Fréttablaðið - 16.06.2022, Síða 28
8 kynningarblað 16. júní 2022 FIMMTUDAGURSUNDLAUGAR OG JARÐBÖÐ
Vefurinn sundlaugar.com fór í
loftið á síðasta ári, en hann inni-
heldur upplýsingar og kort yfir
allar sundlaugar landsins þar sem
rukkað er fyrir aðgang. Þar er auk
þess hægt að skrá sig inn og merkja
við allar sundlaugar sem viðkom-
andi hefur heimsótt og fylgjast
með hversu margar laugar er eftir
að heimsækja víða um land.
Vefurinn er fimm ára gömul
hugmynd sem kviknaði þegar
annar aðstandanda vefsins heim-
sótti þrjár sundlaugar á Vest-
fjörðum sama daginn í sumarfríi.
Í kjölfarið var farið að velta fyrir
sér hversu margar laugar væru á
landinu og hversu margar laugar
væri eftir að heimsækja. Í dag hafa
um 4.000 manns skráð sig og heim-
sótt fleiri en 130.000 sundlaugar.
Algengt er að vinahópar og fjöl-
skyldur séu að skora hvert á annað
í að klára laugarnar.
Sundlaugar.com var tilnefndur
til vefverðlaunanna í ár í f lokknum
gæluverkefni. n
Skemmtilegur
sundvefur
Sundlaugin á Hofsósi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJARNAÐU ÞIG Í KRAUMA
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
Í Krauma náttúrulaugum kemstu í beina
snertingu við kjarna íslenskrar náttúru
þegar þú baðar þig upp úr hreinu og tæru
vatni úr Deildartunguhveri sem er kælt með
vatni undan öxlum Oks.
Fimm heitar laugar og ein köld
umvefja þig með hreinleika sínum sem er
tryggður með miklu vatnsrennsli og engum
sótthreinsandi efnum.
Njóttu þín í gufuböðum og útisturtum eða
í hvíldarherberginu við snark úr arineldi og
fullkomnaðu daginn með notalegri stund
á veitingastaðnum okkar sem býður upp á
dýrindis rétti úr fersku hráefni úr héraði.
Láttu líða úr þér í náttúrulegu
umhverfi.
Bókaðu á netinu — krauma.is
kraumageothermal
kraumageothermal
+354 555 6066
Deildartunguhver, 320 Reykholt
Að dýfa sér aðeins ofan í kaldan pott
gerir flestum gott. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Köld böð hafa örvandi áhrif á efna-
skipti, taugar og blóðflæði.
Fyrstu viðbrögð líkamans við
kulda eru að þrengja húðæðar,
hækka blóðþrýstinginn og auka
blóðflæði til hjartans. Öndunin
verður dýpri, sem hjálpar við að
lofta um lungun og styrkir hjarta-
vöðva. Eftir nokkrar sekúndur
eða mínútur gera taugaboð það
að verkum að háræðar í húðinni
víkka út. Þetta veldur notalegri
hitatilfinningu og vellíðan.
Til að tryggja virkni kalda
baðsins er nauðsynlegt að allur
líkaminn sé heitur, til dæmis strax
eftir að farið er á fætur á morgn-
ana, eftir líkamlega vinnu eða eftir
göngutúr. n
Hafið eftirfarandi í huga
við köld böð:
n Aldrei fara í kalt vatn þegar
manni er kalt!
n Lengd kalda baðsins: 4-20
sekúndur. Hitastig vatnsins: Há-
mark 15°C
n Eftir baðið er best að fara upp í
heitt rúm eða hreyfa sig
Gott við:
n Lélegum efnaskiptum
n Gigt, liðagigt
n Svefnleysi
n Lélegu blóðflæði (kaldar
hendur eða fætur, kulsækni)
Frábendingar:
n Sumir hjartasjúkdómar, til
dæmis mitral stenosis
n Sótthiti
n Hjartasjúklingar ættu aðeins
að nota köld böð í samráði við
lækni.
HEIMILD: HEILSUSTOFNUN.IS
Hressandi
kuldahrollur
Það verður diskófjör í sundlauginni í Borgarnesi í næstu viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Á föstudaginn í næstu viku verður
hægt að sletta úr klaufunum í
sundlauginni í Borgarnesi, en þá
verður haldið sundlaugardiskó í
lauginni milli klukkan sjö og níu
um kvöldið.
Boðið verður upp á skemmtun
og veitingar, en DJ Kingvar sér um
að halda uppi stuðinu með tónlist
og Arion banki ætlar að bjóða
upp á veitingar. Það verður einnig
boðið upp á sápukúlur á meðan
birgðir endast.
Gestir eru sérstaklega hvattir
til að mæta í Hawaii-skyrtum og
stuttbuxum.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá
Brákarhátíðar, sem er sumarhátíð
Borgarbyggðar, en hún fer venju-
lega fram síðasta laugardag í júní. Í
ár stendur hátíðin yfir frá föstu-
degi til sunnudags og það verður
boðið upp á alls kyns skemmtilega
viðburði.
Nánari upplýsingar má finna á
Facebook. n
Sundlaugardiskó í Borgarnesi