Bændablaðið - 28.04.2022, Side 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202218
FRÉTTIR
Fimmtudaginn 10. mars
síðastliðinn var fyrsta skóflu
stung an að nýjum höfuð stöðvum
Garðheima tekin við Álfa bakka 6
í Reykjavík.
„Við höfum fengið frábæra
samstarfsaðila með okkur í vegferðina
og erum við sannfærð um að úr verði
ein fallegasta garðyrkju miðstöð sem
reist hefur verið. Hönnun hússins
hefur verið í höndum PK ark itekta,
Ferils verkfræðistofu, Landslags,
Hafstudio og hollenska fyrirtæk
isins Smiemans, en þeir sérhæfa sig
í byggingu garðyrkjumiðstöðva úti
um allan heim.
Um er að ræða 7.000 fm
stálgrindarhús ásamt útisölusvæði
á 20.000 fm lóð sem liggur við
rætur Seljahverfisins og niður að
Reykjanesbrautinni,“ segir Jóna
Björk Gísladóttir, markaðsstjóri
Garðheima.
Tveggja milljarða króna
framkvæmd
Garðheimar voru stofnaðir árið 1999
af Gísla Hinriki Sigurðssyni og
Jónínu Sigríði Lárusdóttur. Í dag hafa
börn þeirra, Sigurður Björn, Kristín
Helga, Olga Björney og Jóna Björk
tekið við rekstrinum og starfa þar öll
saman undir stjórn Kristínar Helgu
Gísladóttur framkvæmdastjóra. Um
60 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu
í dag. Kostnaður við nýja Garðheima
verður um tveir milljarðar króna.
Reiknað er með að opnað verði á
nýja staðnum vorið 2023. Hagar
eiga lóðina og núverandi húsnæði
Garðheima, sem og lóðirnar í kring.
Þeir hyggjast byggja íbúðablokkir
og verslunarhúsnæði í bland á
öllum reitnum. Núverandi húsnæði
Garðheima verður því rifið. /MHH
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
-fjögur ár í röð!
Sveinn Runólfsson, fyrrverandi
landgræðslustjóri, vinnur
nú að ritun bókar um sögu
Gunnarsholts. Sagan mun beina
sjónum lesandans að því hvernig
þessi kostajörð við landnám
breyttist í sandauðn og því
einstæða afreki að breyta þessari
gereyddu jörð í land er fóstraði
langstærsta bú sem nokkurn
tímann hefur verið rekið á Íslandi.
Ætlunin er að segja söguna sem
mest með ljósmyndum og nú er
leitað til þeirra sem gætu átt myndir.
Áherslan er lögð á myndir sem sýna
lífið og starfið í Gunnarsholti en
ekki er verið að biðja um myndir úr
landgræðsluflugi eða landgræðslu í
öðrum landshlutum.
Auðvitað væri gott að fá slíkar
myndir varðandi landgræðslu til
varðveislu en þær færu ekki í bókina
sem nú er í undirbúningi.
Þetta gætu verið myndir af
fólki við störf í Gunnarsholti eða
af vélakosti, sauð og holdanautum
svo dæmi séu tekin. Eitt sinn var
stóðhestastöð í Gunnarsholti og má
vera að hestamenn hafi tekið myndir
af gæðingum í stöðinni.
Þá hlýtur kornræktin í Gunnars
holti að hafa vakið áhuga bænda
og áhugafólks um kornrækt – og
einhver hefur án efa tekið myndir
af korni og repju. Sama gildir um
graskögglaverksmiðjuna sem var
nýjung á sínum tíma. Þá var rekið
vistheimili á Akurhóli í Gunnarsholti
og væri ljúft að fá myndir frá
þeirri starfsemi og ekki síður þeim
listaverkum sem íbúarnir bjuggu
til. Skógræktarmenn sem sköpuðu
asparskóginn í Gunnarsholti gætu
hafa tekið myndir sem og þeir sem
hafa lagt leið sína í Gunnlaugsskóg.
Sveinn Runólfsson er með síma
8930830 og netfangið sveinnrun@
gmail.com.
Aðstandendur bókar innar eru
tilbúnir til að koma til fólks og sækja
myndir og gömul albúm, láta skanna
myndir og skila aftur.
Gunnarsholt. Mynd / Jón Karl
Leitað að ljósmyndum
úr sögu Gunnarsholts
Kemur næst út 12. maí
Fyrr á þessu ári undirrituðu
sveitarfélagið Múlaþing og ARS
LONGA samtímalistasafn undir
samkomulag um húsnæði við
voginn á Djúpavogi. Húsnæðið
mun hýsa hið nýstofnaða listasafn
en gert er ráð fyrir stórfelldum
endurbótum á húsnæðinu á
komandi árum.
Safninu er ætlað að vera lifandi
vettvangur í sífelldri endurnýjun
um leið og safneign þess mun halda
um ómetanlegan menningararf til
frambúðar. Lagt er upp með að
viðburðir og sýningarhald hefjist án
mikilla breytinga húsnæðisins strax
í sumar með „Rúllandi snjóbolta“,
sem farið hefur fram í Bræðslunni
á Djúpavogi frá árinu 2013.
Við sýningarlok verður farið
í framkvæmdir en unnið er að
fjármögnun og skipulagi við
endurbætur húsnæðisins.
Sigurður Guðmundsson gaf
nýverið tuttugu og sjö listaverk,
sem spanna meira en 50 ára tímabil
af ferli hans, til safnsins. Mynda
verkin stofn að safnkosti ARS
LONGA en má vænta að innan fárra
ára verði þessi safneign orðin lítil
innan um ný aðföng af listaverkum
eftir samtímalistamenn, jafnt
erlendra sem íslenskra listamanna.
/MHH
Samtímasafni komið upp
við voginn á Djúpavogi
Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings (t.v.), og Sigurður Guðmundsson,
myndlistarmaður og formaður stjórnar ARS LONGA, tókust í hendur eftir
að samningurinn hafði verið undirritaður. Mynd / Aðsend
Garðheimafjölskyldan, foreldrar og börnin þeirra, frá vinstri, Kristín Helga Gísladóttir framkvæmdastjóri, Olga
Björney Gísladóttir innkaupastjóri, Sigurður Björn Gíslason rekstrarstjóri, Jónína Sigríður Lárusdóttir, stofnandi
Garðheima, Gísli Hinrik Sigurðsson, stofnandi Garðheima, og Jóna Björk Gísladóttir markaðsstjóri. Mynd / Aðsend
Garðheimar byggja á nýjum stað
7.000 fermetra verslunarhúsnæði
Svona mun nýja húsnæði við Álfabakka 6 líta út. Mikið hefur verið lagt
upp úr því að gera húsið eins umhverfisvænt og kostur er. Á lóðinni verða
blágrænar ofanvatnslausnir, grasþak yfir hluta hússins, vökvunarkerfi, sem
safnar regnvatni til að vökva plöntur í sölu, o.s.frv.