Bændablaðið - 28.04.2022, Side 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 13
Búnaðarþing samþykkti ályktun
þess efnis að Bændasamtökin
myndi samstarfshóp með sér-
fræðingum og fulltrúum allra
búgreina kjötframleiðenda
um innflutning, útflutning og
innanlandsneyslu kjöts. Hópurinn
verður skipaður þvert á búgreinar
með fulltrúa frá hverri grein.
Með samstarfshópnum á að
efla samstöðu kjötframleiðenda
um heildstæða markaðssetningu
á íslensku kjöti en mælaborð
landbúnaðarins verður nýtt til að
fylgjast með neyslu innanlands
Þá á að efla greiningar á áhrifum
innflutnings á innlenda framleiðslu
og fylgjast með hvort íslenskar
afurðastöðvar nýti útflutningskvóta
á kjöti.
Verkefnis hópsins verður
meðal annars að leita leiða til
að safna gögnum um hlutdeild
íslensks kjöts í verslunum,
veitingahúsum, skyndibitastöðum,
matvælafyrirtækjum og hjá opin-
berum stofnunum, svo sem skólum
og sjúkrahúsum. Fylgst verður með
innflutningi á kjöti, tegundum og
tímabilum og skoðað í samhengi
við neyslumynstur eftir árstíðum,
viðburðum, ferðamannafjölda o.þ.h.
Aflað verður gagna um útflutning á
kjöti, hve mikið selt, hvaða tegundir
og á hvaða markaði.
Í greinargerð með ályktuninni
kemur fram að kjötframleiðendur
á Íslandi séu í eðlilegri sam-
keppni innbyrðis en geta með
samstöðu, þekkingarmiðlun og
samlegðaráhrifum staðið vörð um
atvinnugreinina í heild. „Íslenska
búvörumerkið mun auðvelda
neytendum að finna innlent kjöt
í verslunum en fyrir utan merktar
vörur er ógerningur að vita hvaða
kjöt er í tilbúnum matvælum t.d. á
skyndibitastöðum, veitingahúsum
o.s.frv. Innflutning og sölu er hægt að
finna á mælaborði landbúnaðarins.
Mögulega væri hægt að hagræða
innlendri framleiðslu á tímalínu til
að mæta samkeppni erlendis frá.
Gögn um útflutning gætu gagnast
við skipulagningu í búrekstri
og markaðsstarfi kjötgreina,“ segir
í ályktuninni. /ghp
Nýr
Fendt
500 V
ario
!
Gerðust áskrifandi að fréttabréfinu
núna á www.fendt.com/500
– VERKIN TALA
Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri
It‘s Fendt. Beacause we understand Agriculture.
fendt.com | Fendt is a worldwide brand of AGCO.
Nýtt og byltingarkennt
starfsumhverfi með
FendtONE.
Hornsteinninn bak við alla nýsköpun hjá Fendt er að taka eitthvað stórkostlegt
og gera það betra. Nýja Fendt vinnuumhverfið býður fleiri skjái og aðgengilega
stjórnrofa, með öllum þessum frábæru Fendt eiginleikum. Nýir Fendt eigendur
munu samstundis upplifa sig á heimavelli.
Ályktun Búnaðarþings:
Samstaða meðal kjötframleiðenda
Verkefni hópsins verður meðal annars að leita leiða til að safna gögnum um
hlutdeild íslensks kjöts í verslunum og veitingahúsum. Mynd / íslensktlambakjot
Matvælastofnun hefur birt breytt
skilyrði fyrir blóðtöku úr fylfullum
hryssum fyrir árið 2022.
Í þeim fer hámarksfjöldi hryssa
í stóði úr hundrað niður í sjötíu
hryssur, dýralæknar mega ekki
hafa fleiri en 3 hryssur í blóðtöku
samtímis, settur er hámarksaldur á
blóðtökuhryssu við 24 ár og gerð
er ríkari krafa um skráningar við
innra eftirlit með starfseminni,
s.s. á holdastigun og frávikum við
meðferð við rekstur og blóðtöku.
Í skýrslu sem Matvælastofnun
birti á vef sínum í gær er farið yfir
eftirlit stofnunarinnar með velferð
hryssna sem notaðar eru í blóðtöku
til vinnslu afurða. Þar eru m.a.
tilteknar forsendur mælikvarða
á blóðbúskap hryssnanna og það
eftirlit sem haft er með folöldum
þeirra. Er það mat stofnunarinnar
að blóðtaka úr fylfullum hryssum,
eins og hún á að vera framkvæmd
hér á landi skv. lögum, reglugerðum
og skilyrðum Matvælastofnunar,
stangist ekki á við lög nr. 55/2013
um velferð dýra.
/ghp
Bændur athugið!
www.oger.is/is/vefverslun/eldvarnir-fyrir-felagsmenn-i-baendasamtokunum
Félagsmenn BÍ fá nú góðan afslátt
á eldvarnatækjum hjá
Eldvarnamiðstöðinni. Tilboðin gilda
til 31. maí næstkomandi.
Til að gera góð kaup
kíkið inn á linkinn hér
að neðanverðu.
Góður afsláttur
og frí heimsending!
Blóðmerabúskapur:
Breytingar á
skilyrðum