Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.06.2022, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 16.06.2022, Qupperneq 30
Gott er að tilvonandi brúðir undirbúi húðina fyrir brúð- kaupsdaginn með því að nota rakamaska, gott dagkrem, næturkrem og augnkrem. Þegar kemur að förðuninni sjálfri leggur Arna Sigurlaug Ragnarsdótt- ir förðunarfræðingur meðal annars áherslu á vatnsheld- an maskara, þar sem tár geta fallið á brúðkaupsdaginn. Svava Jónsdóttir Arna Sigurlaug Ragnarsdóttir, förðunarfræðingur og sölustjóri hjá Artica, segir undirbúning húðar fyrir brúðkaupsdaginn skipta máli. „Grunnur að fallegri förðun felst alltaf í því hvernig húðin er undir- búin. Ég myndi ekki mæla með að prófa nýja maska viku fyrir brúð- kaup heldur frekar að vera búin að finna út hvað hentar húð viðkom- andi svo ekkert erti húðina síðustu dagana fyrir brúðkaupsdaginn. Rakamaski er alltaf sniðugur, bæði fyrir dömur og herrana, sem vilja fá aukinn raka og ljóma. Raka- maskar geta verið mismunandi en flestir gefa góðan raka og raka- stilla húðina. Þá eru þeir oft með einhverju auka sem til dæmis róar húðina, kælir og minnkar roða.“ Hvað með andlitskrem og augn- krem? „Það ætti alltaf að nota gott dagkrem, næturkrem og augn- krem því þau halda góðu jafnvægi á húðinni. Hvernig sem húðtýpan er – þurr, blönduð eða olíukennd – þá er alltaf gott að nota raka- krem sem hentar húðtýpu hvers og eins. Það skiptir máli fyrir góða förðun.“ Arna Sigurlaug mælir með að til- vonandi brúðir fari í prufuförðun fyrir stóra daginn. „Ég myndi segja að það væri nauðsynlegt og það er sniðugt að koma um mánuði fyrr. Ég bið til- vonandi brúði alltaf um að koma með hugmyndir að förðun sem hún vill fá: til dæmis myndir af Pinterest. Síðan finnum við saman út hvað við viljum gera og veljum farða og liti eftir hvað hverri og einni hentar.“ Svo húðin ljómi Svo rennur brúðkaupsdagurinn upp og segir Arna Sigurlaug skipta máli að förðunin haldist allan daginn og að sjálfsögðu að brúð- inni líði vel með förðunina. „Ég hitti brúðina almennt um mánuði fyrir brúðkaupsdaginn og þá förum við yfir öll skrefin og ákveðum hvaða vörur við ætlum að nota. Oftast er brúðurin þá búin að kaupa varalitakombó sem við höfum hjálpast að við að finna. Ég mæli til dæmis með MAC; þeir hafa svo mikið úrval af vara- litum og flestir ættu að geta fundið rétta litinn þar. Og ef ekki varalit þá gloss,“ segir Arna Sigurlaug. Þegar kemur að húðinni er alltaf byrjað á að grunna húðina með góðum raka og síðan primer sem hjálpar allri förðun að haldast vel yfir allan daginn. „Ég nota aðallega primera frá Smashbox þar sem þeir eru með góða primera fyrir allar húðtýpur. Þeir hjálpa farðanum að haldast betur á yfir daginn, slétta áferð húðar, minnka opnar húðholur og áferðin á farðanum verður fallegri. Hvað farða – meik – varðar, er það frekar mismunandi og fer algjör- lega eftir týpunum, hvort þær vilji alveg þekjandi farða eða aðeins léttari. Aðalatriðið er að húðin ljómi.“ Arna Sigurlaug segir misjafnt hvað brúðir vilja, ekki síst þegar kemur að augnförðun. „Stór hluti velur brúntóna jarð- liti. Litir eru líka fallegir og poppa upp augnförðunina en þetta eru þá oftast mildir litir sem við notum í brúðarförðun. Síðan nota ég smá augnblýant, hvort sem það er til að ramma aðeins inn augnförðunina eða augnblýant sem má vera aðeins áberandi. Oft fer þetta eftir tískutrendunum sem eru í gangi á hverjum tíma en ég nota ekki ýkt tískutrend, vegna þess að við viljum að myndirnar lifi áfram. Ég mæli líka alltaf með vatnsheldum maskara á stóra deginum; það geta alltaf komið smátár á svona degi. Einnig nota ég oftast stök augnhár til að gera aðeins meira úr þeim sem fyrir eru.“ Arna segir að það séu mikil trend þegar kemur að augabrún- um; í þeim séu sveiflur. „Núna er mikið verið að greiða þær upp: smá „soap brow“ þótt við pössum að gera ekki of mikið heldur er reynt að hafa þær sem náttúrulegastar.“ Þegar förðunin er tilbúin segir Arna Sigurlaug að lokaskrefið hjá sér sé alltaf að setja „setting spray“ yfir andlit brúðarinnar. n Brúðarförðun þarf að haldast allan daginn Arna notar ekki ýkt tískutrend við brúðkaups- förðun enda þurfi brúðar- myndir að standast tímans tönn og lifa áfram. MYND/ AÐSENDAR Klassísk brúðarförðun með léttri skyggingu og nude-bleikum varalit. Arna Sigur- laug Ragnars- dóttir, förð- unarfræðingur. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Brúntóna jarðlitir og mildir litatónar eru oft notaðir við brúðarförðun. Ljómandi húð og brúntóna augn- förðun með dökkri skyggingu. Arna mælir alltaf með vatnsheldum maskara á brúðkaupsdaginn. 6 kynningarblað A L LT 16. júní 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.