Fréttablaðið - 16.06.2022, Page 14
Sé á annað borð
ástæða til að fjarg-
viðrast yfir hagnaði í
sjávarútvegi eins og
þeir Indriði og Þór-
ólfur gera virðist því
miklu meiri ástæða
fyrir þá til að gera
það vegna hagnaðar í
heildsölu og smásölu.
Skeifunni 6 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4450 | everest.is | everest@everest.is
Hjóladagar
30% afsláttur af racerum
20% afsláttur af hybrid hjólum
*Gildir til 5.júní
Evrópuverð
HEAD X-Rubi Cross 28”
Verð áður: 97.995,-
Verð nú: 78.396,-
Vökva-diskabremsur
30 gírar
Þjónustuauglýsingar Sími 550 5055
Alla fimmtudaga og laugardaga
arnarut@frettabladid.is
www.bernhoft.is
Dáleiðsla
Hætta að reykja, betri svefn, léttast/
þyngjast, og láta sér líða betur á
margan annan máta.
Ingibjörg Bernhöft hjúkrunarfr.
og dáleiðslukennari
s. 864 2627 • bernhoft@gmail.com
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Geymsluskúrar /gestahús til sölu
• Þrjár stærðir 7,5/9,5/14,9 fm.
• Veggjagrind út 45x95 timbri.
• Pappi og bárustál á þaki.
• Rofar og tenglar IP44 rakaheldnir.
• Skúrar sem þola veður og vinda.
Nánari uppls; reisum@simnet.is eða
s. 899 0913 Fríða, www.reisum.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Þeir sem þekkja til alþjóðlegs
atvinnulífs eru samdóma um
að sjávarútvegurinn sé fremsti
atvinnuvegur þjóðarinnar og
raunar sá eini sem skarar fram
úr sömu atvinnuvegum annarra
þjóða. Getur verið að það sé vegna
þessa góða árangurs sem sjávarút-
vegurinn hefur orðið að pólitísku
bitbeini og hefur þurft að þola meiri
rangfærslur og illmælgi en aðrir
atvinnuvegir hér á landi? Gægjast
hér enn fram hinir leiðu kvillar;
öfund og afbrýði?
Viðtöl við Indriða Þorláksson og
Þórólf Matthíasson
Fyrir nokkrum dögum birtust tvö
viðtöl í þessum miður smekklega
tón í Fréttablaðinu. Þessi viðtöl voru
annars vegar við Indriða Þorláksson
fyrrverandi skattstjóra (3. júní sl.)
og hins vegar Þórólf Matthíasson
prófessor (4. júní sl.), en þessir tveir
herramenn hafa gjarnan verið sam-
stíga í rangfærslum um sjávarútveg
og kröfum um um að sá atvinnu-
vegur verði skattlagður umfram
aðra. Í þessum viðtölum fylgir hver
rangfærslan og rökleysan í kjölfar
annarrar og ekki tök á því í stuttri
grein að taka á því öllu saman. Von-
andi gefst tækifæri til þess síðar.
Hér verður einungis fjallað um eina
helstu forsenduna í málf lutningi
þeirra, þá að rekstrarhagnaður í
sjávarútvegi sé meiri en gengur og
gerist í öðrum greinum íslensks
atvinnulífs.
Hagnaður í sjávarútvegi miðað
við hagnað í heildsölu og
smásölu
Hagstofa Íslands tekur saman og
samræmir gögn um rekstur og efna-
hag fyrirtækja og flokkar í atvinnu-
vegi eftir svokölluðu ÍSAT-kerfi. Sú
f lokkun er ekki í ýkja góðu sam-
ræmi við það sem flestir landsmenn
myndu kalla meginatvinnuvegi
þjóðarinnar. Þó eru þar tekin saman
gögn um sjávarútveg og verslunar-
greinarnar smásölu og heildsölu.
Í þessum yfirlitum Hagstof-
unnar kemur í ljós að á tímabilinu
2015-2020 var hagnaður fyrir skatt
(EBT) í heildsölu heldur hærri en í
fiskveiðum og hagnaður í smásölu
er svipaður og í fiskveiðum. Þá er
samanlagður hagnaður fyrir skatt í
heildsölu og smásölu svipaður og í
sjávarútvegi í heild. Á árinu 2020, en
til þess er vísað sérstaklega í ofan-
greindum viðtölum, var samanlagð-
ur hagnaður fyrir skatt í heildsölu
og smásölu samkvæmt yfirlitum
Hagstofunnar um 52 mia. kr. en um
40 mia. kr. í sjávarútvegi í heild.
Sé á annað borð ástæða til að
fjargviðrast yfir hagnaði í sjávarút-
vegi eins og þeir Indriði og Þórólfur
gera, virðist því miklu meiri ástæða
fyrir þá til að gera það vegna hagn-
aðar í heildsölu og smásölu.
Minni arðsemi eigin fjár í
sjávarútvegi en heildsölu og
smásölu
Frá hagfræðilegu sjónarmiði skiptir
arðsemi þess fjár sem bundið er í
atvinnuvegum jafnvel meira máli
en heildarhagnaður. Margir slíkir
arðsemismælikvarðar eru til. Einn
sá notadrýgsti er arðsemi eigin fjár,
þ.e. sá arður sem eigendur hafa af
því fé sem þeir binda í viðkomandi
fyrirtækjarekstri. Í ljós kemur í fyrr-
greindum yfirlitum Hagstofunnar
að arðsemi eigin fjár í sjávarútvegi
er talsvert minni að jafnaði á tíma-
bilinu 2015-20 heldur en í bæði smá-
sölu og heildsölu. Það þýðir einfald-
lega að vænlegra er fyrir fjárfesta að
festa fé sitt í heildsölu og/eða smá-
sölu heldur en í sjávarútvegi.
Meiri rekstraráhætta í
sjávarútvegi
Gögn Hagstofunnar sýna jafnframt
að á tímabilinu 2015-20 var mun
meiri breytileiki í rekstrarafkomu
sjávarútvegs en í bæði heildsölu og
smásölu sem og þessum greinum
samanlagt. Breytileikastuðullinn
fyrir hina ýmsu afkomumælikvarða
var tvisvar til fjórum sinnum hærri
í sjávarútvegi en í verslunargrein-
unum tveimur. Nærtækt er að túlka
þetta svo að rekstraráhætta í sjávar-
útvegi sé að sama skapi meiri en í
heildsölu og smásölu. Ætti það ekki
að koma neinum á óvart. Kjarni
málsins er hins vegar sá að meiri
rekstraráhætta krefst hærri hagn-
aðar að jafnaði. Af þeirri ástæðu
ætti hagnaður í sjávarútvegi við
eðlilegar aðstæður í hagkerfinu að
vera meiri en í heildsölu og smásölu.
Það er hann hins vegar ekki eins og
fram hefur komið.
Aðrir atvinnuvegir
Rekstraraf koma í öðrum megin-
greinum efnahagslífsins eins og
orkuframleiðslu og bankastarfsemi
liggur ekki fyrir með jafnskýrum
hætti í gögnum Hagstofunnar.
Lauslegar athuganir á rekstrarreikn-
ingum þeirra benda til að rekstrar-
hagnaður þeirra sé síst minni og
jafnvel meiri en í fiskveiðum og
sjávarútvegi.
Lokaorð
Nú er auðvitað hverjum sem er
heimilt að leggja til að sjávarútvegur
sé skattlagður umfram aðra atvinnu-
vegi. Eigi hins vegar að taka slíkar
hugmyndir um mismunun atvinnu-
vega alvarlega verður að styðja þær
gildum rökum. Ofangreint sýnir að
þau rök geta ekki verið að hagnaður
í sjávarútvegi sé áberandi meiri en i
öðrum greinum. n
Rekstrarafkoma í sjávarútvegi:
Hverjar eru staðreyndirnar?
Magnús Örn
Gunnarsson
framkvæmdastjóri
Rannsóknarmið-
stöðvar um samfélags-
og efnahagsmál
Á Íslandi hafa ýmsir stjórnmála-
menn verið að velta vöngum yfir að
virkja sem mest og f lytja rafmagn
í stórum stíl um neðansjávarkapal
til Evrópu. En er þetta raunhæft?
Í dag er framleitt rafmagn sem
hefur nægt okkur og að auki fimm
sinnum meira sem fer í stóriðju.
Miðað við rafmagnsframleiðsluna
eins og hún er í dag þá myndi hún
nægja kannski hálfri annarri millj-
ón manna.
En það hafa komið fram stór-
tækari hugmyndir í þessa átt. Litið
hefur verið til vindorkunnar, sólar-
orkunnar og kjarnorka er töluvert
notuð til framleiðslu rafmagns,
einkum í Frakklandi og á Bretlandi.
Þar sem framleitt er mörg hundruð
sinnum meira en á Íslandi.
Kjarnorkan getur verið var-
hugaverð, einkum í heimi þar
sem stjórnmálamenn sem eru
ekki með öllum mjalla geta á svip-
stundu gjöreyðilagt land og gert
það óbyggilegt um ófyrirsjáanlega
framtíð. Því hefur verið hugað meir
að sólarorkunni sem enn er fremur
lítt notuð.
Suður í Þýskalandi tók ungur
fræðimaður við Tækniháskólann
í Braunschweig, Nadine May að
nafni, saman fyrir 17 árum mjög
áhugaverða rannsóknarskýrslu.
Þar er leitað svara við þeirri áhuga-
verðu spurningu:
Hvað skyldi þurfa mikið land
undir sólarorkuver til að sjá allri
heimsbyggðinni fyrir raforku?
Hér er um að ræða diplómanáms-
ritgerð eftir Nadine May sem nefnist:
Umhverfisjafnvægi sólarorku
Flutningur frá Norður-Afríku til
Evrópu (Eco-balance of a Solar
Electricity Transmission from
North Africa to Europe) First
Referee: Prof. Dr. Wolfgang Dur-
ner Second Referee: Prof. Dr. Otto
Richter Braunschweig, 17th August
2005.
Höfundurinn hefur vakið mikla
athygli í heimalandi sínu og er frá-
bært dæmi um hve ungt fólk hefur
oft reynst hugmyndaríkt og komið
með góðar hugmyndir.
Niðurstaða Nadine May er þessi:
1. Fyrir Þýskaland með eftirspurn
500 Twstundir á ári, þarf svæði 45
km x 45 km. Það er einungis um
0.03% alls landsvæðis í Norður-Afr-
íku (BMU, 2004b).
2. Magn raforku sem ESB-25 ríkin
þarfnast, mætti framleiða á 110 km
x 110 km svæði.
3. Til að mæta öllum heildarraforku-
þörfum heimsins þarf svæði 254 km
x 254 km sem ætti að vera væri nóg.
Sjálfsagt þykir f lestum þessar
vangaveltur vera skýjaborgir en
neyðin kennir naktri konu að spinna
segir orðatiltækið. Engan óraði fyrir
því um aldamótin 1900 að mann-
fólkið myndi geta flogið sem fugl-
arnir, nú þykir ekkert sjálfsagðara.
Tæknilega ætti þetta gríðarstóra
verkefni að vera vel framkvæman-
legt en líklega eru miklir örðug-
leikar við að koma á góðu stjórnar-
fari í löndum Norður-Afríku sem er
nægjanlega stöðugt, byggt á mann-
réttindum og lýðræði. n
Áhugavert reikningsdæmi
Guðjón Jensson
leiðsögumaður og
eldri borgari í
Mosfellsbæ
14 Skoðun 16. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ