar.
„Aðdragandinn er vissulega
öðruvísi því ég fer inn í þetta mót
í öðru nýju hlutverki. Ég fer ekkert
leynt með það að markmið mitt
og áætlun er að spila alla leikina á
þessu móti. Ég veit af samkeppn-
inni en ég ætla um leið að sýna mig
og sanna því ég veit að ég get staðið
vaktina vel,“ segir Sandra, aðspurð
hvort að það sé eftirvænting hjá
henni yfir að fyrsti leikurinn á
stórmóti sé í sjónmáli. Hún heldur
áfram: „Ég vissi í aðdraganda fyrstu
tveggja mótanna að ég yrði vara-
maður. Mér fannst ég eiga mögu-
leika á sætinu fyrir síðasta EM, en
þetta snýst auðvitað líka um hvað
þjálfarinn kýs að gera.“
Sandra, sem er leikjahæsti leik-
maður efstu deildar kvenna frá
upphafi, tekur undir að það væri
rós í hnappagatið að hafa spilað á
stórmóti þegar hanskarnir rata upp
í hilluna einn daginn.
„Það yrði stór áfangi á ferlinum.
Þetta er eitthvað sem mig hefur
dreymt um, að koma fram fyrir
hönd Íslands á stórmóti. Þegar ég
legg hanskana á hilluna, hvenær
sem það verður, verð ég auðvitað
stolt af ferlinum, en þetta yrði
skemmtileg viðbót.“
Mótið er með stærra sniði heldur
en áður og segist Sandra finna mun.
„Þetta er öðruvísi. Umfangið er
Erum ekki að
fara bara til
að taka þátt
Sandra hefur
byrjað fjórtán af
síðustu sextán
keppnisleikjum
Íslands, þar á
meðal alla leiki
í undankeppni
EM.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
24
fyrsta leik
Íslands á EM
DAGAR Í
annað, stærðin á mótinu er meiri,
aukin athygli, sem er til hins betra.
Það hefur margt breyst.“
Markvörðurinn tók í sama streng
og þjálfari liðsins þegar hún var
spurð út í markmið hópsins.
„Eins og Þorsteinn kom inn á á
blaðamannafundinum þegar hóp-
urinn var kynntur, erum við ekki
búin að velta okkur upp úr þessu í
síðustu verkefnum. Við eigum eftir
að fara yfir markmiðin okkar en
það er ekkert launungarmál að við
erum ekki að fara bara til að vera
með. Franska liðið er mjög hátt
skrifað og verður verðugt verkefni,
en það er allt hægt í fótbolta. Með
trú og baráttu að vopni eru okkur
allir vegir færir,“ segir Sandra,
aðspurð um mótherja Íslands.
Sandra fór fögrum orðum um
yngri leikmenn liðsins, þegar
umræðan barst að leikmönnum
sem voru nokkrar á leikskólaaldri
þegar hún lék fyrsta leik sinn fyrir
Íslands hönd. Af 23 leikmönnum
liðsins eru ellefu að fara á sitt fyrsta
stórmót.
„Maður fylgist með þeim af mik-
illi aðdáun. Þær eru búnar að sýna
og sanna hvað býr í þeim og þær
eiga enn nóg inni. Þær eru allar með
frábært hugarfar, metnaðargjarnar,
baráttuglaðar og mikil gæði. Það
eru svo mikil gæði í yngri kynslóð-
unum sem eru að koma upp núna
enda þjálfunin og aðstaðan allt
önnur en ég kynntist,“ segir Sandra
glettin og heldur áfram:
„Ég byrjaði minn knattspyrnu-
feril á malarvelli, eitthvað sem
margar af yngri leikmönnunum
hafa sennilega aldrei kynnst,“ segir
hún létt að lokum. n