Bændablaðið - 28.04.2022, Side 1

Bændablaðið - 28.04.2022, Side 1
8. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 28. apríl ▯ Blað nr. 609 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Fyrstu lömbin voru fædd í Austurhlíð í Biskupstungum þegar Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi var heimsóttur á dögunum. Auk þess að vera nýlega kjörinn formaður Deildar sauðfjárbænda þá er hann einnig nýliði í stjórn Bændasamtakanna. „Þar er margt sem bendir til þess að sauðfjárbændur séu að standa sig mjög vel í alþjóðlegum samanburði. Það eru verðmæti fyrir okkur sem þjóð að eiga svona góða og öfluga sauðfjárbændur. Við megum ekki tapa því niður,“ segir Trausti. – Sjá nánar á bls. 28–29. Mynd / Guðrún Hulda Pálsdóttir Æðarræktendur uggandi vegna fuglaflensunnar – Alifuglaræktendur óttast einnig stöðuna en aflífa hefur þurft milljónir alifugla í Evrópu, Ameríku og Asíu vegna smits Æðarræktendur eru mjög uggandi vegna fuglaflensunnar sem borist hefur til landsins með farfuglum og fundist víða um land. Æðarfuglinn er villtur fugl og er því erfitt að verjast þessum vágesti. Samkvæmt upplýsingum sem Matvælastofnun hefur nýlega gefið út er ljóst að þessi skæða fuglaflensa er útbreidd í villtum fuglum og mikil smithætta fyrir alifugla og aðra fugla í haldi manna. Að sögn Margrétar Rögnvalds­ dóttur, sem nýlega tók við sem formaður Æðarræktarfélags Íslands, þá er æðarfuglinn á þessum árstíma að gera sig kláran í að setjast upp og fara að huga að hreiðurgerð. „Við æðarræktendur höfum rætt þessa hættu okkar á milli og höfum eðlilega áhyggjur af þessu. Við höfum ekki enn orðið vör við grunsamleg veikindi eða séð dauða fugla. Þótt æðarfuglinn sé staðfugl þá er þessi mikla smithætta til staðar. Farfuglarnir streyma auðvitað nú til landsins, einmitt þegar líður að varptíma æðarfuglsins, sem er í raun eini tíminn sem hann sest að uppi í landi,“ segir Margrét. Farfuglar verpa oft inni í æðarvarpi „Óhjákvæmilega er hann þar í nálægð við aðrar tegundir; eins og gæsir sem verpa oft inni í æðarvarpi og ýmsir mófuglar. Við tókum saman almennar leiðbeiningar fyrir æðarbændur vegna smitsjúkdómahættu og birtum á vef félagsins. Þær snúast mest um mikilvægi forvarna sem felast fyrst og fremst í því að gæta fyllsta hreinlætis í umgengni við æðarfuglinn – að fólk beri sjálft ekki smit með sér. Einnig eru þar leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að þegar grunur vaknar um smitsjúkdóma í varpinu,“ segir Margrét. Hún áætlar að tæplega 400 vörp eða ræktunarsvæði séu á landinu, um allt land nema á söndunum á Suðurlandi, flest á Breiða fjarðar svæðinu. Í stærstu vörpu num séu um sex til átta þúsund hreiður og því segir hún að mikið sé í húfi. „Ég vona að skæð flensan herji ekki á slík vörp þar sem þéttleikinn er mikill. Það er svolítið misjafnt eftir svæðum hvenær varp hefst, fyrst er það nú á Suðurlandi í byrjun maí en hjá mér á Melrakkasléttu er það ekki fyrr en í lok maí.“ Getur borist í menn Fuglaflensa af stofni H5N6 hefur smitast í fólk í Kína. Samkvæmt vefsíðu Minnesotaháskóla þá hefur fólk smitast af fuglaflensunni i Cichuan­héraði í Kína. Þann 4. apríl var 56 ára gamall maður lagður illa haldinn inn á sjúkrahús, en hann hafði komist í snertingu við alifugla áður en hann varð var við veikindi 31. mars. Alls hefur verið tilkynnt um 13 smit í fólk af völdum H5N6 veirunnar í Kína. Samkvæmt gögnum Alþjóða­ heilbrigðismála stofnunarinnar WHO hafði verið tilkynnt um smit í 239 mönnum á heimsvísu þann 31. mars síðastliðinn af H5N1 stofni. Þar af hafa 134 látist. Það er auk smita sem greinst hafa í Asíu af H5N6 stofni, en 75 rannsóknastofur hafa tilkynnt um smit í fólki af þeim stofni á svæðinu við vestanvert Kyrrahaf síðan 2014. Af þeim hafa 32 látist. Ekki er þó enn vitað til að fuglaflensuvírusinn hafi smitast milli manna. Tugir milljónir fugla aflífaðir Fuglaflensan hefur verið að breiðast út í Evrópu og hefur þurft að aflífa milljónir alifugla af þeim sökum, m.a. í Noregi og Danmörku, sem flestir hafa smitast af H5N1 veirunni. Þá hefur fuglaflensu orðið vart í 126 sýslum í 29 ríkjum Bandaríkjanna. Þar hafa um 31 milljón fugla smitast af sama veirustofni, bæði villtir fuglar og alifuglar á stórum fuglabúum og í bakgörðum hjá fólki sem þurft hefur að aflífa. Í stöðugri viðbragðsstöðu Jón Magnús Jónsson, bóndi á Reykjabúinu í Mosfellsbæ, segir að það séu talsverð tíðindi að flensan skuli vera þetta útbreidd. Enn sem komið er sé hún eingöngu í villtum fuglum en alifuglabændur hér á landi fylgja gríðarlega stífum verklagsreglum við sóttvarnir á búunum sem hjálpar til við að halda veirunni úti og að koma í veg fyrir mikið tjón. „Við erum auðvitað mjög áhyggjufullir en þá er ekkert annað í stöðunni en að skerpa á öllum sóttvörnum og umgengnisreglum í kringum búin,“ segir Jón Magnús. Engin merki um veika fugla „Engin merki um veika fugla hafa sést hjá alifuglabændum. Það er mikið í húfi fyrir okkur að passa eins vel upp á búin og kostur er, því ef smit berst inn í alifuglahús þá má segja að þetta sé búið spil,“ segir Jón Magnús. Hann bætir við að alifuglabændur hafi fram til þessa ekki lent í hremmingum vegna skæðrar fuglaflensu og þakkar það þeim hörðu vinnureglum varðandi sóttvarnir sem hafa tíðkast á Íslandi, í þeim tilgangi að verjast salmonellu­ og kampýlóbaktersýkingum. /smh /HKr. Garðyrkjuskólinn: Garðyrkjukenn- urum sagt upp Síðastliðinn mánudag fengu allir garðyrkjukennarar Garð­ yrkju skólans á Reykjum í Ölfusi uppsagnarbréf. Guðríður Helga­ dóttir, starfsmennta náms stjóri skólans, segir að þetta hafi komið mjög flatt upp á kennarana. Fimm starfsmönnum var sagt upp í 4,5 stöðugildum hjá Land búnaðar­ háskóla Íslands sem Garðyrkjuskólinn heyrir undir. Guðríður segir að í skýringum með uppsögninni komi fram að með vísan til ákvörðunar menntamálaráðherra um tilfærslu starfsmenntanáms í garðyrkju og skyldum greinum frá Landbúnaðarháskóla Íslands til Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSU), verði störf kennaranna við Landbúnaðarháskólann lögð niður. „Það á að gerast 1. ágúst en samn­ ingur um þá yfirfærslu liggur ekki fyrir. Lilja Alfreðsdóttir ráðherra fullvissaði alla starfsmenn hér, um að það yrði engum sagt upp, heldur færðust starfsmenn á milli skóla. Hún sagði líka að öll starfsemin á Reykjum ásamt starfsmönnum færi undir FSU,“ sagði Guðríður. Garðyrkjunámið sem starfrækt er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra Fjölbrautaskóla Suðurlands frá og með 1. ágúst næstkomandi. „Samkomulagsdrög eru á teikni­ borðinu og unnið er að því að leysa málefni námsins,“ segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari FSU. /HKr./ghp Amor og Drangi bestu kynbótahrútarnir 104 Mikið af næringarefnum enn ónýtt 32 Líkur á tvöföldun laxeldis á næstu tveimur árum

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.