Fréttablaðið - 16.06.2022, Qupperneq 6
Ómíkron er fjarri því
að vera sá náttúrulegi
ónæmishvati sem við
gætum hafa haldið að
það væri, heldur er það
mjög öflugt í að kom-
ast fram hjá ónæmis-
kerfinu.
Danny Altmann,
prófessor við
Imperial College
í London
Þetta hefur sannarlega
vakið okkur til
umhugsunar.
Guðmundur
Björgvin Helga-
son, ríkisendur-
skoðandi
HVERT
FERÐU
Í HJÓLATÚR
Í SUMAR?
28” Vnr. 49620200
23.196
GÖTUHJÓL
28“ götureiðhjól sem
hentar vel til hjólreiða
innanbæjar. 6 gírar
Shimano. V-hand-
bremsur, kemur
með bögglabera
og brettum.
Almennt verð: 28.995
-20%20%
afsláttur
Öll reiðhjól
Umfangsmikil rannsókn í
Bretlandi sem staðið hefur frá
upphafi kórónaveirufarald-
ursins bendir til þess að smit
af Ómíkron-afbrigði veirunn-
ar veiti litla vörn gegn smiti
síðar. Ónæmiskerfið geti ekki
lagt Ómíkron á minnið
gar@frettabladid
COVID-19 Smit af Ómíkron-afbrigð-
inu af Covid veitir litla vörn gegn
síðara smiti með því að efla ónæm-
iskerfið, jafnvel meðal þeirra sem
eru þríbólusettir.
Þetta er niðurstaða greiningar
sem gerð var í Bretlandi.
Samkvæmt Skynews skýrir þetta
hvers vegna svo margir hafi smitast í
annað sinn af Covid, jafnvel tvisvar
af Ómíkron á meðan bylgja þess
afbrigðis hefur gengið yfir.
„Það að smitast af Ómíkron eflir
ekki mikið ónæmi gegn síðara smiti
af Ómíkron,“ segir Rosemary Boy-
ton prófessor við Skynews.
Boyton er ónæmisfræðingur við
Imperial College í London. Hún
leiddi rannsókn á Covid í heil-
brigðisstarfsfólki.
Niðurstaðan bendir til þess að
Ómíkron-smit veiti ekki aukna
vernd gegn nýjum undirafbrigðum
af Ómíkron sem hafa verið að dreifa
sér í Bretlandi að undanförnu. Taka
skal fram að í rannsókninni var
aðeins horft á smit af Covid og að
bóluefnin halda áfram að veita góða
vörn gegn því að þeir sem smitast
verði alvarlega veikir eða látist.
Tekin voru blóðsýni úr yfir sjö
hundruð starfsmönnum í heil-
brigðiskerfinu, sem fylgst hefur
verið með frá því á fyrstu mánuðum
faraldursins, eða frá því í mars 2020.
Þannig hefur verið hægt að fylgjast
með örvunaráhrifum mismunandi
Covid-smita á mismunandi þætti
ónæmiskerfisins.
Segir Skynews þá mynd hafa
dregist upp að þeir sem ekki höfðu
fengið Covid áður en smituðust af
Ómíkron-af brigðinu eftir að hafa
fengið þrjá bóluefnaskammta,
höfðu gott ónæmi gegn Alfa- og
Delta-af brigðunum af Covid en
síður gegn Ómíkron. Og fyrri smit
með öðrum afbrigðum höfðu ekki
heldur mikil áhrif á ónæmiskerfið
gagnvart Ómíkron.
Enn fremur segir í frétt Sky news
að þeir sem smituðust af Alfa-
af brigðinu á fyrri stigum farald-
ursins hafi minni mótefnasvörun
gegn Ómíkron og að Ómíkron-smit
hafi ekki eflt ónæmissvörun þeirra
í heild.
„Við komumst að því að Ómí-
kron er fjarri því að vera sá náttúru-
legi ónæmishvati sem við gætum
hafa haldið að það væri, heldur er
það mjög öflugt í að komast fram
hjá ónæmiskerfinu,“ segir að Danny
Altmann prófessor, sem einnig kom
að rannsókninni hjá Imperial Col-
lege. „Ómíkron f lýgur undir rad-
arnum svo ónæmiskerfið getur ekki
lagt það á minnið.“ n
Ómíkron undir radarnum
og hindrar ekki smit síðar
Ómíkron-afbrigðið vakti áhyggjur yfirvalda í Bretlandi í fyrra og fólk flykktist í bólusetningar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
gar@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun
metur nú hvort hefja eigi athugun á
innkaupum ríkisins á tímum Covid.
Fréttablaðið hefur sagt frá
kaupum Landspítalans á vörum frá
heildsölunni Lyru á tímum kóróna-
veirufaraldursins. Vikið var frá
kröfu um útboð í þeim viðskiptum á
grundvelli neyðarréttar. Lyra meira
en fjórfaldaði veltu sína milli ára og
nærri helmingurinn af 4.250 millj-
óna króna sölu var hreinn hagnaður.
„Þetta hefur sannarlega vakið
okkur til umhugsunar þegar við
horfum á þessi heildrænu áhrif af
því að þarna eru vissulega verulega
mikil útgjöld,“ segir Guðmundur B.
Helgason ríkisendurskoðandi.
„Við höfum verið að skoða áhrif
heimsfaraldursins á ríkissjóð og
ákveðna ríkisaðila,“ segir Guð-
mundur og vísar til fyrri skýrslna.
„Þessi vinkill er eitthvað sem við
höfum tekið eftir og höfum sannar-
lega auga á hvort ástæða kunni að
vera til að skoða nánar innkaupa-
ferla hjá hlutaðeigandi ríkisaðilum.
Við höfum enga ákvörðun tekið um
að ráðast í sérstaka úttekt á þessu
stigi en höfum auga á þessu í sam-
hengi við annað,“ svarar ríkisendur-
skoðandi, um hvort viðskipti eins og
fyrrnefnd innkaup Landspítalans
verði tekin til skoðunar. n
Athugun á innkaupum
í faraldrinum möguleg
thorgrimur@frettabladid.is
SÁDÍ-ARABÍA Stjórnvöld í Sádí-Arab-
íu hafa hafið herferð gegn munum
í regnbogalitum í landinu, sér í
lagi leikföngum og öðrum hlutum
í eigu barna. Ríkisfjölmiðillinn
Al-Ekhbariya greindi frá því í gær
að í nýlegum rassíum hafi emb-
ættismenn lagt hald á muni eins og
slaufur, pils, hatta og pennaveski í
regnbogalitum.
„Við erum að fara í gegnum hluti
sem stríða gegn íslamskri trú og
almennu siðferði og kynna sam-
kynhneigða liti sem beint er að
yngri kynslóðinni,“ sagði embætt-
ismaður verslunarráðuneytisins.
Stjórnvöld hafa látið þau orð falla
að regnbogalitirnir sendi börnum
„eitruð skilaboð“.
Sádí-Arabía hefur nýverið átt í
deilum við bandarísk kvikmynda-
félög og farið fram á breytingar á
myndum þar sem samkynhneigð
er sýnd. Meðal annars reyndu
Sádar að fá Disney til að fjarlægja
vísanir til hinsegin fólks úr nýju
kvikmyndinni um Doctor Strange,
auk þess sem nýja Pixar-teikni-
myndin um Bósa ljósár verður ekki
sýnd í kvikmyndahúsum landsins
vegna koss milli samkynja persóna
í henni. n
Sádar reyna að uppræta regnbogaliti
Regnbogalitirnir eru illa séðir í Sádí-Arabíu, þar sem samkynhneigð getur
varðað dauðarefsingu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
6 Fréttir 16. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ