Bændablaðið - 28.04.2022, Page 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 21
um orkusölu og framleiðslu verði
lokað, þannig að spaðar túrbínanna
fái aftur að snúast.
„Okkur finnst einfaldlega ósjálf
bært að stöðva vindmyllurnar á
sama tíma og við þurfum meira
en nokkru sinni fyrr á allri þeirri
endurnýjanlegu orku sem við getum
komið inn í orkukerfið yfirhöfuð,
sagði Jeppe Danø í samtali við DR.
Energinet vill að sá háttur
verði á að umframafl frá dönsku
hverflunum sé í meira mæli selt
til annarra Norðurlanda. Þannig
geta flöskuhálsar í Þýskalandi
ekki stöðvað raforkuframleiðslu
frá dönskum vindmyllum, segir í
röksemdafærslu Energinet.
Snýst um að græða meira,
segir viðskiptastjóri
Green Power Denmark
Hagsmunasamtök vindmyllu eig
enda, Green Power Denmark, er
algjörlega andvíg slíkum samfélags
legum hugsunarhætti, að sögn
Kristian LundgaardKarlshøj og
Jeppe Danø. Samtökin telja að slíkt
geti kostað eigendur orkufyrir
tækjanna mikla peninga. Núna séu
þeir að fá meira í vasann í gegnum
þýska kerfið fyrir að framleiða ekkert
en búast mætti við að eigendurnir
gætu fengið ef þeir létu túrbínurnar
snúast til að selja orkuna.
Green Power Denmark heldur
sig því við kerfið, þar sem
eigendur orkufyrirtækjanna geta
búist við að græða meira, útskýrir
framleiðslu og viðskiptastjórinn
Kamilla Thingvad.
Kerfið snýst um að halda uppi
sem hæstu orkuverði
„Þú færð borgað fyrir að framleiða
ekki. Og þegar það er betra en að
framleiða rafmagn, þá gerir maður
það,“ segir hún.
„Með því að selja orkuna væri
maður bara að ýta undir vandann
þannig að þá þyrftu framleiðendur í
öðrum löndum að halda aftur af sér
í staðinn,“ segir Kamilla Thingvad.
Með öðrum orðum þá segir
hún hreint út að þetta snúist fyrst
og fremst um að halda uppi háu
orkuverði og koma í veg fyrir of mikla
orkuframleiðslu sem gæti komið
almennum neytendum til góða.
„Við verðum þess í stað að
leysa það grundvallarvandamál að
leggja orkustrengi niður í gegn
um Þýskaland. Aukum þá um
leið raforkunotkun með endur
skipulagningu á flutningum og
hitaveitum þannig að við notum
meira rafmagn,“ segir Kamilla
Thingvad.
Fréttamaður DR spurði hana þá
að því hvað hún segði við alla þá
sem furða sig á því að vindmyllur
standi kyrrar á sama tíma og talað
sé um að Danir geti framleitt meiri
endurnýjanlega raforku.
Kamilla sagðist skilja mjög vel
gremju fólks, en það væri heldur ekki
lausn að biðja sænska framleiðendur
um að loka í staðinn.
„Við verðum að leggja stærri
strengi til suðurs svo við getum
stöðvað þýsk kolaorkuver,“ sagði
Kamilla Thingvad hjá Green
Power Denmark. Þar með myndi
gróði danskra vindmyllueigenda
væntanlega aukast á kostnað eigenda
kolaorkuvera í Þýskalandi. Danir
myndu þá framleiða orku sem í dag
kemur frá kolaorkuverum. Ekkert er
þar talað um að auka orkuframboð
á markaði, enda gæti það ruggað
bátnum í þessum viðskiptum og leitt
til lægra orkuverðs.
Gasið er líka hluti af innri
orkumarkaði Evrópu
Það er þó ekki bara raforkukerfið
sem heyrir undir sameiginlegan
innri orkumarkað Evrópu. Það gerir
gasið nefnilega líka. Dan Jørgensen,
orkumálaráðherra Dana, kynnti
þann 19. apríl síðastliðinn að um
að 3050% danskra heimila sem nú
eru kynt með jarðgasi verði tengd
fjarvarmaveitum fyrir árið 2028. Um
400.000 heimili eru nú kynt með
jarðgasi og munu um 150200 þúsund
þeirra verða tengd fjarvarmaveitum á
næstu sex árum. Hluti af skýringunni
á þessu plani er að Danir vilja losna
við að vera háðir gasi frá Rússum.
Tilkynning orkumálaráðherrans
er þó vart annað en pólitískur
skrípaleikur því fjarvarmaveiturnar
verða trúlega áfram kyntar með
jarðgasi. Vegna sameiginlega orkunets
Evrópu eru Danir tengdir evrópska
gasnetinu með gasleiðslum sem
tengja saman gaslindir í Norðursjó
og fljótandi gasi frá Rússlandi í
gegnum miðlæga gasmiðlunarstöð.
Frá gaslindum í Norðursjó, sem
tilheyra Danmörku, Noregi, Hollandi,
Belgíu og Bretlandi, streymir gas til
MiðEvrópu og alla leið til Spánar
um 218.000 km flutningskerfi og
dreifinet gasleiðslna sem eru samtals
1.640.000 km að lengd. Þetta kerfi
þjónar 116 milljónum Evrópubúa og
dekkar um 23% af orkuþörf Evrópu.
Þannig að meðan ekki er alfarið
skrúfað fyrir gas frá Rússlandi er
tómt mál að tala um að dönsk heimili
verði óháð Rússum um gasnotkun.
Það sem verra er er að verðlagningin
á gasinu er líka miðlæg svo Danir
eru þar í sama báti og aðrar ESB
þjóðir, jafnvel þótt þeir vilji nýta
eigin gaslindir í Norðursjó.
Takmörkun á gasframboði í fyrra
hækkar svo að sjálfsögðu orkuverðið
snarlega á öllum sameiginlega
orkumarkaði Evrópu.
Einkafyrirtækin kalla
eftir ríkisaðstoð
Þversögnin í þessu öllu saman er
svo að kerfið fyrir orkumarkaðinn
í Evrópu er í uppnámi vegna ótta
við að Rússar skrúfi fyrir gassölu til
Þýskalands vegna viðskiptaþvingana
út af stríðinu í Úkraínu. Hafa
orkufyrirtækin, sem barist hafa fyrir
aukinni einkavæðingu og frelsi til
athafna í orkugeiranum, nú kallað eftir
ríkisaðstoð vegna hættu á minnkandi
gróða af gassölu. Þar má t.d. nefna
Verbundnetz Gas, sem staðsett er í
Leipzig og fréttablaðið Handelsblatt
fjallaði um fyrir skömmu. Welt am
Sonntag hefur einnig fjallað um
þessa auknu aðsókn einkafyrirtækja
í orkubransanum í ríkisaðstoð. Talað
er um mörg fyrirtæki sem geti orðið
illa fyrir barðinu á stöðvun sölu
Rússa á gasi, eins og Fortum, Uniper,
MVM, BEH, PGNiG, Engie, Naturgy
og RWE.
Hörð átök í Frakklandi um
uppbrot á ríkisfyrirtækjum
Hluti af sama pakka er að ríkis
stjórn Frakklands hafði lagt fram
endurskipulagningaráætlun á
raforku framleiðslu landsins, sem
áður var kölluð „Projet Hercule“,
síðan endurnefnd „Grand EDF“.
Hún miðaði að því að skipta upp
ríkisraforkufyrirtækinu Électricité de
France (EDF), sem er ríkisfyrirtæki
að meirihluta. Áætlunin var hluti
af orkusýn sem miðaði að því að
sundra fyrirtækinu og selja það síðan
í bútum til einkaaðila.
Áform um að hluta í sundur
Électricité de France runnu þó út í
sandinn, um stundarsakir að minnsta
kosti, í ágúst 2021. Verkamenn sem
störfuðu við Électricité de France
(EDF) óttuðust um sinn hag og
fengu verkalýðsfélög og almenna
raforkuneytendur sér til liðsinnis
til að berjast gegn niðurbroti á
fyrirtækinu og sölu á eignum þess
til einkaaðila. Bentu mótmælendur
á að slíkt niðurbrot myndi leiða af
sér hækkun orkuverðs sem myndi
fyrst og fremst skaða verkamenn og
almenna orkunotendur.
Frönsk verkalýðsfélög hafa barist
gegn áætluninni um niðurbrotið á
franska ríkisraforkufyrirtækinu í
mörg ár. Þeir virkjuðu stuðning
margra annarra í samfélaginu,
þar á meðal stjórnmálamanna.
Stéttarfélögin krefjast þess að í
stað niðurbrots á EDF verði farið í
eflingu opinberrar orkuframleiðslu.
Telja þau að opinber orkuþjónusta
sé besta leiðin til að takast á við
loftslagsbreytingar og tryggja réttlát
umskipti með sterkum réttindum
starfsmanna og stéttarfélaga. Hjá
franska raforkufyrirtækinu starfa
150.000 starfsmenn víða um heim,
en samt langflestir í Frakklandi.
Samtök opinbera starfsmanna í
Evrópu (European Public Service
Union EPSU) hefur stutt baráttu
frönsku verkalýðsfélaganna. Þeir
skipulögðu verkfallsaðgerðir sem
virkjuðu þúsundir starfsmanna.
Starfsmenn EPSU og belgíska
orkusambandið Gazelco tóku þátt
í mótmælaaðgerðum til samstöðu
19. september 2019 fyrir framan hóp
fastafulltrúa Frakka í Brussel, ásamt
PSI, TUED og mörgum öðrum
stéttarfélögum. Var mótmælum
haldið áfram í janúar í fyrra og
allt fram á þennan dag og hafa 33
verkalýðsfélög í orkugeiranum,
flutningum og iðnaði um allan
heim lýst yfir samstöðu við frönsku
verkalýðsfélögin.
Ragnar Reykás hvað?
Emmanuel Macron Frakklandsforseti
virðist nú hafa algjörlega snúið við
blaðinu gagnvart Électricité de
France. Þannig hefur hann hvatt
til þess að fyrirtækið kaupi aftur
framleiðslueiningar sem hann
stóð sjálfur fyrir að voru seldar
frá ríkisfyrirtækinu. Þá tilkynnti
hann nýverið einnig um stóraukin
ríkisafskipti í orkugeiranum þegar
hann kynnti áætlun um að byggja að
minnsta kosti sex ný kjarnorkuver
fyrir árið 2050. Það er þrátt fyrir
gífurlegan kostnaðarauka frá
upphaflegri áætlun og áratuga
seinkun á því að klára frumgerð
slíks orkuvers. Ekki var búist við
að þessi þriðja kynslóð kjarnaofna
yrði fullhönnuð fyrr en 2050,
svo Macron virðist vera að gefa
loforð í orkumálum ansi langt inn í
framtíðina. Auk kjarnorkuveranna
sex sem hann hefur þegar kynnt
hefur hann ýjað að byggingu á átta
kjarnorkuverum til viðbótar.
Kjarnorka stendur í dag fyrir um
70% af orkuframleiðslu Frakka. Með
yfirlýsingu Macron um uppbyggingu
kjarnorkuvera var hann væntanlega
líka að reyna að slá keilur í sinni
kosningabaráttu og gera Frakkland
meira gildandi í orkuframleiðslu
ESB. Frakkar gætu þá orðið ein
hvers konar haldreipi fyrir Þjóð
verja vegna orkuskortsins, sem
verður óhjá kvæmilega, verði lokað
al farið fyrir gas og olíuflutninga
frá Rúss landi. Macron sigraði
Marie Le Pen með talsverðum mun
í forsetakosningum sl. sunnudag þar
sem kosningaþátttaka var sú minnsta
sem sést hefur í fjölda ára.
Hann talaði einnig um stórfelldar
fjárfestingar í endurnýjanlegri orku.
Sagði Macron að áform væru uppi
um að byggja 50 vindgarða á hafi
úti. – Frakkland hefur engan slíkan
vindorkugarð í dag, þrátt fyrir
sína miklu strandlengju. Einnig
talaði hann um að sólarorkugeta
á landi myndi tvöfaldast og að
vatnsaflsvirkjanir myndu heldur
ekki gleymast.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Emmanuel Macron Frakklandsforseti
virðist hættur við áform um að brjóta
upp franska ríkisorkufyrirtækið
Électricité de France. Þess í stað
segist hann nú vilja efla það og
kynnir áætlanir um stórkostlega
uppbyggingu kjarnorkuvera.
Bærinn Ribe á Suður-Jótlandi. Miklar hækkanir á orkuverði hafa plagað
íbúa þessa bæjar líkt og aðra íbúa Danmerkur á undanförnum misserum.
Sameiginlegur orkumarkaður Evrópu hefur ekki reynst þeim nein trygging
fyrir orkuöryggi eða hagstæðu orkuverði. Hinsvegar hefur það verið nokkuð
örugg leið fyrir fjárfesta og eigendur orkufyrirtækja til að tryggja þeim hátt
orkuverð úr vösum notenda orkunnar. Mynd / HKr.