Fréttablaðið - 16.06.2022, Blaðsíða 26
Við leggjum
áherslu á að koma
gestum okkar ánægju-
lega á óvart og tryggja
ljúfa og skemmtilega
upplifun.
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Sundlaugar hafa skipað
stóran sess í lífi Heiðu
Harðardóttur frá því hún var
smástelpa. Hún heldur úti
vefnum sundlaugar.com og
reynir að heimsækja allar
sundlaugar landsins.
Það er óhætt að titla Heiðu Harðar-
dóttur, nema í húsgagnabólstrun,
sem sundlaugasafnara en hún
heldur úti vefnum sundlaugar. com
ásamt unnusta sínum Finni
Magnússyni. Vefurinn inniheldur
allar sundlaugar á landinu og þar
geta notendur fylgst með hversu
margar sundlaugar þeir hafa heim-
sótt.
Áhugi hennar á sundlaugum
hófst snemma. „Ég held að þessi
áhugi minn á ævintýralegum
sundlaugum sé sprottinn frá
reglulegum heimsóknum í gömlu
sundlaugina á Laugum í Sælingsdal
sem barn. Ef ég gæti ferðast aftur
í tímann þá væri ég til í að fara í
þá gömlu laug. Hún var skemmti-
lega hrá og í minningunni svolítið
drungaleg, með heitum potti sem í
raun var lítið herbergi með einum
glugga. Áður fyrr var þessi sund-
laug einnig notuð sem samkomu-
hús og fór móðir mín á dansleiki
þarna, en þá var sundlaugin tæmd
og hún notuð sem danssalur.“
Kíkir á ströndina í sumar
Heiða og fjölskylda er búsett í
Kaupmannahöfn í sumar og þar
er ýmislegt í boði. „Hverfislaugin
er efst á listanum hjá okkur en
hún heitir DGI Byen og er við
Sundlaugar eru lífið
„Ég held að
þessi áhugi
minn á
ævintýralegum
sundlaugum
sé sprottinn
frá reglulegum
heimsóknum í
gömlu sund-
laugina á Laug-
um í Sælingsdal
sem barn,“ segir
Heiða Harðar-
dóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
hliðina á Hovedbanegården. Hún
er hringlaga svo maður getur synt
endalaust án þess að snúa nokk-
urn tíma við, en einn hringur er
100 metrar. Svo bíð ég spennt eftir
að Øbro-hallen opni aftur eftir
viðhald, en það er elsta innisund-
laug Danmerkur og arkitektúrinn
er undir áhrifum af rómverskum
böðum. En ætli sumarið verði ekki
notað í að kíkja á strendurnar í
nágrenni Kaupmannahafnar og
prófa hafnarböðin við Íslands-
bryggju.“
Sakna heitu pottanna
Hún segir fjölskylduna sakna
íslensku lauganna mikið, sérstak-
lega heitu pottanna. „Við höfum
ekki verið alveg nógu dugleg að
prófa dönsku laugarnar. Mér sýnist
Danir standa sig alveg ágætlega í
að byggja sundlaugar, en það eru
oftast innilaugar með mjög fínu
leiksvæði fyrir börn á öllum aldri.
En íslenska sundlaugamenningin
er alveg sér á báti og heitu pottarn-
ir okkar eru kannski bara svarið
við dönsku pöbbamenningunni.“
Fimm ára hugmynd
Sundlaugar.com er fimm ára
gömul hugmynd sem kviknaði
þegar hún og Finnur voru að
ferðast um Vestfirði. „Þá fór ég í
þrjár sundlaugar sama daginn og
í kjölfarið fórum við að velta fyrir
okkur hversu margar laugar væru
á landinu, hvað við ættum margar
eftir og hvort við gætum ekki
haldið utan um þessa áskorun, að
heimsækja þær allar.“
Hún segir þetta vera í grunninn
sáraeinfalda hugmynd. „Finnur
setti upp kerfi þar sem þú getur
skráð þig og haldið utan um hvaða
sundlaugar þú hefur farið í. Ég
sá að mestu um efnistökin og á
einhverjum tímapunkti í Covid-
bylgju 4 var þetta orðið nógu
gott til að opna fyrir almenningi.
Við erum með ansi gott kort yfir
laugar landsins og síðan þessa
einu virkni, að merkja við þær
sem þú hefur klárað.“ Umferðin
hefur haldist nokkuð stöðug þótt
vefurinn hafi ekki verið auglýstur.
„Það virðist vera að vinahópar
og fjölskyldur séu að skora hvert
á annað í að klára laugarnar eða
allaveganna bera saman bækur.
Í dag hafa rúmlega 4.000 skráð
sig og merkt við meira en 130.000
laugar. Það gerir rúmlega 30 laugar
að meðaltali sem okkur finnst
ansi gott. Ánægjulegastar eru samt
sögurnar af fólki sem skipuleggur
fríið og peppar krakkana í þessa
skemmtilegu áskorun.“
Opnar verkstæði í haust
Fjölskyldan flutti til Skive á Jót-
landi síðasta sumar, þar sem Heiða
kláraði nám í húsgagnabólstrun
við Tækniskólann. „Við tókum
Norrænu til Kaupmannahafnar
kringum páskana með allt okkar
hafurtask og prófuðum heitu
pottana á þilfarinu í leiðinni. Núna
er ég að klára samning í Kaup-
mannahöfn og stefni á að setja upp
eigið verkstæði á Íslandi í haust. Þá
kemst lífið aftur í smá rútínu og ég
get aftur farið að stunda Vestur-
bæjarlaugina og bæta í sundlauga-
safnið.“ ■
6 kynningarblað 16. júní 2022 FIMMTUDAGURSUNDLAUGAR OG JARÐBÖÐ
Heitu náttúrulaugarnar, Vök
Baths, liggja ofan á fögru
Urriðavatninu, sem er í
aðeins fimm mínútna fjar-
lægð frá Egilsstöðum. Þær
eru fyrstu og einu fljótandi
laugar landsins og ómiss-
andi áningarstaður allra sem
vilja upplifa beina snertingu
við náttúruna og næra um
leið líkama og sál.
Ósnortin náttúra, tignarleg fjöll,
himinblátt vatn, fagur fuglasöngur,
austfirsk veðurblíða og stökkv-
andi bleikjur upp úr vatninu eru
umgjörð þessarar baðparadísar.
„Við opnuðum í júlí 2019 og
síðan hefur bara verið gaman og
viðtökurnar dásamlegar,“ segir
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Vök Baths.
„Hönnun staðarins er í takti við
umhverfið og upprunann, með
tveimur fljótandi laugum sem eru
í laginu eins og hitavakirnar sem
mynduðust á vatninu. Fljótandi
laugar eru nýnæmi á Íslandi en í
þeim upplifa gestir einstaka teng-
ingu við náttúruna með útsýni í
allar áttir, og þegar legið er í þeim
er eins og maður sé ofan í köldu og
íðilfögru vatninu, þótt legið sé í
makindum í heitum uppsprettum
Urriðavatns.“ Úr laugunum er svo
beint aðgengi úr stiga ofan í vatnið
og margir sem nýta sér að fara út í.
Urriðavatn er þörungaríkt og hefur
heilsusamleg og frískandi áhrif á
húðina, sannkallað heilsubað, að
sögn Aðalheiðar.
Auk fljótandi lauganna ofan í
vatninu eru tvær heitar laugar við
strönd vatnsins, köld úðagöng og
gufubað. Öll aðstaða er einstaklega
glæsileg.
Munaðurinn og dekrið einskorð-
ast þó ekki við laugarnar eingöngu.
Á Vök Bistro er hægt að velja úr
handtíndum jurtum frá Móður
Jörð í Vallanesi, til dæmis myntu,
sítrónumelissu og fleira góðgæti í
jurtatebollann. Hægt er að skrúfa
frá krana og heitt vatn beint úr
borholu streymir í bollann. Svo er
boðið upp á snilldarrétti á hóflegu
verði.
Á laugarbarnum er mikið úrval
áfengra og óáfengra drykkja.
Aperol Spritz er sívinsæll drykkur
og nýir sumardrykkir í sumar eru
Mojito og Strawberry Daquiri.
Ekki má gleyma bjórtegundunum
Vökva og Vöku sem voru þróaðir
í samstarfi við Austra brugghús,
en þeir eru komnir í fjórar vín-
búðir ásamt fjölda veitingastaða á
Austurlandi.
Laugarbarinn er við stóra laug
sem hægt er að fara í beint úr
búningsklefa. Þar er líka hægt að
fá freyðivín og kampavín og skála
í fallegum glösum, enda býður
umhverfið í Vök Baths upp á ein-
staka rómantík.
Vök Baths eru opin frá kl. 10-22
alla daga í sumar. „Við erum síðan
búin að fá leyfi fyrir sólarhrings-
opnun 25.-26. júní, í tilefni af
sumarsólstöðum, World Bathing
Day og Jónsmessunnar,“ segir Aðal-
heiður. Þá opnar kl. 10 að morgni
laugardagsins 25. júní og lokar
ekki aftur fyrir en kl. 22 að kvöldi
sunnudagsins 26. júní.
Aðalheiður segir að upphaflega
hafi verið ætlunin að hafa opið
til miðnættis af þessu tilefni, en
hugmyndin hafi undið upp á sig og
á endanum hafi verið ákveðið að
hafa bara opið alla nóttina.
„Það verður eitthvað fyrir alla
í sumarnæturopnuninni,“ segir
Aðalheiður. „Trúbadorinn Øystein
Gjerde treður upp og laugarbarinn
verður opinn til kl. 3. Óáfengi
drykkurinn Lárus sundöl verður
á 2 fyrir 1 tilboði milli 2 og 3 um
nóttina.
Svo er alveg tilvalið að nota flot-
hetturnar sem við erum með til að
njóta í f ljótandi laugunum, það er
alveg einstök tilfinning.
Gestir á sumarnæturopnuninni
fá einstakt tækifæri til að upplifa
bjarta, íslenska sumarnótt.
Við leggjum áherslu á að koma
gestum okkar ánægjulega á óvart
og tryggja ljúfa og skemmtilega
upplifun. Stutt er í allar náttúru-
perlur á svæðinu bæði á vetri og
sumri og gott að koma í Vök Baths
eftir alls kyns útivist í perlunum
okkar, Hengifossi, Stuðlagili og
Seyðisfirði. Það er tilvalið að koma
í laugarnar til okkar á eftir, dekra
við sig í yndislegu umhverfi og
borða góðan mat,“ segir Aðal-
heiður Ósk Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Vök Baths á
Austurlandi. ■
Sumarnæturopnun í Vök Baths 25. til 26. júní
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir er
framkvæmdastjóri Vök Baths.
Miðnætursólin
leikur við bað-
gesti og glampar
á Urriðavatni.
MYND/AÐSEND
Vakirnar og náttúran renna saman í eitt í Vök Baths.