Bændablaðið - 28.04.2022, Page 1
8. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 28. apríl ▯ Blað nr. 609 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Fyrstu lömbin voru fædd í Austurhlíð í Biskupstungum þegar Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi var heimsóttur á dögunum. Auk þess að vera nýlega
kjörinn formaður Deildar sauðfjárbænda þá er hann einnig nýliði í stjórn Bændasamtakanna. „Þar er margt sem bendir til þess að sauðfjárbændur séu
að standa sig mjög vel í alþjóðlegum samanburði. Það eru verðmæti fyrir okkur sem þjóð að eiga svona góða og öfluga sauðfjárbændur. Við megum ekki
tapa því niður,“ segir Trausti. – Sjá nánar á bls. 28–29. Mynd / Guðrún Hulda Pálsdóttir
Æðarræktendur uggandi vegna fuglaflensunnar
– Alifuglaræktendur óttast einnig stöðuna en aflífa hefur þurft milljónir alifugla í Evrópu, Ameríku og Asíu vegna smits
Æðarræktendur eru mjög uggandi
vegna fuglaflensunnar sem borist
hefur til landsins með farfuglum og
fundist víða um land. Æðarfuglinn
er villtur fugl og er því erfitt að
verjast þessum vágesti.
Samkvæmt upplýsingum sem
Matvælastofnun hefur nýlega gefið
út er ljóst að þessi skæða fuglaflensa
er útbreidd í villtum fuglum og mikil
smithætta fyrir alifugla og aðra fugla
í haldi manna.
Að sögn Margrétar Rögnvalds
dóttur, sem nýlega tók við sem
formaður Æðarræktarfélags Íslands,
þá er æðarfuglinn á þessum árstíma
að gera sig kláran í að setjast upp og
fara að huga að hreiðurgerð.
„Við æðarræktendur höfum
rætt þessa hættu okkar á milli og
höfum eðlilega áhyggjur af þessu.
Við höfum ekki enn orðið vör við
grunsamleg veikindi eða séð dauða
fugla. Þótt æðarfuglinn sé staðfugl
þá er þessi mikla smithætta til staðar.
Farfuglarnir streyma auðvitað nú
til landsins, einmitt þegar líður að
varptíma æðarfuglsins, sem er í raun
eini tíminn sem hann sest að uppi í
landi,“ segir Margrét.
Farfuglar verpa oft
inni í æðarvarpi
„Óhjákvæmilega er hann þar í nálægð
við aðrar tegundir; eins og gæsir sem
verpa oft inni í æðarvarpi og ýmsir
mófuglar. Við tókum saman almennar
leiðbeiningar fyrir æðarbændur
vegna smitsjúkdómahættu og birtum
á vef félagsins. Þær snúast mest um
mikilvægi forvarna sem felast fyrst og
fremst í því að gæta fyllsta hreinlætis
í umgengni við æðarfuglinn – að fólk
beri sjálft ekki smit með sér. Einnig
eru þar leiðbeiningar um hvernig eigi
að bera sig að þegar grunur vaknar
um smitsjúkdóma í varpinu,“ segir
Margrét.
Hún áætlar að tæplega 400 vörp eða
ræktunarsvæði séu á landinu, um allt
land nema á söndunum á Suðurlandi,
flest á Breiða fjarðar svæðinu. Í stærstu
vörpu num séu um sex til átta þúsund
hreiður og því segir hún að mikið sé í
húfi. „Ég vona að skæð flensan herji
ekki á slík vörp þar sem þéttleikinn
er mikill. Það er svolítið misjafnt eftir
svæðum hvenær varp hefst, fyrst er
það nú á Suðurlandi í byrjun maí en
hjá mér á Melrakkasléttu er það ekki
fyrr en í lok maí.“
Getur borist í menn
Fuglaflensa af stofni H5N6 hefur
smitast í fólk í Kína. Samkvæmt
vefsíðu Minnesotaháskóla þá hefur
fólk smitast af fuglaflensunni i
Cichuanhéraði í Kína. Þann 4. apríl
var 56 ára gamall maður lagður illa
haldinn inn á sjúkrahús, en hann hafði
komist í snertingu við alifugla áður en
hann varð var við veikindi 31. mars.
Alls hefur verið tilkynnt um 13 smit í
fólk af völdum H5N6 veirunnar í Kína.
Samkvæmt gögnum Alþjóða
heilbrigðismála stofnunarinnar WHO
hafði verið tilkynnt um smit í 239
mönnum á heimsvísu þann 31. mars
síðastliðinn af H5N1 stofni. Þar af
hafa 134 látist. Það er auk smita sem
greinst hafa í Asíu af H5N6 stofni, en
75 rannsóknastofur hafa tilkynnt um
smit í fólki af þeim stofni á svæðinu
við vestanvert Kyrrahaf síðan 2014.
Af þeim hafa 32 látist. Ekki er þó enn
vitað til að fuglaflensuvírusinn hafi
smitast milli manna.
Tugir milljónir fugla aflífaðir
Fuglaflensan hefur verið að breiðast
út í Evrópu og hefur þurft að aflífa
milljónir alifugla af þeim sökum, m.a. í
Noregi og Danmörku, sem flestir hafa
smitast af H5N1 veirunni. Þá hefur
fuglaflensu orðið vart í 126 sýslum í
29 ríkjum Bandaríkjanna. Þar hafa
um 31 milljón fugla smitast af sama
veirustofni, bæði villtir fuglar og
alifuglar á stórum fuglabúum og í
bakgörðum hjá fólki sem þurft hefur
að aflífa.
Í stöðugri viðbragðsstöðu
Jón Magnús Jónsson, bóndi á
Reykjabúinu í Mosfellsbæ, segir að
það séu talsverð tíðindi að flensan skuli
vera þetta útbreidd. Enn sem komið
er sé hún eingöngu í villtum fuglum
en alifuglabændur hér á landi fylgja
gríðarlega stífum verklagsreglum við
sóttvarnir á búunum sem hjálpar til við
að halda veirunni úti og að koma í veg
fyrir mikið tjón.
„Við erum auðvitað mjög
áhyggjufullir en þá er ekkert annað
í stöðunni en að skerpa á öllum
sóttvörnum og umgengnisreglum í
kringum búin,“ segir Jón Magnús.
Engin merki um veika fugla
„Engin merki um veika fugla hafa sést
hjá alifuglabændum. Það er mikið í
húfi fyrir okkur að passa eins vel upp
á búin og kostur er, því ef smit berst
inn í alifuglahús þá má segja að þetta
sé búið spil,“ segir Jón Magnús.
Hann bætir við að alifuglabændur
hafi fram til þessa ekki lent í
hremmingum vegna skæðrar
fuglaflensu og þakkar það þeim
hörðu vinnureglum varðandi sóttvarnir
sem hafa tíðkast á Íslandi, í þeim
tilgangi að verjast salmonellu og
kampýlóbaktersýkingum.
/smh /HKr.
Garðyrkjuskólinn:
Garðyrkjukenn-
urum sagt upp
Síðastliðinn mánudag fengu
allir garðyrkjukennarar Garð
yrkju skólans á Reykjum í Ölfusi
uppsagnarbréf. Guðríður Helga
dóttir, starfsmennta náms stjóri
skólans, segir að þetta hafi komið
mjög flatt upp á kennarana.
Fimm starfsmönnum var sagt upp
í 4,5 stöðugildum hjá Land búnaðar
háskóla Íslands sem Garðyrkjuskólinn
heyrir undir.
Guðríður segir að í skýringum með
uppsögninni komi fram að með vísan
til ákvörðunar menntamálaráðherra
um tilfærslu starfsmenntanáms í
garðyrkju og skyldum greinum
frá Landbúnaðarháskóla Íslands
til Fjölbrautaskóla Suðurlands
(FSU), verði störf kennaranna við
Landbúnaðarháskólann lögð niður.
„Það á að gerast 1. ágúst en samn
ingur um þá yfirfærslu liggur ekki
fyrir. Lilja Alfreðsdóttir ráðherra
fullvissaði alla starfsmenn hér, um
að það yrði engum sagt upp, heldur
færðust starfsmenn á milli skóla.
Hún sagði líka að öll starfsemin á
Reykjum ásamt starfsmönnum færi
undir FSU,“ sagði Guðríður.
Garðyrkjunámið sem starfrækt
er á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra
Fjölbrautaskóla Suðurlands frá og
með 1. ágúst næstkomandi.
„Samkomulagsdrög eru á teikni
borðinu og unnið er að því að leysa
málefni námsins,“ segir Olga Lísa
Garðarsdóttir, skólameistari FSU.
/HKr./ghp
Amor og Drangi
bestu kynbótahrútarnir
104
Mikið af næringarefnum
enn ónýtt
32
Líkur á tvöföldun laxeldis
á næstu tveimur árum