Fréttablaðið - 16.06.2022, Page 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Jarðböðin við Mývatn hafa heldur
betur slegið í gegn frá því þau voru
opnuð árið 2004 og hefur aðsóknin
verið mjög góð, bæði af Íslend-
ingum og erlendum ferðamönnum,
segir Guðmund ur Þór Birg is son,
framkvæmdastjóri Jarðbaðanna.
„Frá því að Jarðböðin opnuðu
hér í júní 2004 hafa viðtökurnar
verið mjög góðar. Fyrstu árin voru
ferðamenn ekkert í líkingu við það
sem er í dag, en árin fyrir Covid
heimsóttu um 200 þúsund gestir
Jarðböðin árlega.
Við höfum stækkað í takti við
fjölgun ferðamanna og staðurinn
tekið þó nokkrum breytingum
síðustu ár.“
Blái liturinn heillar
Hann segir helsta aðdráttarafl
Jarðbaðanna vera bláa litinn á
lóninu, mýkt vatnsins og auðvitað
staðsetninguna við Jarðbaðshólana
með útsýni yfir Mývatnssveitina.
„Við erum annar tveggja staða
sem býður upp á blátt lón og það
er það sem ferðamenn vilja prófa
þegar þeir heimsækja okkur.“
Viðbrögðin engu lík
Starfsfólk Jarðbaðanna fær reglu-
lega skemmtileg viðbrögð frá
viðskiptavinum segir Guðmundur,
sérstaklega erlendum.
„Það er alltaf gaman að sjá
ánægjusvipinn á gestum okkar
þegar þeir stinga tánum ofan í
lónið, því þeir vita ekki alveg hverju
þeir eiga að búast við þegar þeir
ganga út í. Skemmtilegast er þó
sennilega þegar norðurljósin sýna
sig fyrir gestum, viðbrögðin eru
engu lík.“
Bætt og betri aðstaða
Um þessar mundir standa yfir
framkvæmdir við Jarðböðin. „Við
erum að fara í talsvert mikla endur-
nýjun á allri aðstöðunni okkar með
byggingu nýs þjónustuhúss, sem
mun innihalda rýmri búnings-
klefa, bæði inni og úti, ásamt einka-
klefum. Þá verður veitingaaðstaða
þar sem boðið verður upp á létta
rétti með hráefni héðan úr héraði.“
Barinn vinsæll
Öll aðstaða fyrir gesti verður á
einni hæð með góðu aðgengi ofan í
lón segir Guðmundur. „Við munum
bjóða upp á fundarherbergi þar
sem upplagt verður fyrir fyrirtæki
að koma og halda vinnufundi í
Jarðböðunum og þá verður hægt
að leigja betri stofu fyrir til dæmis
smærri matarhópa.
Í lok árs 2019 opnuðum við bar
úti í lóninu sem hefur slegið í gegn,
þannig að hann verður áfram á
sínum stað og mun hljóta upp-
færslu í takti við stækkunina.“
Upplifun fyrir gesti
Markmiðið er að búa til skemmti-
legt ferðalag fyrir gesti, allt frá því
að þeir stíga út úr bílnum og ganga
að byggingunni, inn í gegnum bún-
ingsklefana, ofan í lónið, þar sem
hægt er að fara hringferð og prófa
mismunandi upplifanir á leiðinni,
segir Guðmundur. „Útsýnið yfir
Mývatnssveit frá lóninu er stór-
fenglegt og hvergi betra að slaka á
og njóta.“
Hann lítur björtum augum til
framtíðarinnar. „Ég sé Jarðböðin
áfram sem mikilvægan segul í
ferðaþjónustu á Norðausturlandi.
Við munum halda áfram okkar
uppbyggingu með það að mark-
miði að auka ánægju okkar gesta og
gera heimsókn þeirra eftirminni-
lega.
Þá trúi ég að með tilkomu
millilandaflugs til Akureyrar og
áframhaldandi markaðssetningu á
Demantshringnum og fleiri áhuga-
verðum stöðum á Norðurlandi, þá
munum við fá jafnari straum ferða-
manna yfir árið.“ n
Nánar á jardbodin.is.
Umhverfið er stórfenglegt við Jarðböðin.
Blái liturinn á lóninu heillar augað.Úsýnið úr gufubaðinu svíkur engan.
Guðmund ur Þór Birg is son, fram-
kvæmdastjóri Jarðbaðanna við
Mývatn.
Jarðböðin við Mývatn eru fullkominn slökunarstaður fyrir fólk á öllum aldri.
Útsýnið yfir
Mývatnssveit frá
lóninu er stórfenglegt og
hvergi betra að slaka á og
njóta.
Guðmundur Þór Birgisson
2 kynningarblað 16. júní 2022 FIMMTUDAGURSUNDLAUGAR OG JARÐBÖÐ