Fréttablaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 30
Gott er að tilvonandi brúðir
undirbúi húðina fyrir brúð-
kaupsdaginn með því
að nota rakamaska, gott
dagkrem, næturkrem og
augnkrem. Þegar kemur
að förðuninni sjálfri leggur
Arna Sigurlaug Ragnarsdótt-
ir förðunarfræðingur meðal
annars áherslu á vatnsheld-
an maskara, þar sem tár geta
fallið á brúðkaupsdaginn.
Svava Jónsdóttir
Arna Sigurlaug Ragnarsdóttir,
förðunarfræðingur og sölustjóri
hjá Artica, segir undirbúning húðar
fyrir brúðkaupsdaginn skipta máli.
„Grunnur að fallegri förðun felst
alltaf í því hvernig húðin er undir-
búin. Ég myndi ekki mæla með að
prófa nýja maska viku fyrir brúð-
kaup heldur frekar að vera búin að
finna út hvað hentar húð viðkom-
andi svo ekkert erti húðina síðustu
dagana fyrir brúðkaupsdaginn.
Rakamaski er alltaf sniðugur, bæði
fyrir dömur og herrana, sem vilja
fá aukinn raka og ljóma. Raka-
maskar geta verið mismunandi en
flestir gefa góðan raka og raka-
stilla húðina. Þá eru þeir oft með
einhverju auka sem til dæmis róar
húðina, kælir og minnkar roða.“
Hvað með andlitskrem og augn-
krem?
„Það ætti alltaf að nota gott
dagkrem, næturkrem og augn-
krem því þau halda góðu jafnvægi
á húðinni. Hvernig sem húðtýpan
er – þurr, blönduð eða olíukennd
– þá er alltaf gott að nota raka-
krem sem hentar húðtýpu hvers
og eins. Það skiptir máli fyrir góða
förðun.“
Arna Sigurlaug mælir með að til-
vonandi brúðir fari í prufuförðun
fyrir stóra daginn.
„Ég myndi segja að það væri
nauðsynlegt og það er sniðugt að
koma um mánuði fyrr. Ég bið til-
vonandi brúði alltaf um að koma
með hugmyndir að förðun sem
hún vill fá: til dæmis myndir af
Pinterest. Síðan finnum við saman
út hvað við viljum gera og veljum
farða og liti eftir hvað hverri og
einni hentar.“
Svo húðin ljómi
Svo rennur brúðkaupsdagurinn
upp og segir Arna Sigurlaug skipta
máli að förðunin haldist allan
daginn og að sjálfsögðu að brúð-
inni líði vel með förðunina.
„Ég hitti brúðina almennt um
mánuði fyrir brúðkaupsdaginn
og þá förum við yfir öll skrefin
og ákveðum hvaða vörur við
ætlum að nota. Oftast er brúðurin
þá búin að kaupa varalitakombó
sem við höfum hjálpast að við að
finna. Ég mæli til dæmis með MAC;
þeir hafa svo mikið úrval af vara-
litum og flestir ættu að geta fundið
rétta litinn þar. Og ef ekki varalit
þá gloss,“ segir Arna Sigurlaug.
Þegar kemur að húðinni er alltaf
byrjað á að grunna húðina með
góðum raka og síðan primer sem
hjálpar allri förðun að haldast vel
yfir allan daginn.
„Ég nota aðallega primera frá
Smashbox þar sem þeir eru með
góða primera fyrir allar húðtýpur.
Þeir hjálpa farðanum að haldast
betur á yfir daginn, slétta áferð
húðar, minnka opnar húðholur og
áferðin á farðanum verður fallegri.
Hvað farða – meik – varðar, er það
frekar mismunandi og fer algjör-
lega eftir týpunum, hvort þær vilji
alveg þekjandi farða eða aðeins
léttari. Aðalatriðið er að húðin
ljómi.“
Arna Sigurlaug segir misjafnt
hvað brúðir vilja, ekki síst þegar
kemur að augnförðun.
„Stór hluti velur brúntóna jarð-
liti. Litir eru líka fallegir og poppa
upp augnförðunina en þetta eru þá
oftast mildir litir sem við notum í
brúðarförðun. Síðan nota ég smá
augnblýant, hvort sem það er til að
ramma aðeins inn augnförðunina
eða augnblýant sem má vera
aðeins áberandi. Oft fer þetta eftir
tískutrendunum sem eru í gangi
á hverjum tíma en ég nota ekki
ýkt tískutrend, vegna þess að við
viljum að myndirnar lifi áfram. Ég
mæli líka alltaf með vatnsheldum
maskara á stóra deginum; það geta
alltaf komið smátár á svona degi.
Einnig nota ég oftast stök augnhár
til að gera aðeins meira úr þeim
sem fyrir eru.“
Arna segir að það séu mikil
trend þegar kemur að augabrún-
um; í þeim séu sveiflur. „Núna er
mikið verið að greiða þær upp: smá
„soap brow“ þótt við pössum að
gera ekki of mikið heldur er reynt
að hafa þær sem náttúrulegastar.“
Þegar förðunin er tilbúin segir
Arna Sigurlaug að lokaskrefið hjá
sér sé alltaf að setja „setting spray“
yfir andlit brúðarinnar. n
Brúðarförðun þarf að haldast allan daginn
Arna notar ekki
ýkt tískutrend
við brúðkaups-
förðun enda
þurfi brúðar-
myndir að
standast tímans
tönn og lifa
áfram. MYND/
AÐSENDAR
Klassísk brúðarförðun með léttri
skyggingu og nude-bleikum varalit.
Arna Sigur-
laug Ragnars-
dóttir, förð-
unarfræðingur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Brúntóna jarðlitir og mildir litatónar eru oft notaðir við brúðarförðun.
Ljómandi húð og brúntóna augn-
förðun með dökkri skyggingu.
Arna mælir alltaf með vatnsheldum
maskara á brúðkaupsdaginn.
6 kynningarblað A L LT 16. júní 2022 FIMMTUDAGUR