Fréttablaðið - 16.06.2022, Qupperneq 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þetta er alveg ótrúlegt,
hvað það eru margir
sem hlusta orðið á
hljóðbækur.
Guðmundur
Ólafsson
toti@frettabladid.is
Valgeir Guðjónsson býður til hátíð-
artónleika í Skálholti á morgun þar
sem hann flytur sitt nýjasta hugar-
fóstur, Saga Musica. Verkefnið hefur
verið Valgeiri hugleikið í meira en
þrjátíu ár, síðan hann sigldi á Vík-
ingaskipinu Gaia árið 1991.
„Þetta var mikið hugsjónaverk-
efni kostað af norska skipakóngin-
um Knut Kloster, en þáverandi for-
seti vor, Vigdís Finnbogadóttir, var
verndari verkefnisins,“ segir Val-
geir, um skipið sem sigldi frá Noregi
til Orkneyja og kom í höfn á gamla
hafnarbakkanum í Reykjavík þann
17. júní 1992. „Þetta var stórkostleg
upplifun sem hefur fylgt mér allar
götur síðan, og víðar.“
Valgeir fór í kjölfarið að semja
lagatexta á ensku sem vísa í
íslenskan sagnaarf, þótt tilteknar
persónur eða atburðir séu ekki
nefndar. Söguþræðinum verða
gerð skil á íslensku í stuttu máli á
milli laga, auk þess sem smásögur
og myndskreytingar má finna í tón-
leikaskránni sem mikið hefur verið
í lagt.
Þá segir hinn sjötugi Valgeir að
talan sjö einkenni tónleikana. „Við
erum með sjö af burðatónlistar-
menn og -konur sem skipa hljóm-
sveitina,“ segir hann, en með Val-
geiri verða Vignir Þór Stefánsson
á píanó, Haraldur Þorsteinsson á
bassa, Pétur Valgarð á gítar, Ásgeir
Óskarsson á slagverk, Guðlaug
Dröfn Ólafsdóttir söngkona auk
heiðursgests tónleikanna, Val-
gerðar Guðnadóttur leik- og söng-
konu. „Þetta er aðgengileg tónlist,
ekki klassísk og ekki í þjóðlagastíl.
Það mætti segja að hún sé Valgeirsk,
fyrir þá sem vita hvað það þýðir.“
Miðasala fer fram á tix.is n
Valgeirskir hátíðartónleikar í Skálholti
Valgeir siglir Saga Musica í höfn í Skál-
holti á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Guðmundur Pétursson
Blús
Hafnar-
fjarðar
hjarta
23. júní
24. júní
25. júní
Kristjana Stefánsdóttir
Beebee and the Blue birds
HG Sextett
Rætur djassins í blústónlist
Tregasveitin
23-25 JÚNÍ
Útisvæði
Happy hour frá 18:00-21:00
Fimmtudagur: Heiðar í Botnleðju
Föstudagur: Hljómsveitin Brot af þvi besta
Laugardagur: Júlladiskó
Björgvin Gíslason
miðasala
á tix.is
Trölladans er frumsaminn
rokksöngleikur eftir þá
Friðrik Sturluson og Guð-
mund Ólafsson, en sá síðar-
nefndi segir þá félagana hafa
verið að dunda sér við þetta í
nokkur ár. Söngvarinn Eyþór
Ingi var ekki lengi að slá til
þegar honum bauðst hlutverk
vonda galdrakarlsins Seðils í
söngleiknum, sem kominn er
á Storytel.
toti@frettabladid.is
„Þetta er nú hugmynd frá Friðriki
Sturlusyni bassaleikara, sem semur
tónlistina og söngtextana,“ segir
Guðmundur Ólafsson, leikari og
rithöfundur með meiru, um rokk-
söngleikinn Trölla dans, þar sem
hann leggur til söguna.
„Þetta er nú búið að vera nokk-
urra ára prósess hjá okkur. Svona í
rólegheitunum en ég held að þetta
hafi nú smollið svona að lokum
hjá okkur félögum,“ heldur Guð-
mundur, sem hefur í tvígang hlotið
Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir
bækurnar um Emil og Skunda.
Ævintýrið um Trölladans er þó
ekki alveg eins jarðbundið, þar
sem sagt og sungið er frá viður-
eign mannsbarnsins Jonna og Tótu
trölla stelpu, við hinn illskeytta
galdrakarl Seðil, sem hefur stolið
ómetanlegum uppdrætti frá tröll-
unum í Tröllabyggð.
Leikið á raddböndin
„Þetta var mjög skemmtilegt og mér
finnst mjög gaman að gera svona,“
segir tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi,
sem sló til þegar honum bauðst að
túlka sjálfan Seðil. „Mér fannst þetta
bara spennandi dæmi vegna þess að
mér finnst alltaf rosalega gaman að
leika mér með raddböndin. Og bara
leika mér yfir höfuð. Þetta náttúru-
lega er dálítið þannig.“
Eyþór Ingi kom heldur ekki alveg
grænn inn í þennan ævintýraheim,
þar sem hann hefur komið töluvert
að talsetningu teiknimynda og
tengdi vel við „kauða“ eins og hann
kallar persónu sína.
„Þetta er bara svona illmenni
í klassískum ævintýraheimi og
sambland af einhverju sem maður
hlustaði á í æsku. Það er svona
vottur af Bessa Bjarna þarna, Ladda
og fleirum. Samkrull af einhverjum
gömlum meisturum sem segja má
að ég hafi horft aðeins til.“
Hálfgert útvarpsleikrit
Eyþór Ingi segist aðspurður telja víst
að Trölladans muni ná vel til krakk-
anna sem á munu hlýða. „Það hlýtur
að vera. Allaveganna var virkilega
skemmtilegt að taka þetta upp og
fíflast.“
Guðmundur útilokar heldur
ekki að söngleikurinn gæti reynst
börnum á ferðalögum um landið
kærkomin dægradvöl. „Já, já, ég hef
nú lesið inn hluta af mínum bókum
og er að heyra af fólki sem hefur ein-
mitt verið að spila þetta fyrir krakk-
ana á ferðalögum. Þannig að það er
mjög gaman að því. Alveg nýtt fyrir
svona gamlan hund eins og mig,“
segir Guðmundur og hlær.
Eyþór Ingi bendir á að líkja megi
söngleiknum að hluta við hálfgert
útvarpsleikrit, sem virðist nokkurn
veginn vera það sem höfundarnir
lögðu upp með.
„Já, já. Ég hef nú svona verið að
segja fólki frá þessu og að þetta sé
meira í ætt við útvarpsleikrit. Þann-
ig að það eru leiknar senur og svo
er tónlist inn á milli. Það er svona
formið á þessu,“ tekur Guðmundur
undir og víkur að því hvernig Story-
tel virðist geta stuðlað að frekari
útbreiðslu skáldskapar í ýmsum
myndum.
„Þetta er alveg ótrúlegt, hvað
það eru margir sem hlusta orðið á
hljóðbækur. Það er bara eitthvað
alveg nýtt í þessu. Fólk er labbandi
út um allt eða hlaupandi með þetta
í eyrunum.“ n
Eyþór veifar Seðli á Storytel
Eyþór Ingi skemmti sér konunglega við að fíflast og leika sér við upptökurnar á rokksöngleiknum. MYND/AÐSEND
30 Lífið 16. júní 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ