Fréttablaðið - 16.06.2022, Page 24
Laugarvatn Fontana er
heilsulind sem staðsett er
við bakka Laugarvatns í ein-
staklega fallegu umhverfi.
Staðurinn er með elstu bað-
stöðum landsins í núverandi
mynd og fagnaði 10 ára
afmæli síðasta sumar.
Það er engin tilviljun að heilsu-
lindin Fontana sé staðsett einmitt
við Laugarvatn, enda er baðsaga
svæðisins rík og á rætur að rekja til
jarðfræði vatnsins. Ekki skemmir
náttúrufegurðin fyrir enda er
Laugarvatn eitt fallegasta bæjar-
stæði landsins. Þeir eru ófáir Íslend-
ingarnir sem bera sterkar taugar til
gufunnar við Laugarvatn og sögu
hennar. „Upp úr 1930 byrjuðu menn
að nota hverinn þar sem Fontana er
staðsett, um sama leyti og Héraðs-
skólinn var byggður. Í fyrstu var
tjald sett yfir hverinn sem myndaði
hið eiginlega náttúrulega gufu-
bað. Síðar var byggð betri aðstaða
og þannig skapaðist hefð fyrir
gufunni sem hefur fylgt staðnum
og hvernum til dagsins í dag,“ segir
Guðmundur Fannar Vigfússon, sölu-
og markaðsstjóri Fontana.
„Gufan er eins náttúruleg og
hugsast getur. Í gufunni úr hvernum
eru virk efni sem finnast ekki í
venjulegum vatnsgufum en gestir
sitja bókstaflega fyrir ofan heitan
hverinn og njóta gufunnar beint
úr hvernum. Okkur finnst þetta
alveg einstakt og teljum að ekki séu
margir staðir í heiminum þar sem
fólk geti setið beint fyrir ofan heitan
hver, heyrt hann bubbla og notið
gufunnar frá honum,“ segir Fannar.
Listin að slaka á
Fontana samanstendur af gufunni
frægu, sánabaði, fjórum mis-
munandi heitum og misdjúpum
laugum, sem ganga undir nöfn-
unum Lauga, Sæla, Viska og Bull-
unga, og svo Laugarvatni sjálfu. Það
vekur athygli gesta að í lauginni
Sælu er að finna listaverk eftir Erlu
Þórarinsdóttur. „Í grynnri hluta
laugarinnar eru verk sem höfða til
barna og leikja með rennsli vatns.
Í dýpri enda laugarinnar er hins
vegar höfðað til hvíldar. Verkin eru
mótuð úr svörtu graníti og hafa
börn mjög gaman af því að leika sér
við verk Erlu í lauginni.
Laugarvatn er svo stór hluti af
baðupplifuninni í Fontana. Hægt er
að ganga frá laugunum út á bryggju
og vaða þaðan út í frískandi vatnið.
Heitar uppsprettur við ströndina
gera það að verkum að yfirborðs-
vatnið getur verið hlýtt og notalegt
við ströndina en kólnar þegar utar
dregur.
Mikil þróun á baðmenningu
landsins hefur átt sér stað undan-
farin ár og við hjá Fontana fylgjum
þeirri þróun af metnaði. Á næstu
misserum munum við vinna að
stækkun og breytingum á heilsu-
lindinni. Framkvæmdir eru ekki
byrjaðar en það er stefnt að því að
stækka og breyta í nánustu framtíð.
Við mælum alla jafna með því
að fólk bóki fyrir fram áður en það
mætir til okkar í böðin, en það er
ekki nauðsynlegt. Fólk getur líka
mætt í Fontana án bókunar og
notið gufunnar og lauganna.“
Einstök baðupplifun
Laugarvatn er einn af áfanga-
stöðum Gullna hringsins, vin-
sælustu dagleiðar ferðamanna,
sem samanstendur af Þingvöllum,
Geysi og Gullfossi. „Laugarvatn er í
hjarta þessarar leiðar og er Fontana
við Laugarvatn stórgóð viðbót við
afþreyingu þeirra sem ferðast þessa
leið. Það var í raun grunnurinn
að tilkomu heilsulindarinnar, að
hægja á ferðamanninum og gefa
honum kost á að slaka á og njóta
tilverunnar í fallegu umhverfi.
Okkar gestir upplifa einstaka
nálægð við náttúruna og njóta
einnig stórfenglegs útsýnis yfir
vatnið. Auk þess er fjallasýnin
mögnuð á góðviðrisdögum og í
góðu skyggni. Hér er rólegt og fal-
legt umhverfi og njóta gestir okkar
alls þess besta sem staðurinn hefur
upp á bjóða. Gestir geta slakað
einstaklega vel á í fallegu umhverfi.
Það er einstök upplifun að sitja ofan
á heitum hver og finna hitann og
gufuna frá jörðinni. Ekki skemmir
svo aðgengið að Laugarvatni fyrir,
þar sem hægt er að kæla sig niður
eftir heita gufuna og laugarnar.
Önnur einstök upplifun sem
við bjóðum upp á hér í Fontana á
Laugarvatni er hverabakað rúg-
brauð. Hver hleifur er bakaður í 24
tíma alls og við förum tvisvar á dag
að grafa upp nýbakað rúgbrauð
og berum svo fram með smjöri og
reyktum silungi. Fyrir erlenda gesti
okkar er þetta einstök upplifun, að
sjá hvernig við nýtum orku jarðar
og jarðvarma til rúgbrauðsbakst-
urs.“ n
Nánari upplýsingar má finna á
www.fontana.is.
Náttúruleg baðstofa í hjarta Gullna hringsins
Gufan í Fontana er eins náttúruleg og hugsast getur. Gestir sitja bókstaflega
fyrir ofan heitan hverinn og njóta gufunnar beint úr hvernum. MYNDIR/AÐSENDAR
Laugarvatn Fontana er einstök heilsulind þar sem náttúrufegurð og náttúru-
legur jarðvarmi veita gestum óviðjafnanlega kyrrð og slökun.
Guðmundur Fannar Vigfússon er
sölu- og markaðsstjóri Fontana.
SUND STENDUR TIL 23.10.
HÖNNUNARSAFN
ÍSLANDS
GARÐATORG 1
210 GARÐABÆR
OPIÐ ÞRI–SUN 12–17
WWW.HONNUNARSAFN.IS Instagram Facebook honnunarsafn
SÝNINGAR
PALLURINN
HRUND ATLADÓTTIR
SÝNDARSUND STENDUR TIL 23.10.
VINNUSTOFUDVÖL
BYGGINGAR HÖGNU SIGURÐARDÓTTUR
ARKITEKTAMÓDEL STENDUR TIL 31.08.
SAFNIÐ Á RÖNGUNNI
TILTEKT STENDUR TIL 30.12.
Á
4 kynningarblað 16. júní 2022 FIMMTUDAGURSUNDLAUGAR OG JARÐBÖÐ